Dagur - 26.08.1986, Blaðsíða 3
26. ágúst 1986 - DAGUR - 3
Uppdráttur af framtíðarskipulagi við Sandgerðisbót.
Mynd: gej-
Akureyri:
Bryggja fyrir 40 smábáta
smíðuð í Sandgerðisbót
Framkvæmdir standa nú ytir I
Sandgerðisbót, þar sem verið
er að smíða bryggju fyrir smá-
báta. Eru það fyrirtækin Vör
og Norðurverk sem vinna
þetta í sameiningu.
Guðmundur Sigurbjörnsson
hafnarstjóri sagði að unnið væri
eftir framtíðarskipulagi sem búið
i væri að gera fyrir smábátahöfn-
ina í Bótinni og væri þetta fyrsta
bryggjan af þremur sem væntan-
lega yrðu smíðaðar þar.
Bryggjan sem Vör og Norður-
verk smíða verður 52,5 m á lengd
og smíðuð úr harðviði. Tilboð
fyrirtækjanna var rúmar 2 millj-
ónir og er harðviðurinn ekki í
þeirri tölu, því höfnin leggur
hann til verksins. Við bryggjuna
verður aðstaða fyrir 40 báta og er
hún hugsuð fyrir þá sem hafa
atvinnu sína af smábátaútgerð.
Unnið við nýju harðviðarbryggjuna.
Verkið sem verið er að vinna í
Bótinni er samkvæmt skipulagi
sem Svanur Eiríksson gerði fyrir
Akureyrarhöfn. Þar kemur fram
að aðstaða fyrir um 175 báta
verður við þær bryggjur sem
smíða á. Einnig er gert ráð fyrir
löndunarbryggju, viðgerðar-
bryggju og húsum þar sem veitt
er þjónusta varðandi viðgerðir
fyrir bátaeigendur. Einnig er
samkvæmt skipulaginu reiknað
með verbúðum og fiskverkunar-
húsum í Bótinni, þar sem fyrir
liggur að flytja alla aðstöðu fyrir
smábáta þangað. Verða því ver-
búðir og annað sem verið hefur í
Slippnum fært þaðan.
Nú er unnið við fegrun á svæð-
inu og er verið að ganga frá við
klappir vestan Bótarinnar. Guð-
mundur vildi taka fram að skólp-
lagnir sem lægju í höfnina yrðu
færðar í sumar, en það verk átti
að vinna á sl. sumri.
Er hann var spurður um að-
stöðu fyrir skemmtibáta á Akur-
eyri sagði hann að hún yrði byggð
við Torfunef, en óvíst væri
hvenær byrjað yrði á því verki.
gej-
Héraðslæknar
skipaðir frá 1. júlí
Skolastakkar með hettu
Tvær gerðir. Stærðir 4-14.
Verð kr. 1.395.
Flauelsbuxur á börn
Stærðir 104-152. Verð kr. 658.
Opið laugardaga 9-12.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Nemendur VMA
athugið
Allra síöasti möguleiki aö skila inn umsóknum um
skólaskírteini er 27. ágúst.
Umsóknir meö upplýsingum um nafn, nafnnúmer,
heimili, aldur og námssvið ásamt einni passamynd,
sendist fyrir 27. ágúst til:
Stjórn Skólafélags VMA
Pósthólf 284,
602 Akureyri.
Otsafd]
Verksmiðjuútsalan Grænumýri 10
opin í dag, síðasti dagur,
athugið að það er
10% aukaafsláttur
af öllum vörum.
Vefnaðarvara frá
kr. 60,00 metrinn.
FATAGERÐIN
Það Kemst
tílshilaíDegi
Áskrift og auglýsingar © (%) 24222^^
Heilbrigðisráðuneytið hefur í
samræmi við 6. gr. laga nr. 59/
1983, um heilbrigðisþjónustu,
skipað eftirtalda heilsugæslu-
lækna til þess að vera héraðs-
læknar frá og með 1. júlí 1986 að
telja til jafnlengdar 1990:
Kristófer Þorleifsson, Ólafs-
vík, héraðslækni f Vesturlands-
héraði.
Bergþóru Sigurðardóttur, ísa-
firði, héraðslækni í Vestfjarða-
héraði.
Friðrik J. Friðriksson, Sauðár-
króki, héraðslækni í Norður-
landshéraði vestra.
Ólaf H. Oddsson, Akureyri,
héraðslækni í Norðurlandshéraði
eystra.
Stefán Þórarinsson, Egilsstöð-
um, héraðslækni í Austurlands-
héraði.
ísleif Halldórsson, Hvolsvelli,
héraðslækni í Suðurlandshéraði.
Jóhann Ágúst Sigurðsson,
Hafnarfirði, héraðslækni í
Rey kj anesshéraði.
Störf héraðslæknis í Reykja-
víkurhéraði eru að lögum bundin
við embætti borgarlæknis, sem
Skúli G. Johnsen, læknir, gegnir.
Meginverkefni héraðslæknis
samkvæmt lögum um heilbrigðis-
þjónustu, er að vera sérstakur
ráðunautur ríkisstjórnar um hvað
eina, er viðkemur heilbrigðismál-
um héraðsins. Hann skal fylgjast
með því að framfylgt sé lögum og
reglum um heilbrigðismál í hér-
aðinu. Hann hefur umsjón með
heilbrigðisstarfi í umboði ráðu-
neytis, í sjúkrahúsum, heilsu-
gæslustöðvum og annars staðar,
þar sem slíkt starf fer fram. Hann
skal annast samræmingu heil-
brigðisstarfs í héraðinu. Enn-
fremur er héraðslæknir formaður
heilbrigðismálaráðs héraðsins,
situr í svæðisnefnd um málefni
fatlaðra og í svæðisnefnd um
heilbrigðiseftirlit sem fulltrúi
heilbrigðisstjórnarinnar.
Fyrst einu sinni
og svo aftur, aftur og aftur
Soðið brauð
og kleinur
bragðast vel.
^ Brauðgerð