Dagur - 26.08.1986, Page 1
69. árgangur Akureyri, þriðjudagur 26. ágúst 1986 157. tölublað
FILMUHUSIÐ
Hafnarstræti 106 Sími 22771 Pósthólf 198
gæðaframköliun
Filman inn fyrir
kl. 10.45.
Myndirnar tilbúnar
kl. 16.30.
Opið á '
laugardögum
frá kl. 9-12.
Skólastjórastaðan við Síðuskóla:
Davíð hlaut 3 atkvæði
í skólanefnd
Á fundi skólanefndar í gær-
morgun var gengið til atkvæða-
greiðslu um skólastjórastöðu
við Síðuskóla á Akureyri.
Davíð S. Óskarsson námsráð-
gjafi Akureyri fékk 3 atkvæði,
Þórey Eyþórsdóttir talkennari 1
atkvæði og einn seðill var auður.
Fyrir fundinn hafði Sturla Krist-
jánsson mælt með Þóreyju og
sagði hana hafa bestu menntun-
ina.
En það er ráðherra sem tekur
endanlega ákvörðun um hver
umsækjenda hlýtur stöðuna.
Þannig að boltinn er hjá honum,
eins og svo vinsælt er að segja.
-mþþ
Hvalamálið:
„Mun leysast
farsællega"
- segir sjávarútvegsráðherra
„Það er komin niðurstaða í
hvalamálinu. Við erum búnir
að setja nefnd sem er að ganga
frá skilgreiningum í þessu
sambandi, því það liggur ekki
Svæðisútvarpið:
50 sóttu
um að lesa
tilkynningar
Akureyringar tóku vel í þá bón
svæðisútvarpsins á Akureyri á
dögunum er þeir lýstu eftir
röddum til að Iesa tilkynning-
ar, því rúmlega 50 manns sóttu
um.
Leitað var eftir góðum
röddum, helst með góðan norð-
lenskan hreim. Skortur virðist
því ekki vera á góðum norðlensk-
um röddum. Að sögn Ernu Ind-
riðadóttur, forstöðumanns
Rúvak, er enn verið að prófa
fólkið og niðurstöðu að vænta á
næstunni. Það verður forvitnilegt
að heyra árangurinn af þessari
leit. -SÓL
alveg ljóst fyrir, hvað er kjöt
og hvað er hvað á hvalnum.
Við höfum því sett saman
nefnd, með yfirdýralækni í
broddi fylkingar. Og frá þess-
um málum þarf að ganga,“
sagði Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráðherra um
hvalamálið svo kallaða.
„Það fólk sem er að berjast á
móti okkur, leggur gífurlegan
þrýsting á bandarísk stjórnvöld
um að nota þau lög sem þau, því
miður, hafa sett. Hins vegar
finnst mér gott að þjóðin hefur
vaknað til vitundar um að það er
ekki hægt að treysta á aðra út í
ystu æsar. Maður verður að
treysta á sjálfan sig. Mér finnst
að á undanförnum árum hafi
menn talið að Bandaríkjamenn
mundu alltaf standa með okkur í
einu og öllu. Það er mesti mis-
skilningur og hættulegt að reikna
með slíku,“ sagði Halldór einnig.
í skilgreiningu Bandaríkjamanna
á neyslu hvalkjöts segir, að 51%
kjötsins og jafnframt það sem fer
til annarrar framleiðslu skuli nýtt
innanlands. Sjávarútvegsráð-
herra kvaðst samt bjartsýnn á að
málið myndi leysast farsællega,
neysla á hvalkjöti myndi aukast
innanlands og Japanir keyptu
örugglega umsamið magn. -SÓL
Útsýnið af efstu hæð Alþýðuhússins er mjög skemmtilegt og óvenjuleg sjón-
arhorn birtast. Mynd: Rl>B.
Frystihúsin:
Fjár-
hagurinn
endur-
skipulagður
„Við höfum miklar áhyggjur af
alkomu frystihúsanna. Það
hefur verið unnið að því að
koma því máli eitthvað áfram.
Það eru miklir fjárhagserfíð-
leikar hjá þeim, og það stend-
ur til að reyna að endurskipu-
ieggja fjárhag margra frysti-
húsa,“ sagði Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráðherra, í
samtali við blaðið.
„Að vísu eru frystihúsin mjög
mismunandi stödd. Sum eru með
sæmilega eiginfjárstöðu, og þar
ætti ekki að vera mikið verk að
endurskipuleggja fjárhaginn, en
önnur eru á mörkum þess að eiga
fyrir skuldum og þau þurfa sér-
staka aðstoð. Enn önnur fyrir-
tæki geta ekki haldið áfram
rekstri, nema með meira hlutafé
og utanaðkoniandi ábyrgðum.
Það má því miður búast við því
að einhver fyrirtæki stöðvist,"
sagði Halldór að lokum. -SÓL
Kópasker:
Skip frá Grænhöfða-
eyjum til rækjuveiða
í dag er rannsóknarskipið
Fengur væntanlegt til hafnar á
Kópaskeri. Sæblik h.f. er með
skipið á leigu til 25. október og
er ætlunin að það fari til
rækjuveiða.
