Dagur - 27.08.1986, Page 1
69. árgangur Akureyri, miðvikudagur 27. ágúst 1986 158. tölublað
- bilið sem þarf að brúa skiptir milljörðum króna
Þingflokksfundur Framsóknarflokksins:
Fyrirsjáanlegur halli
á fjáilögum næsta árs
Framsóknarflokkurinn hélt
þingflokksfund á Sauðárkróki
um helgina. Aðalmál fundar-
ins var umræða um fjárlögin
en nokkur önnur mál voru reif-
uð auk þess sem þingmennirnir
heimsóttu ýmis fyrirtæki á
svæðinu.
Að sögn Guðmundar Bjarna-
sonar verður gífurlega erfitt að
láta enda ná saman við fjárlaga-
gerðina.
„Það kemur svo sem ekkert á
óvart þegar þess er gætt að tekju-
stofnar ríkissjóðs hafa farið lækk-
andi á síðustu árum, vegna
skattalækkana og niðurfellingar
ýmissa tolla. Þessi tekjuskerðing
ríkisins hefur fyrst og fremst bitn-
að á opinberum framkvæmdum
og við ræddum það á fundinum
að gera þyrfti ráðstafanir til að
veita auknu fé til hafnarfram-
kvæmda sérstaklega, en þær hafa
verið óverulegar sl. tvö ár,“ sagði
Guðmundur.
mötuneyti og gæslu á heimavist-
um. Á fjárlögum þessa árs er gert
ráð fyrir 200 milljónum króna til
þessara hluta en menntamálaráð-
herra hefur lagt til að fjárlögum
næsta árs verði 25 milljónum var-
ið til þessara hluta og þá aðallega
til að leysa vanda þeirra sveitar-
félaga sem erfiðast eiga með að
standa undir auknum kostnaði
vegna þessa.
„Það var almennt álit fundar-
ins að þessi leið komi ekki til
greina öðruvísi en með þeim
hætti að Jöfnunarsjóður sveitar-
félaga komi þá að verulegu leyti
inn í þetta dæmi til að jafna
kostnaðinn á milli sveitarfélag-
anna,“ sagði Stefán.
Rætt var um erfiða stöðu sjáv-
arútvegsins og þá sérstaklega
fiskvinnslunnar og fram kom að á
næstu dögum verði að taka á því
hvernig leysa beri fjárhagsvanda
fiskvinnslunnar. Bankamálin og
þá sérstaklega erfið staða
Útvegsbankans, komu til um-
ræðu en ekki tókst að ljúka
afgreiðslu á þeim málaflokki.
Ákveðið var að halda annan
þingflokksfund strax í næstu
viku. BB.
Mynd: RÞB
Fyrsta merki haustsins.
Vatnsskortur á Siglufirði
—Vatnsþörfin um 70 sek. lítrar en dælurnar sem dæla vatninu frá Hólsdal anna ekki
nema 60 sek. lítrum - geysileg vinna við fiskvinnslu að undanförnu
Á fundinum kom fram að eins
og málin standa núna er fjárlaga-
gatið stórt og það bil sem þarf að
brúa skiptir milljörðum. Jafnvel
þótt einhver ný tekjuöflun komi
til, verkefni verði færð yfir til
sveitarfélaga og enn frekari
sparnaður náist í ríkisrekstrin-
um, er fyrirsjáanlegur halli á fjár-
lögum næsta árs.
Að sögn Stefáns Valgeirssonar
voru fundarmenn sammála um
að ófært væri að samþykkja til-
lögur menntamálaráðherra hvað
varðar niðurskurð fjárveitinga til
skólaaksturs í dreifbýli. Svo sem
kunnugt er hefur menntamála-
ráðherra lagt til að ríkið hætti að
greiða akstur skólabarna í dreif-
býli á móti sveitarfélögunum auk
þess að taka þátt í kostnaði við
Talsvert hefur borið á því að
undanförnu að vatnsskortur
væri á Siglufirði og hefur þetta
komið sér sérstaklega illa varð-
andi fiskvinnsluna í bænum.
Ástæða þessa er að kalda-
vatnsþörf bæjarins er talin
vera rúmlega 70 lítrar/sek. en
dælurnar sem dæla vatninu til
bæjarins frá Hólsdal anna ekki
nema 60 Iítrum/sek.
„Við þurftum ekki að stoppa
því við gátum bjargað okkur á
leynivopni sem ég er ekkert að
upplýsa hvert er,“ sagði Gísli
Elíasson verksmiðjustjóri hjá
Síldarverksmiðjum ríkisins á
Siglufirði er Dagur ræddi við
hann í gær, en litlu munaði í
fyrradag að hætta yrði loðnu-
bræðslu hjá verksmiðjunum.
Gísli sagði að hann vildi ekki
gera mikið úr þessu, þetta hefði
allt bjargast að þessu sinni, en
hann neitaði því ekki að þetta
vandræðaástand væri fyrir hendi
á staðnum.
Óhemjumikil atvinna hefur
verið á Siglufirði að undanförnu.
