Dagur - 27.08.1986, Side 2
2 - DAGUR - 27. ágúst 1986
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, GESTUR E. JÓNASSON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRfMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
JeiðarL
Snúum vöm í sókn
í nýjasta tölublaði þjóðmálarits Sambands ungra
framsóknarmanna, „Sýn“ er að finna athyglisverða
grein eftir Helga Pétursson blaðafulltrúa, þar sem
hann fjallar um áróður þann sem beitt hefur verið
gegn Framsóknarflokknum á undanförnum árum.
Helgi segir m.a.:
„Það vill svo til að til þess að Framsóknarflokkur-
ínn eigi menn á þingi og nái þannig fram sínum
málum, þarf hann að fá atkvæði kjósenda. Og til
þess að við njótum atkvæða kjósenda, þurfa þeir að
vita hver okkar staða er, hver okkar þáttur er í
stjórn og sögu þessarar þjóðar. Andstæðingum
okkar hefur tekist að snúa því tímabili sem flokkur-
inn hefur átt aðild að ríkisstjórnum, - einu mesta
framfaratímabili í sögu þjóðarinnar, upp í and-
hverfu sína og kalla það „Framsóknaráratuginn",
með neikvæðum formerkjum.
Þeir komast upp með það. Þeir hafa auðvitað ekki
haldið því á loft, að Framsóknarflokkurinn er eini
stjórnmálaflokkurinn sem hefur þorað að takast á
við þau vandamál sem við hafa blasað undanfarin
ár. Þeir hafa miklu frekar reynt að klína á Framsókn-
arflokkinn öllu því sem miður hefur farið á þessu
tímabili, sem vissulega er margt, enda hefur víða
verið borið niður. Þeir hafa hins vegar gert lítið úr
því að Framsóknarflokkurinn hefur ekki starfað
einn allan þennan tíma, - allir stjórnmálaflokkarnir
hafa komið nærri ríkisstjórnum undanfarin ár.
Þar hefur vissulega margt mátt betur fara, en þar er
ekki við Framsóknarflokkinn einan að sakast.
Ungu fólki er gjarnan bent á það núorðið, af and-
stæðingum okkar, að Framsóknarflokkurinn sé
afturhaldssamur og þröngsýnn. Minna er látið með
það að í tíð ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar
hafa orðið einhverjar þær mestu breytingar í lífi
þjóðarinnar, sem orðið hafa undanfarna áratugi,
svo miklar að fólk áttar sig kannski ekki á þeim.
í stjórnartíð ríkisstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar hefur verið unnin sigur á einum mesta böl-
valdi sem sótt hefur að þjóðinni, óðaverðbólgu. í
stjórnartíð Steingríms Hermannssonar hefur öllu
fyrirkomulagi á sjávarútvegi verið gjörbreytt. í tíð
þessarar ríkisstjórnar hafa verið gerðar stórkostleg-
ar breytingar á ríkisrekstri, í peningamálum og
bankamálum og nýsköpun í atvinnulífi hefur verið
sett á oddinn. Allt er þetta gert fyrir tilstilli Fram-
sóknarflokksins í ríkisstjórn Steingríms Hermanns-
sonar. Það er ekki von til þess að andstæðingarnir
haldi þessu á lofti. “
Þessi orð Helga Péturssonar eru orð í tíma töluð.
Framsóknarmenn verða að taka sér tak og vinna
markvisst að því að verjast þeim ósanngjarna áróðri
sem pólitískir andstæðingar flokksins hafa haft í
hávegum. Máttur fjölmiðla er mikill og allir vita
hvílík áhrif góð áróðurstækni hefur.
Framsóknarmenn hafa ekki lært að notfæra sér
fjölmiðia á sama hátt og pólitískir andstæðingar
þeirra. Það hefur komið niður á fylgi flokksins á
undanförnum árum. Það er kominn tími til að snúa
þessari þróun við. Snúum vörn í sókn. BB.
_j/iðtal dagsins.
Sighvatur Karlsson og Auður Björk Ásmundsdóttir í garðinum við Húsa-
víkurkirkju.
Sighvatur Karlsson, guðfræðingur:
„Ef Guð er með
okkur, hver er
þá á móti okkur?“
Viðtal dagsins er við Sighvat
Karlsson guðfræðing sem er
eini umsækjandinn um Húsa-
víkurprestakall. Sighvatur er
jReykvíkingur, fæddur 12. feb.
