Dagur - 26.08.1986, Síða 9
26. ágúst 1986 - DAGUR - 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Sveitakeppni GSI:
Kvennasveitir
GA valdar
- en ekki Ijóst enn hverjir
skipa karlasveitirnar
Inga Magnúsdóttir sigraði á opna golfmótinu á Eskifirði.
Opna Mazda-mótið:
Sigurður og
Inga sigruðu
ívar Webster.
Körfubolti:
Webster
byrjaður
þjálfun
Meistaraflokkur Þórs í körfu-
bolta sem leikur í 1. deild í
vetur, hefur hafið ætlngar að
fullu fyrir komandi keppnis-
tímabil, undir stjórn hins nýja
þjálfara Ivars Webster.
Webster er mjög stór og sterk-
ur körfuknattleiksmaður og mun
hann jafnframt leika með liðinu.
Hann hefur leikið með Haukum í
Úrvalsdeildinni undanfarin ár
með góðum árangri.
Fyrir í Þórsliðinu eru margir
snjallir körfuknattleiksmenn og
má því búast við góðum árangri
af liðinu í vetur og jafnvel að lið-
ið nái að vinna sér sæti í Úrvals-
deild að ári.
Sveitakeppni Golfsambands
íslands fer fram um aðra helgi.
Keppnin sem stendur yfir í tvo
daga er 72 holu höggleikur án
forgjafar. I karlaflokki eru 4 í
sveit en 3 í kvennasveitum.
Hjá körlunum telja þrír bestu í
hverju liði eftir hverjar 18 hol-
ur en hjá kvenfólkinu telja
tvær bestu.
GA sendir tvær sveitir í hvor-
um flokki og leika báðar karla-
sveitirnar í 2. deild en A-sveit
kvenna leikur í 1. deild og fer sú
keppni fram á Grafarholtsvelli,
B-sveitin leikur í 2. deild.
David Barnwell golfkennari
hjá GA hefur valið í báðar
kvennasveitirnar og í A-sveitinni
eru þær Inga Magnúsdóttir, Jón-
ína Pálsdóttir og Katrín Frí-
Þór-KA
í kvöld kl. 19 leika Þór og KA,
í meistaraflokki karla, knatt-
spyrnuleik á Akureyrarvellin-
um. Viðureignin er minningar-
leikur um Oskar Gunnarsson
er lést í vor.
Frændsystkini Óskars, færðu
knattspyrnudeild Þórs, bikar að
gjöf í sumar, sem þau vildu að
mannsdóttir. í B-sveitinni eru
Árný Lilja Árnadóttir, Andrea
Ásgrímsdóttir og Rósa Pálsdótt-
ir.
Barnwell hefur enn ekki til-
kynnt endanlegt val á karlasveit-
unnuin og mun ekki gera það fyrr
en eftir næstu helgi. En þeir 10
kylfingar sem berjast um þessi 8
sæti eru, Björn Axelsson, Krist-
ján og Ólafur Gylfasynir, Sverrir
Þorvaldsson, Viðar Þorsteinsson,
Þórhallur Pálsson, Árni S.
Jónsson, Sigurður H. Ringsted,
Jón Aðalsteinsson og Konráð
Gunnarsson.
Eins og sést á þessari upptaln-
ingu berjast margir snjallir kylf-
ingar fyrir sæti í sveitunum
tveimur og eru flestir þeirra mjög
ungir að árum.
íkvöld
keppt yrði um til minningar um
hinn látna frænda þeirra.
Að þessu sinni eru það KA-
menn sem mæta Þórsurum en
leikir þessara liða hafa oftast ver-
ið jafnir, spennandi og frekar
skrautlegir á að horfa. Bæði lið
verða með sína sterkustu menn í
kvöld og má búast við jöfnum
leik.
Fyrsta opna golfmótið á vegum
Golfklúbbs Eskifjarðar fór
fram um helgina á Byggðar-
holtsvelli. Það var opna
Mazda-mótið sem haldið var í
tiiefni 200 ára afmælis kaup-
staðarins og 10 ára afmælis
Golfklúbbsins á Eskifirði.
Leiknar voru 36 holur með og
án forgjafar og keppt í karla-
og kvennaflokki. Alls mættu
76 keppendur til leiks.
Það var Mazda-umboðið Bíla-
borg sem gaf öll verðlaunin á
mótinu og voru þau hin glæsileg-
ustu. Einnig voru ýmis aukaverð-
laun og m.a. var bíll í verðlaun
fyrir að fara holu í höggi á 5. braut
en það tókst því miður ekki að
þessu sinni.
í karlaflokki var keppnin jöfn
og spennandi en það var Sigurður
Sigurðsson GS sem sigraði eftir
harða baráttu við Gylfa Garðars-
son GV í keppni án forgjafar.
Úrslitin í karlaflokki urðu þessi:
Án forgjafar:
1. Sigurður Sigurðsson GS 148
2. Gylfi Garðarsson GV 149
3. Björgvin Þorsteinsson GR 156
Með forgjöf:
1. Óskar Garðarsson GE 137
2. Jónas Guðmundsson GR 138
3. Bjartur Finnsson GHH 138
í kvennaflokki var ekki síður
mikil spenna. Eftir hnífjafna
keppni var það Inga Magnúsdótt-
ir GA sem stóð uppi sem sigur-
vegari í keppni án forgjafar en
hún sigraði Ágnesi Sigþórsdóttur
í bráðabana um fyrsta sætið. Úr-
slitin urðu þessi í kvennaflokki:
Án forgjafar:
1. lnga Magnúsdóttir GA 187
2. Agnes Sigþórsdóttir GE 187
3. Erla Charlesdóttir GE 205
Með forgjöf:
1. Agnes Sigþórsdóttir GE 127
2. Erla Charlesdóttir GE 145
3. Inga Magnúsdóttir GA 159
(slandsmeistaramótið í failhlífarstökki:
Siguröur varði
titilinn í fimmta sinn
Knattspyrna:
íslandsmeistaramótið í fall-
hlífarstökki 1986 var haldið á
Hellu dagana 16. og 17. ágúst
og sá Fallhlífaklúbbur Reykja-
víkur um framkvæmd mótsins.