Rækjuvinnsla hefur að mestu
legið niðri á Kópaskeri í rúmt ár
sökum þess að heimamenn hafa
ekki haft skip til veiðanna. Ýmis-
legt hefur verið reynt til að fá
rækjuskip til staðarins. M.a. var
leitað til stjórnvalda um að veita
undanþágu frá gildandi lögum
um innflutning fiskiskipa, þannig
að hægt yrði að kaupa rækjuskip
erlendis frá. Þeirri beiðni var
hafnað.
„Fengur“ er 157 lesta skip,
smíðað í Slippstöðinni á Akur-
eyri árið 1983. Skipið er í eigu
Þróunarsamvinnustofnunar
íslands og var framlag íslendinga
til þróunaraðstoðar. Það var lán-
að endurgjaldslaust til Græn-
höfðaeyja um óákveðinn tíma.
Skipið hentar vel til ýmissa veiða
og minniháttar rannsókna og er
skráð sem rannsóknarskip. Verk-
efni fyrir skipið á Grænhöfðaeyj-
um eru upp urin í bili og segja má
að skipið sé milli vita, því vænt-
Nýjar leiðir í byggðamálum
28. Fjórðungsþing Norðlend-
inga verður haldið á Siglufírði
um næstu helgi. Rétt til setu á
þinginu hafa 93 fulltrúar, en
búist er við um 140 manns á
þingið er makar og þingmenn
eru taldir með. Aðalmál fund-
arins er „Nýjar leiðir í byggða-
málum“ og mun Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
halda framsöguerindi.
Á þinginu verður skýrsla
byggðanefndar til þingflokkanna
tekin til umfjöllunar og mun
Sigurður Guðmundsson verkefn-
isstjóri nefndarinnar hafa fram-
sögu þar um. Þá verður einnig
fjallað um forsendur landnýting-
aráætlunar og Stefán Thors
skipulagsstjóri hefur þar fram-
sögu. í framhaldi af því verður
rætt um hvernig haga skuli al-
hliða landnýtingu.
Þjóðarátak í samgöngumálum
verður til umfjöllunar, en Fjórð-
ungssambandið leggur á það
áherslu að bættar samgöngur
milli byggða og landshluta sé
stærsta byggðamálið og stór
áfangi til að jafna búsetuskilyrði í
landinu.
Um nýjar leiðir í byggðamál-
um kemur fram að að íbúatala
landsbyggðarinnar utan höf-
uðborgarsvæðisins fari nú lækk-
andi í fyrsta sinn og þar með sé
hafin ein mesta búseturöskun í
sögu landsins. Samhliða fækkun í
undirstöðugreinum hefur vinnu-
aflsþörfin í þjónustugreinum
aukist, en þær eru að meginhluta
á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er
afleiðing vaxandi miðstýringar í
þjóðfélaginu og mun með tíman-
um stefna framtíðarhagsmunum
þjóðarbúsins í hættu, þannig að
Ijóst er að leita þarf nýrra leiða til
að tryggja búsetu í landinu.
Að sögn Áskels Einarssonar
hafa menn komist að þeirri
niðurstöðu að þriðja stjórnsýslu-
stigið sé það sem koma skal, þ.e.
að koma á millistjórnsýslustigi
sem sæki vald sitt til kjósenda í
beinum kosningum og að þetta
stjórnsýslustig fái umsjón með
þorra verkefna sem nú eru í
höndum ríkisvalds. -mþþ
anlega heldur það utan að nýju í
haust. Þangað til hefur Sæblik
skipið á leigu.
Áð sögn Skúla Jónssonar verk-
stjóra hjá Sæbliki h.f. er hluti
aflaverðmætis greiddur í leigu en
ákveðin lágmarksupphæð ef illa
aflast. Áhöfn frá Kópaskeri fór
til Reykjavíkur í gær að sækja
skipið. Það er tilbúið til rækju-
veiða að öðru leyti en því að
heimamenn þurfa að fjárfesta í
trolli til veiðanna.
Auk „Fengs“ munu tveir 70
tonna bátar stunda rækjuveiðar
frá Kópaskeri. Það eru „Ver“ frá
Bakkafirði og „Fagranes" frá
Þórshöfn. Annar verður gerður
út frá Kópaskeri fram í mars en
hinn eitthvað skemur.
Sem fyrr segir hefur rækju-
vinnslan á Kópaskeri verið lokuð
frá því í fyrrasumar, nema hvað
„Rauðinúpur“ nýtti skrapdagana
til rækjuveiða.
15-18 manns munu starfa í
rækjuvinnslunni. Að sögn Skúla
er leigan á „Feng“ bráðabirgða-
ráðstöfun en hún leysir úr brýnum
vanda, því atvinnuástandið á
Kópaskeri hefur ekki verið gott.
Sumir þeirra sem störfuðu í rækj-
uvinnslunni í fyrra voru á
atvinnuleysisskrá í vetur, nokkrir
unnu um tíma á Raufarhöfn og
óku þá á milli en unga fólkið hef-
ur sumt flutt í burtu. BB.