Dagur - 27.08.1986, Blaðsíða 3
27. ágúst 1986 - DAGUR - 3
Skák:
Helgi í klukkufjöltefli
Helgi Ólafsson, stórmeistari í
skák var með námskeið fyrir
unglinga nú um helgina. Eftir
námskeiðið tefldi hann klukku-
fjöltefli við níu unglinga. Helgi
hlaut átta og hálfan vinning gegn
hálfum. Það var Tómas Her-
mannsson sem gerði jafntefli við
meistarann.
Á sunnudagskvöld tefldi Helgi
annað klukkufjöltefli og þá við
fjórtán þátttakendur, eldri og
yngri. Allir félagar í Skákfélagi
Akureyrar.
í þessu fjöltefli fékk Helgi tíu
og hálfan vinning gegn þremur og
hálfum. Þeir Friðgeir Kristjáns-
son, Skafti Ingimarsson og Tóm-
as Hermannsson unnu Helga en
Árni G. Hauksson gerði við hann
jafntefli.
Þeir Skafti og Tómas eru að-
eins fimmtán ára gamlir.
Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda:
Endurskoða þarf
milliliðakostnaðinn
Á fyrsta aðalfundi Landssam-
bands sauðfjárbænda, sem
haldinn var að Hólum í Hjalta-
dal um síðustu helgi, voru regl-
ur um fullvirðisrétt talsvert til
umræðu. í ályktun sem gerð
var á fundinum kemur fram að
bændum finnst þessar reglur,
ekki ráðast að rótum vandans,
sem sé minnkandi sala á dilka-
kjöti.
Fundurinn lagði mikla áherslu
á að verði á lambakjöti verði
haldið jafnlágu og það er í dag og
framleiðslan verði ekki minnkuð
frekar og haldist svipuð og hún
var á verðlagsárinu ’84-’85.
Til lækkunar á dilkakjöti til
neytenda taldi fundurinn að
endurskoða yrði framleiðslu-
kostnað allan og milliliðakostn-
aðinn. Fram kom að bændur vilja
bæta framleiðslu sína enn frekar
og minnka hvata til að framleiða
feitt kjöt.
Stjórn Landssamtaka sauðfjár-
bænda var að mestu endurkjörin.
Formaður er Jóhannes Kristjáns-
son úr Mýrdal en aðrir í stjórn
eru Sigurður Jónsson Stóra-
Fjarðarhorni, Eysteinn Sigurðs-
son Arnarvatni, Aðalsteinn
Aðalsteinsson Valbrekku og
Magnús Guðmundsson Odd-
geirshólum, sem var kosinn í
stað Rúnars Hálfdánarsonar sem
gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
-þá.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Skólasetning
verður í Akureyrarkirkju sunnudaginn 31. ágúst
kl. 5 síðdegis.
Skólameistari.
FRÁ GRUNNSKÓLUM
AKUREYRAR
Kennarafundir verða í öllum grunnskólum bæjarins
mánudaginn 1. sept. nk. kl. 10 f.h. Vegna undirbún-
ingsvinnu og kennaranámskeiða á vegum fræðsluyf-
irvalda, dagana 2.-5. sept., skulu nemendur ekki
mæta í skólana fyrr en mánudaginn 8. sept. og þá
sem hér segir:
í Gagnfræðaskóla Akureyrar:
9. bekkur kl. 09.00.
8. bekkur kl. 10.30.
7. bekkur ki. 13.30.
í öðrum skólum:
9. bekkur kl. 09.00.
4.-6. bekkur kl. 10.00.
7.-8. bekkur kl. 11.00.
1.-3. bekkur kl. 13.00.
Skólasvæðin verða óbreytt miðað við sl. skólaár
nema hvað nú mun Síðuskóli hafa 7. bekki, en
nemendur 7. og 8. bekkja Oddeyrarskóla fara í aðra
skóla svo sem þeim hefur verið gerð grein fyrir.
Forskólakennslan hefst föstudaginn 12. sept., en
áður munu viðkomandi kennarar hafa samband við
heimili þeirra barna, sem innrituð hafa verið.
Forskólagjaldið er 1000 krónur og greiðist í tvennu
lagi (sept. og janúar).
Innritun þeirra barna, sem flust hafa í bæinn eða milli
skólasvæða, fer fram í skólunum þriðjudaginn 2.
sept. kl. 1-4 e.h. (símar á kennarastofunum).
Athugið þá breytingu, að nú hefja allar unglinga-
deildir skólanna störf mánudaginn 8. september.
Skólastjórar.
Áhrifamikill auglýsingamiðill
Þrumuknall
á Húsavík
fösiudagskvöldið 29. ágúst
Matseðill:
Reyktur lax m/dilleggi.
Fjallalamb m/jurtasósu.
Bakaðar ferskjur.
Bítlavinafélagið leikur
Mamman og strákarnir skemmta. Bingó, ferðavinningar.
Óvæntar uppákomur.
Stjórnandi samkomunnar er Arnar Björnsson.
Hötel
Húsið opnað kl. 19.00.
Matur framreiddur kl. 20.00.
Borðapantanir í síma 41220.
HÚSaVÍk sími 41220.
- þar sem hlutirnir gerast -
The Midrughtsun
Hote!