1959. Hann útskrifaðist frá
Háskóla íslands 1. mars sl., en
hefur starfað á Elliheimilinu
Grund síðan um áramót, en
síðastliðin 3-4 ár hefur hann
verið nokkurs konar matvinn-
ungur á heimilinu, heimsótt
fólkið og stundum séð um
morgunbænir. Á námsárunum
vann Sighvatur í sjö sumur í
Hvalstöðinni í Hvalfirði.
Sighvatur er kvæntur Auði
Björk Ásmundsdóttir sem
er matartæknir að mennt
og vinnur sem slík í eldhúsi
Borgarspítalans. Auður er
einnig Reykvíkingur og jafn-
aldra Sighvats, Jiau eiga
þriggja ára dreng, Ásmund.
Fyrst er Sighvatur spurður um
tildrög umsóknar sinnar um
Húsavík.
„Það var svolítið skemmtilegur
aðdragandi að því, í sumar
ákváðum við að fara í hringferð
um landið og skoða í leiðinni
Heydalsprestakall í Breiðdal. Á
leiðinni stoppuðum við m.a. á
Kirkjubæjarklaustri, Höfn í
Hornafirði og Djúpavogi, en þar
hittum við fyrir kunningja minn
sr. Sigurð Ægisson og þar frétt-
um við að enginn væri búinn að
sækja um Húsavíkurprestakall
sem kom mér mjög mikið á
óvart.
Við fórum samt og skoðuðum
Heydali og leist sæmilega á stað-
inn en þá ákváðum við að koma
við á Húsavík. Komum hingað í
leiðindaveðri, þoku og rigningu
en samt fannst mér bærinn ein-
hvern veginn virka vel á mig. Við
höfðum komið við hjá sr. Sigurði
á Grenjaðarstað og hann hvatti
mig til að skoða Húsavík, þar
væri góður staður og gott fólk.
Ég hef alltaf heyrt að Þingeyingar
væru ákaflega hressilegt og
skemmtilegt fólk og innan um
slíkt fólk líður mér vel, er sjálfur
frekar félagslyndur og gæti ekki
hugsað mér að vera einn í heirn-
inum.
Ég ákvað að sækja um Húsa-
vík fyrst enginn hafði sótt um, en
þegar ég kem á Biskupsstofu með
umsóknina þá er Torfi Stefáns-
son búinn að sækja um. Samt
ákveð ég að láta bréfið fara í
hendur biskupsritara. Þegar
umsóknarfresturinn var liðinn og
ég, guðfræðingurinn stóð eftir
sem eini umsækjandinn, en Torfi
hafði dregið umsókn sína til
baka, þá fannst mér þetta vera
sérstök handleiðsla Guðs.
Upphaflega fékk ég köllun til
þessa starfs og með því að fara út
í starfið er ég að hlýða þessari
köllun sem ég fékk fyrir sex
árum, að fara út á akurinn, boða
Guðs orð og þjóna fólkinu, starfa
sem prestur eins vel og ég get.
Ég held að Guð vinni á ólíkan
hátt með okkur mannfólkið, þó
að hann eigi sitt erindi við okkur
öll. í fyrstu þegar mér fannst Guð
vera að grípa inn í mitt líf var ég
ekki alveg sáttur við að Guð væri
að tala við mig, vildi ekkert við
Guð tala, vildi bara vera ég sjálf-
ur og fara eftir þessu gamla; hver
er sjálfum sér næstur, og lifa eftir
því. En ég komst aldeilis ekki upp
með það. Guð hafði eitthvað
annað að segja, ég hafði beðið
hann um staðfestingu á þessari
köllun og hana fékk ég.
Ég hef fundið fyrir handleiðslu
Guðs og er afskaplega þakklátur
fyrir að Guð hafi veitt mér þetta
tækifæri á Húsavík, finnst eins og
hann hafi lokið upp fyrir mér dyr-
um og sagt sem svo: „Jæja Sig-
hvatur, stattu þig nú drengur“.“
- Nú eruð þið komin aftur til
Húsavíkur í betra veðri, hvernig
líst ykkur á land og fólk?