Keppt var í 2 greinum. Fjög-
urra manna sveitir kepptu í
munsturmyndun í frjálsu falli
(4 way Relative Work) og síð-
an var keppt í nákvæmnislend-
ingum.
I munsturmyndun lenti sveit
Fallhlífaklúbbs Akureyrar í 3.
sæti, en sveitir frá Fallhlífaklúbbi
Reykjavíkur urðu í 1. cg2. sæti.
Sveit FKA skipuðu: Kristinn
Kristinsson, Ómar Þór Eðvarðs-
son, Sigurður Baldursson,
Sigurður Bjarklind.
Staðan
3. deild
Staðan í b riðli 3. deildar er
þessi:
Leiftur-Leiknir 7:0
Tindastóll-Þróttur N 2:2
Valur-Reynir Á 1:0
Austri-Magni 3:1
Leiftur 13 10-2- 1 33: 9 32
Tindast. 13 8-4- 131:1128
Þróttur N 13 6-6- 129:15 24
Austri E 13 5-3- 5 18:16 18
Reynir Á 13 5-3- 5 16:16 18
Magni 13 3-4- 6 19:23 13
Valur Rf 13 3-2- 8 17:29 11
Leiknir F 13 0-0-13 3:48 0
í lendingakeppninni gekk
Akureyringum vel. íslandsmeist-
ari í nákvæmnislendingum varð
Sigurður Bjarklind FKA, í öðru
sæti varð Kristinn Kristinsson
FKA og í þriðja sæti Birgir Sigur-
jónsson FKR.
í byrjendaflokki stóð Brynjar
Ágústsson FKA sig mjög vel,
hreppti 3. sætið þrátt fyrir að
Síðastliðinn föstudag hófst að
Laugarvatni, knattspyrnuskóli
K.S.I. þar sem saman eru
komnir 24 efnilegustu knatt-
spyrnumenn landsins sem
fæddir eru árið 1972.
Er skólinn hugsaður sem fyrsti
undirbúningur drengjalandsliðs
1987. í vetur munu síðan bætast í
hópinn piltar sem fæddir eru 1.
ágúst og síðar.
Kennarar skólans verða Lárus
Loftsson, Sigfried Held og Guðni
Kjartansson, þjálfarar K.S.Í.
Einnig munu nokkrir 4. flokks
þjálfarar taka þátt í kennslunni.
Dómari, læknir og matvæla-
fræðingur munu heimsækja skól-
ann og flytja erindi.
hann sé nýbyrjaður að æfa fall-
hlífarstökk.
Geysileg gróska er nú í fall-
hlífarstökki og miklar framfarir
hafa átt sér stað á síðastliðnum
2-3 árum.
íslandsmeistaramót í fallhlífar-
stökki var síðast haldið á Akur-
eyri 1979, og varð þá Sigurður
Bjarklind íslandsmeistari.
Samtíma skólanum munu
drengja- og unglingalandsliðin
dvelja að Laugarvatni við æfing-
ar, hálfa viku hvort lið. Munu lið-
in hittast fyrir austan á þriðjudag-
inn 26. ágúst og leika æfingaleik
áður en drengjaliðið heldur
heim.
Þann dag verður því rjóminn
úr íslenskri ung'.ingaknattspyrnu
saman kominn að Laugarvatni og
því kjörið tækifæri fyrir þá sem
láta sér annt um unglingaknatt-
spyrnuna í landinu að koma og
fylgjast með því sem er að gerast.
Unglingaþjálfarar eru vel-
komnir alla dagana til að fylgjast
með og jafnvel að taka þátt í
starfinu.
Knattspymu-
skóli KSf
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Þorleifur og
Alfreð jafnir
Þeir félagar Þorleifur Ananíasson og Alfreð Ahnarsson sem
hófu getraunaleik Dags að þessu sinni urðu jafnir í 1. umferð,
með 7 leiki rétta. Þeir verða því að reyna með sér aftur en þann-
ig verður það í vetur, að ef menn eru jafnir einu sinni verða þeir
látnir reyna aftur og ef þeir eru jafnir í annað sinn verður hlut-
kesti látið ráða hvor þeirra heldur áfram í keppninni. Alfreð
ætlar að hafa sína röð eins og síðast þar sem hann er ekki á land-
inu til að tippa upp á nýtt. Þorleifur er aftur með nýja röð og
svona lítur spá þeirra út:
Þorleifitr:
Alfreð:
Coventry-Everton
Liverpool-Arsenal
Luton-Newcastle
Man.United-Charlton
Norwich-Southampton
Nottm.Forest-Watford
Oxford-West Ham
Q.P.R.-Aston Villa
Sheff.Wed-Chelsea
Tottenham-Man.City
Wimbledon-Leicester
Portsmouth-Ipswich
Coventry-Everton x
Liverpool-Arsenal 1
Luton-Newcastle 2
Man.United-Charlton x
Norwich-Southampton 1
Nottm.Forest-Watford 2
Oxford-West Ham 1
Q.P.R.-Aston Villa 2
Sheff.Wed.-Chelsea 1
Tottenham-Man. City 1
Wimbledon-Leicester 1
Portsmouth-Ipswich 1
Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fimmtudög-
um svo enginn verði nú af vinningi.
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2