Dagur - 26.08.1986, Qupperneq 11
26. ágúst 1986 - DAGUR - 11
5,4
/ ■ /
■ || ■
omr i nams-
19 íslendingar njóta náms- eöa
rannsóknarstyrkja frá breska
utanríkisráðuneytinu (FCO
Scholarships) en þrír hlutu styrk
frá British Council.
Heildarfjárhæð styrkjanna
nemur nærri 89 þúsund sterlings-
pundum eða um 5,4 milljónum
íslenskra króna.
Námsgreinarnar sem styrkþeg-
ar stunda eru hinar margvísleg-
nstu en í öllum tilfellum nægir
styrkurinn til greiðslu allra skóla-
gjalda í heilt skólaár.
Endurbætur á
gæsluvöllum
í sumar hefur verið unnið við
endurbætur á nokkrum gæslu-
völlum á Akureyri. Búið er að
endurvinna Byggðavöll og
Leiruvöll og næstur í endur-
vinnu er Hlíðavöllur. Blaðið
hafði samband við Jón Ara-
son, umsjónarmann leikvalla
og spurði hann í hverju þessar
endurbætur fælust.
„Við útbúum meiri grassvæði,
það var nokkuð mikil möl á þess-
um völlum. Það eru bæði slétt
svæði og hólar. Hluti af Leiru-
velli var malbikaður og á alla
vellina hefur verið keyrt fínna
efni, þetta verður skemmtilegra
og hlýlegra. Byggðavöllurinn var
stækkaður nokkuð, en það er að
hluta til komið vegna skipulags-
breytinga í hverfinu."
Sagði Jón að þetta væru gamlir
vellir sem nauðsynlegt hefði ver-
ið að fara að endurvinna. Á
hverju ári eru einhverjir vellir
endurbættir og í ár var veitt
1.330.000 til endurbóta á leik-
svæðum í bænum. -HJS
ÉtlN
Bilbeltin skal að
sjálfsögðu spenna
í upphafi ferðar.
Þau geta bjargað lífi í
alvarlegu slysi og
hindrað áverka í minni
háttar árekstrum. Hnakka-
púðana þarf einnig að stilla
í rétta hæð.
Nói Björnsson
Skák:
Noröuriandamót
grunnskólasveita
Norðurlandamót grunnskóla-
sveita í skák 1986 verður hald-
ið í Gerðubergi í Reykjavík
dagana 28.-31. ágúst næst-
komandi. Það eru Skáksam-
band Islands og Taflfélag
Reykjavíkur sem standa sam-
eiginlega að mótinu.
Hvert Norðurlandanna mun
senda sína bestu skólasveit til
keppni. ísland mun þó sem móts-
haldari fá að hafa tvær sveitir í
mótinu, þar eð fjöldi sveita
stendur á stöku. Það eru skák-
sveit Seljaskóla í Reykjavík, sem
sigraði í íslandsmóti grunnskóla-
sveita í maí sl. og skáksveit
Gagnfræðaskóla Akureyrar, sem
varð í 2. sæti.
íslendingar hófu þátttöku í
Norðurlandamóti grunnskóla-
sveita árið 1977 og hafa fimm
sinnum borið sigur úr býtum, og
þrívegis orðið í 2. sæti. Skáksveit
úr Hvassaleitisskóla í Reykjavík
hefur oftast verið fulltrúi íslands
í þessu móti, eða fimm sinnum.
Skáksveit Hvassaleitisskóla sigr-
aði í Norðurlandamóti skólanna
árin 1983, 1984, og 1985, en
komst ekki í úrslitakeppnina að
þessu sinni.
Norðurlandamót grunnskóla-
sveita er eitt af þremur norræn-
um skólaskákmótum, sem haldin
eru árlega til skiptis á Norður-
löndunum. Hin eru Einstaklings-
keppni í norrænni skólaskák og
Norðurlandamót framhalds-
skólasveita. Það síðastnefnda
verður haldið í Finnlandi 17.-19.
október og eigum við þar einnig
Norðurlandameistaratitil að
verja. Fulltrúi íslands í því móti
verður skáksveit Verslunarskóla
íslands, sem er núverandi ís-
landsmeistari.
íslensku sveitirnar eru þannig
skipaðar:
Seljaskóli, Reykjavík:
1. Þröstur Árnason.
2. Sigurður Daði Sigfússon.
3. Sæberg Sigurðsson.
4. Kristinn Friðriksson.
Varam. Snorri Karlsson.
Fyrirliði: Guðmundur Guðjóns-
son.
Gagnfræðaskóli Akureyrar,
Akureyri:
1. Tómas Hermannsson.
2. Bogi Pálsson.
3. Skafti Ingimarsson.
4. Rúnar Sigurpálsson.
Varam. Auðunn Guðmundsson.
Fyrirliði: Gylfi Þórhallsson.
mSHÖDR
árgerðin 1986
Eigum nokkra bíla óselda.
Verð frá kr. 138 þúsund.
Góð greiðslukjör. Hafið samband.
CIrélafnll ef 0r^pnisgötu4
önalalull 51* sími 22255.
Tilboð
óskast í bifreiðina A-5832 sem er Mercedes Benz
1513 árg. ’71,145 hö. díesei.
Bifreiðin selst í núverandi ástandi og er til sýnis við
Bílaverkstæði Dalvíkur.
Uppl. veitir Óskar Jónsson á sama stað í síma
61200.
Tilboð sendist fyrir 1. september Rögnvaldi Frið-
björnssyni, Kaupfélag Eyfirðinga Dalvík.
FJÓRÐUNGSSJUKRAHUSIÐ
Á AKUREYRI
Staða sérfræðings
við Rannsóknadeild í meinafræði við Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri, er iaus til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 22. september nk.
Upplýsingar um stöðuna veitir Margrét Snorra-
dóttir, sérfræðingur deildarinnar í síma 96-
22100.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf, sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins,
Halldóri Jónssyni.
Afgreiðslustúlka
óskast í skódeild Vöruhúss KEA.
Heilsdagsvinna.
Þarf að vera vön afgreiðslu.
Upplýsingar gefur deildarstjóri skódeildar í síma
21400.
Kaupfélag Eyfirðinga
Óskum að ráða
afgreiðslufólk
í hálfs dags störf sem fyrst.
Vinnutími 9-13 og 13-18.
Upplýsingar gefur verslunarstjóri, ekki í síma.
MATVÖRU
MARKADURINN
Kaupangi.
Akureyrarvöllur ■ kvöid ki. 19
Þór
Leikur þessi er minningarieikur
um Óskar Gunnarsson
Erlingur Kristjánsson
adidas '
VÖRf
BATASMIÐJA