Þar hefur verið tekið á móti 14
þúsund tonnum af loðnu og hefur
loðnubræðslan gengið vel. Þá
hefur gífurlegur rækjuafíi borist
til Siglufjarðar að undanförnu,
allt að 50 tonn á dag í nokkurn
tíma.
Menn á Siglufirði hafa af því
talsverðar áhyggjur að skortur
muni verða á fiskverkunarfólki
þegar skólafólkið hverfur af
vinnumarkaðinum upp úr mán-
aðamótunum. Skólakrakkarnir
hafa unnið geysilega mikið í fisk-
vinnslunni í sumar og hefur verið
unnið um flestar helgar. Nú er
unnið við að standsetja Hótel
Hvanneyri og er ætlunin að Þor-
móður rammi fái þar inni fyrir
fólk sem ætlunin er að fá til fisk-
vinnslu á næstunni, alls 20 til 30
manns. gk-.
Blönduós:
Unnið við
klæðingu gatna
Um þessar mundir er unnið
kappsamlega að undirbúningi
á lagningu klæðingar á um 12-
1300 metra gatna á Blönduósi.
Einnig er verið að vinna að
klæðingu á veginn sem liggur í
„Bastian er börnunum verstur"
- Ekkert varð af tónleikum Stuðmanna
Síðastliðið mánudagskvöld
stóð tii að gleðisveitin Stuð-
menn héldi konsert í Dyn-
heimum á Akureyri, En á síð-
ustu stundu fór svo að ekkert
varð úr. Að sögn Jakobs
Magnússonar voru sveitinni
settir afarkostir á síðustu
stundu sem ekki var hægt að
ganga að.
Afarkostir þessir voru settir af
embætti bæjarfógeta og munu
Stuðmenn því ekki hafa leikið
fyrir aðdáendur sína í Hrísey í
gærkvöld. „Að líkindum má ætla
að langt verði þar til eyfirsk ung-
menni geti hlýtt á tónlist okkar
þar eð Bastian bæjarfógeti virðist
okkur ekki hliðhollur mjög.
Bastian er börnunum verstur,“
sagði Jakob.
Að sögn Sigurðar Eiríkssonar
fulltrúa bæjarfógeta höfðu Stuð-
menn ekki sótt um tilskilin leyfi
til skemmtanahaldsins og hefði
embættið einungis farið fram á að
farið væri eftir reglum um
skemmtanir, þannig að ef trallið
hafi niður fallið væri það á
ábyrgð Stuðmanna sjálfra.
Þess má geta að fjölmargar
hljómsveitir hafa leikið undan-
farið í Dynheimum og hafði
Sigurður ekki hugmynd um hvort
þær hafi aflað sér áðurnefndra
leyfa. En þannig er reyndar mál
með vexti að aldrei hefur þurft að
sækja um skemmtanaleyfi fyrir
samkundu sem þessa í Dynheim-
um og reyndar er það með öllu
óþekkt, að sögn Jakobs, að yfir-
völd reyni að hafa af unglingum
það litla sem fyrir þá er lagt.
„Æskulýðsstarf et alls staðar
rekið með bullandi tapi og einum
of mikið að skattleggja það líka,
því snýst málið um það að við
viljum alls ekki veita það for-
dæmi að skattleggja svona
viðburð, bæði hússins vegna og
svo þeirra sem á eftir munu
koma,“ sagði Jakob.
Einhverra hluta vegna var
samt ráðist í að kanna málin
skömmu áður en Stuðmenn ætl-
uðu að hefja leik sinn og fjöl-
mörg ungmenni máttu því sjá á
bak Stuðmanna og eftir stóðu
gáttaðir starfsmenn Dynheima.
Eða eins og Jakob sagði „Við
erum sárir og finnst þetta illa gert
gagnvart æsku Akureyrar, þetta
beinist fyrst og fremst gegn henni
því það sjá allir að þetta er ekki
ferð til fjár né heldur ferðin fyrir-
hugaða til Hríseyjar." BV
gegnum Blönduós, það eir kafl-
ann frá Blönduósi að rimla-
hliðinu fyrir ofan staðinn.
Einnig verður lagt á smá kafla
Svínvetningabrautar, eða rétt
upp fyrir aðkeyrsluna að Héraðs-
hælinu. Mun þar fyrst og fremst
vera um að ræða rykbindingu, en
ekki varanlega framkvæmd.
Samkvæmt heimildum Dags
náðist nýlega samkomulag um að
Vegagerðin stæði straum af
kostnaði við lagningu klæðingar á
þjóðveg eitt, sem liggur um
Blönduós, en ágreiningur hefur
verið um það hvort hreppurinn
eða Vegagerðin ætti að bera
þennan kostnað. Áætlaður
kostnaður við gatnagerðarfram-
kvæmdir á vegum hreppsins er
um það bil 900 þúsund krónur,
en þá á eftir að draga frá þann
hluta sem ætti að koma úr
Byggðastofnun, eða nánar tiltek-
ið svokallað þéttbýlisvegafé.
Gert er ráð fyrir að framkvæmd-
um verði lokið í kringum næstu
mánaðamót. Það er fyrirtækið
Borgarverk í Borgarnesi sem sér
um lagningu klæðingarinnar.
G.Kr.