Dagur - 27.08.1986, Blaðsíða 7
27. ágúst 1986 - DAGUR - 7
Myndir og texti:
Þórhallur Ásmundsson
Jóhannes og Anna að hreinsa til í eldhúsinu. Verið að rétta vcgginn af með
því að skera úr honum.
þjóðminjavörður. Þó er ég ekki
með þessu að skora á Þór Magn-
ússon þjóðminjavörð að vinna
þessi verk. En hann var fyrir-
myndar maður hann Kristján
heitinn," sagði Jóhannes að
lokum.
Aðstoðarmaður hans, Anna
Margrét Stefánsdóttir, sagðist
eiga ættir sínar að rekja í Skaga-
fjörðinn. Faðir hennar hefði
fæðst í Eyhildarholti, en hún væri
fædd í Rangárvallasýslunni. Hún
sagðist hafa gaman af að dunda
við svona hleðslu og hafi farið á
námskeið á Kjalarnesinu sem
hópur áhugamanna um forn-
hleðslur stóð fyrir. „Það var nátt-
úrlega lítið sem maður lærði af
því að gagni. Mér finnst bara
synd ef þetta handbragð er að
deyja út með kynslóðinni hans
Jóhannesar. Það er orðið baga-
legt hvað fáir kunna þetta og
jafnvel ætti að styrkja fólk sem
vill læra þetta handbragð. Ef við
ætlum að geta tekið sómasamlega
á móti ferðafólki sem kemur til
að skoða land sögunnar, þá verð-
um við að geta sýnt þeim mann-
virki og annað tengt sögunni.
Eins finnst mér mjög sniðugt að
nota þetta gamla handbragð í
annað en húsabyggingar, garð-
hleðslur og annað á lóðum sem
Jóhannes hefur verið að gera.“
-þá
Þórarinn Vilbergsson,
Vitum ekki hvað
verkefnaskortur er
- segir Þórarinn í Dráttarbraut Siglufjarðar
Það var mikið um að vera
niður við hafnargarðinn á
Siglufirði á dögunum þegar
blaðamaður Dags var þar á
ferðinni. Siglfirðingur ný-
kominn og orðinn mikið og
glæsiiegt skip sem verið var
að gera klárt á veiðar. Þá var
verið að landa úr Sigluvíkinni
sem hafði komið að landi
með fullfermi. Við hafnar-
bakkann er Dráttarbraut
Siglufjarðar, gamalt og gróið
fyrirtæki með sína aðstöðu.
Þar höfðu menn í nógu að
snúast en Þórarinn Vilbergs-
son verkstjóri gaf sér samt
tima til að spjalla aðeins við
blaðamann.
Aðspurður sagðist Þórarinn
vera fæddur Stöðfirðingur og
vera orðinn löggilt gamalmenni
67 ára. Hann hefði komið hing-
að frá Akureyri, þar sem hann
hafi lært tréiðn, árið 1945 til að
vera verkstjóri við byggingu
Síldarverksmiðja ríkisins sem
voru byggðar hérna árin 1945-
46. Dráttarbrautin hafi verið
stofnsett um 1940 og hann hafi
tekið hana á leigu fyrir tuttugu
árum. Síðan hafi Byggingafé-
lagið Berg keypt fyrirtækið fyrir
fjórum árum og Dráttarbrautin
því rekin í tengslum við það
fyrirtæki í dag. Þórarinn sagði
nóg að gera bæði hjá Dráttar-
brautinni og Bergi. Alveg
feiknamikið að gera hjá þeim í
slippnum í sumar og búið að
lofa verkum langt fram á vetur.
Þetta væri svo sem ekki óvana-
legt hjá þeim í slippnum, þeir
hefðu alltaf haft nóg að gera og
vissu ekki hvað verkefnaskortur
væri.
„Við getum tekið allt að 150
tonna skip upp í slippinn og
þjónum meirihluta þessarar
stærðar bátaflotans alveg frá
ísafirði og vestur á Drangsnes.
Já,ég tel okkur vera vel í stakk
búna til að sinna þessum verk-
efnum. Við erum með góða
smiðju hérna sem við höfum
haft góða samvinnu við í sam-
bandi við alla vélavinnu, Véla-
verkstæði Jóns og Erlings. Sér-
staklega í sambandi við stærri
verkefni eins og t.d. í vetur þeg-
ar sjór skemmdi brýrnar bæði á
Sigluvíkinni og Sveinborginni,“
sagði Þórarinn Vilbergsson. Þá
kvað hann mjög gott atvinnulíf
vera á Sigluíirði og búið að vera
það lengi. Þar hefðu allir nóg að
gera. -þá
Frá dráttarbrautinni.