Dagur - 26.08.1986, Side 5
26. ágúst 1986 - DAGUR - 5
Ottimi er besta
vömin
Tími varðhunda og þjófa-
bjöllukerfa er nú liðinn, sam-
kvæmt því sem Páll nokkur
Skillcorn í Bretlandi segir. Nú
setja menn tarantúlukóngulær
í búðirnar á næturnar, og passi
sig nú hver sem getur. „Eg
vinn eftir boðorðinu; ótti er
besta vörnin,“ segir Páll. Hann
rekur fyrirtæki, sem hann kall-
ar Tarantúlu öryggisþjónust-
una. Fyrir smá þóknun, kemur
hann lifandi kóngulóm, eða
sporðdrekum fyrir í viðkom-
andi búð, ásamt skilti þar sem
innbrotsþjófar eru varaðir við
áhættunni, sem þeir eru að
taka. Petta hefur hrifið. Blaða-
maður Dags spurði Pál, hvort
ekki væri bara hægt að merja
kóngulóna, eða einfaldlega
koma með flugnabana, eða
sams konar skordýraeitur. Páll
hló við og sagði: „Þú gætir
reynt, en tarantúlur hreyfa sig
margfalt hraðar en manneskj-
ur, þegar þær eru reiðar, svo
áhættan er ekki þess virði.“ En
þekkja blessaðar kóngulærnar
einhvern mun á eigendum og
innbrotsþjófum? Nú varð Páll
dálítið sár, en svaraði því til,
að tarantúlurnar og sporðdrek-
arnir særðu ekki eiganda sinn,
ef þau væru höndluð á réttan
hátt og ekki hrædd skyndilega.
Ekki er það mikil huggun.
Páll með gæiukóngulóna sína hana Margréti.
í júlímánuði stóðu tveir strákar á Möðruvöllum í stórræðum. Þeir smíðuðu
sér myndarlegan kofa, sem líktist helst söluskúr. Síðan söfnuðu þeir að sér
ýmsu nýtanlegu dóti sem íbúar á næstu bæjum gáfu og héldu hlutaveltu í kof-
anum sínum. Ekki gerðu þeir þetta til að safna fjármunum til að greiða áfall-
inn byggingarkostnað, heldur var markmiðið að safna fé til handa kirkjunni
á Möðruvöllum. Þessir ungu menn heita Kristján V. Kristjánsson og Brynj-
ólfur Bjarnason og sjást þeir á myndinni bíða þess að hlutaveltan hæfist. Og
færri fengu miða en vildu. Allt hvarf eins og dögg fyrir sólu og hróðugir
afhentu drengirnir sóknarprestinum 1600 kr. sem gjöf til kirkjunnar sinnar.
Jesendahornid_
Túliníusar-
bryggja er líka tll
Kristján Tryggvason frá Aust-
urhlíð hafði samband við blaðið
og vildi koma athugasemd á
framfæri varðandi bryggjuheiti á
i Akureyri.
Kristján sagði að varðandi
sögu bæjarins hlyti það að skipta
máli að bryggjurnar í bænum
væru kallaðar réttum nöfnum.
Hann benti á að það sem í dag
væri yfirleitt kallað Höepfners-
bryggja væri í raun tvær
bryggjur, Höepfnersbryggja og
Túliníusarbryggja.
„Hér á árum áður voru starf-
ræktar tvær verslanir á þessu
svæði Höepfnersverslun og Túl-
iníusarverslun og höfðu þær sína
bryggjuna hvor. Ég man að þegar
ég ferjaði fólk sem að austan
kom yfir fjörðinn, lenti ég ýmist
við Höepfners- eða Túliníusar-
bryggju. Eins og margir eflaust
muna var gamla Drangi síðan
sökkt suður af Höepfnersbryggju
fyrir nokkrum árum til að minnka
bilið á milli bryggjanna. Það
breytir ekki þeirri staðreynd að
syðri bryggjan heitir Túliníusar-
bryggja en hin er kennd við
Höepfner.“
Kristján sagðist vona að fólk
tæki þetta til athugunar því sér
fyndist slæmt ef annað nafnið
félli niður fyrir fullt og allt.
Þeir sem reynthafa
þjónustuna koma aftur.
* Urbeinum
* Hökkum
★ Pökkum
★ Hamborgara-
mótum
Kjötvinnsla
Simi 22080
þetta cr lykilliuu sut
gódri Qártcstiugu
Erum að hefja byggingu
fjölbýlishúss við Melasíðu
★ Seldar tilbúnar undir tréverk.
☆ Sameign innanhúss og
utan fullfrágengin
- bílastæði malbikuð,
lóð fullfrágengin.
★ Beðið eftir Húsnæðis-
málastjórnarláni.
★ Teikningar og allar
upplýsingar á skrifstofunni.
Grunnmynd
FURUVELLIR 5
AKUREYRI . ICELAND
P. O. BOX 209
SlMAR (96)21332 og 22333