„Þetta er ákaflega góður stað-
ur hérna, frábært bæjarstæði og
fallegt. Ég hef aldrei átt heima
utan Reykjavíkur og sumir prest-
ar segja að ég ætti frekar að fara
á einhvern minni stað þar sem ég
gæti gert mínar vitleysur í friði, í
stað þess að koma í þessa stóru
og glæsilegu kirkju og fara að
þjóna við altarið. En ég treysti
mér alveg til þess, því ef Guð er
með okkur, hver er þá á móti
okkur? Maður verður að hafa
djörfung og kjark til að takast á
við þetta starf og mér finnst ákaf-
lega gott að ég sku ekki standa
einn, það er að segja: Ég hef Guð
og Auði mína í verki með mér,
það er ég sannfærður um, það er
gott fólk hér í barnastarfinu og
öðrum störfum safnaðarins. Ég
veit að Húsvíkingar eru gott og
jákvætt fólk, opið fyrir nýjum
vindum og hressandi blæ í kirkju-
legu tilliti. Ég vona að Húsvík-
ingar taki okkur vel og hafi þolin-
mæði fram á veturinn meðan ég
er að komast inn í starfið. Okkur
líður afskaplega vel hérna núna.
Við gengum þessa rómantísku
leið upp með Búðaránni og ég
óska ykkur til hamingju með
þennan gróðursæla reit sem
skrúðgarðurinn er, hann á eftir
að blómstra."
- Þó að þú sért eini umsækj-
andinn þurfa að fara fram prests-
kosningar.
„Ég vona að Húsvíkingar sýni
ekki sinnuleysi, mér er ljóst að
margir sem gjarnan vildu kjósa
eru að heiman en ég vildi hvetja
þá sem heima eru til að neyta
atkvæðisréttar síns, minnast þess
að ungur guðfræðingur er að
sækja hér um starf og það gæti
fært kirkjulífi hér á staðnum víta-
mínsprautu, en slíkt gerist ekki
nema með þátttöku safnaðarins.
Þegar kjósandi fer á kjörstað
er hann þátttakandi í safnaðar-
starfi, finnur til ábyrgðar og er
ekki sama hvern hann velur til
þjónustu. Hvaða starfi sem fólk
gegnir vill það fá góðar móttökur
og persónulega mundi mér þykja
mjög vænt um að fá lögmæta
kosningu. Ég vona að fólk og
fjölskyldur á Húsavík ræði þessi
mál og ákveði að smala fólki á
kjörstað. Ég lofa Húsvíkingum
að gera mitt besta til að kirkjulíf
á staðnum blómgist og vaxi því
það er hægt að gera mjög
skemmtilega hluti ef allir eru
opnir fyrir nýjungum. Kirkjan er
ekki í eðli sínu steinrunnin stofn-
un heldur lifandi samfélag. “
- Áhugamál þín, hverju mun
presturinn sinna í tómstundum?
„Ég mundi gjarnan vilja taka
þátt í kórstarfi, því ég hef áhuga
á söng og stundaði söngnám í
Söngskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar í þrjú ár. Ég fer mikið í
sund og hef einnig áhuga á að
vinna með ungu fólki. Á mínum
yngri árum stundaði ég borðtenn-
is, hér á staðnum er að rísa nýtt
og glæsilegt íþróttahús og ég gæti
vel hugsað mér að þjálfa borð-
tennislið, það gæti verið
skemmtilegt og ég hefði gott af
að hreyfa mig.“
Að lokum sagði Sighvatur:
„Ef ég næ kosningu komum
við hjónin hingað í október og þá
er að hefjast handa. Ég hef mik-
inn áhuga á barna- og unglinga-
starfi, einnig þjónustu við sjúka
og aldraða en hér er gott sjúkra-
hús og elliheimili. Þessu vil ég
öllu sinna. Ég ætla að hafa það að
markmiði mínu að gefa mig að
fólkinu og minna okkur þannig á
að við erum öll eitt í Jesú Kristi."
Prestskosningarnar á Húsavík
eru ákveðnar sunnudaginn 14.
sept. Á kjörskrá eru 1820 manns,
þannig að til að kosningin verði
lögleg þurfa 910 að kjósa og til að
Sighvatur nái lögmætri kosningu
þurfa 455 kjósendur að greiða
honum atkvæði sitt. IM