Dagur - 27.08.1986, Qupperneq 11
27. ágúst 1986 - DAGUR - 11
Þeir Einar Már Guðmundsson og Pálinar Edvardsson fundu þessa fallegu
kisu fyrir tveimur dögum. Ef einhver kannast við að eiga þennan kött getur
hann haft samband í síma 22346 eða komið við í Borgarhlíð 6 d og sótt
gripinn. Mynd: RÞB
Sölu spariskírteina
ríkissjóðs hætt
Fyrirtækið
mitt
- Ný fróðleg handbók
frá Félagi íslenskra
iðnrekenda
í þessum mánuði kemur út
handbókin Fyrirtækið mitt,
sem gefín er út af Félagi
íslenskra iðnrekenda og ætluð
er því fólki, sem hefur áhuga
og hugrekki til að stofna eigið
fyrirtæki eða rekur nú lítið
fyrirtæki.
Bókin er þannig uppbyggð, að
lesa má hvern kafla óháðan
öðrum. Fyrirtækið mitt er ætlað
til stuðnings og ráðgjafar öllum
þeim er hyggjast leggja sitt af
mörkum til nýsköpunar í
atvinnulífi þjóðarinnar. Bókin er
skrifuð á mjög aðgengilegu máli
og því auðlesin og aðaláherslan
er lögð á hagnýtar upplýsingar,
en ekki háfleygar fræðikenning-
ar.
Ástæðan fyrir því að F.Í.I.
stendur að útgáfu þessarar bókar
er tvíþætt. I fyrsta lagi hefur
félagið löngum talið minni fyrir-
tæki skipta miklu fyrir heildar-
þróun íslensks atvinnulífs. í öðru
lagi hafa starfsmenn félagsins
orðið varir við áþreifanlega þörf
fyrir handbók eins og Fyrirtækið
mitt. Sambærileg bók hefur ekki
komið fyrr út hér á landi.
Fyrirtækið mitt er fyrst og
fremst fræðslu- og uppflettirit,
sem nýtist vel við úrlausnir marg-
víslegra vandamála, sem snúa að
rekstri og stofnun fyrirtækja.
Fyrírtækið
mTtt!
A
ftlXGISlENSKRA
Bókin skiptist í eftirfarandi kafla:
Frá hugmynd til aðgerða, út á
markaðinn, hugmynd og
framkvæmd, fjármögnun, form
og fyrirtæki, stjórnun fyrirtækja
og skatta- og launamál. Aftast
eru viðaukar eins og íslenska
sjóðakerfið, stofnun hlutafélags,
dæmi um einfaldan stofnsamn-
ing, samþykktir fyrir hlutafélagið
og sameignarfélagssamningár.
Höfundar þessarar fræðslu-
bókar F.Í.I. eru Páll Kr. Pálsson,
Guðmundur Ágúst Pétursson og
Úlfar Þórðarson. Almenna bóka-
félagið sér um dreifingu.
Pað er von Félags íslenskra
iðnrekenda, að bókin Fyrirtækið
mitt eigi ekki aðeins eftir að
verða mönnum nokkur hjálpar-
hella við stofnun og rekstur
minni fyrirtækja, heldur verði
hún einnig til þess að stuðla að
vandaðri og skipulegri vinnu-
brögðum í rekstri og auka þar
með vöxt og viðgang íslensks
atvinnulífs.
SPENNUM
BELTIN
sjálfra
okkar
vegna!
Fjármálaráðherra hefur
ákveðið að um næstu mánaða-
mót verði hætt sölu þeirra
spariskírteina ríkissjóðs, sem
nú eru á boðstólum, og mun
ríkissjóður ekki bjóða fram ný
skuldabréf almennt á fjár-
magnsmarkaði á þessu ári. Hins
vegar mun eigendum eldri
spariskírteina, sem innleysan-
leg verða síðar á árinu, gert til-
boð um að skipta á þeim og
nýjum skírteinum sem beri
6,5% vexti, en eldri innleysan-
leg skírteini bera nú 3,7-4,2%
vexti.
Sala spariskírteina ríkissjóðs,
sem borið hafa 7-8% vexti, hefur
gengið vel og þegar hefur aflast
ríflega sú fjárhæð sem ráð var
fyrir gert í áætlunum þessa árs.
Er því ekki ástæða til að ríkis-
sjóður keppi á næstunni um nýtt
fjármagn við banka og atvinnulíf.
Má ætla að þessi ákvörðun verði
til að lækka vexti annarra aðila
sem um þetta fjármagn keppa. í
því sambandi ber að hafa í huga,
að ákvæði nýrra bankalaga um
aukið frelsi innlánsstofnana til
vaxtaákvarðana koma til fram-
kvæmda 1. nóvember n.k.
Viðræður fulltrúa ríkisvaldsins
við lífeyrissjóðina í tengslum við
hið nýja húsnæðislánakerfi munu
halda áfram á mánudag.
Til leigu eða sölu
150 fm iðnaðar- og/eða verslunarhúsnæði við
Óseyri. Upplýsingar í símum 21744 á daginn og
24300 eftir kl. 19.00.
Laus staða
Verðlagsstofnun á Akureyri óskar eftir að
ráða starfsmann í 50% hlutastarf eftirlits-
manns. Æskilegt er að umsækjandinn hafi
verslunarpróf eða sambærilega þekkingu.
Umsækjandi þarf að hafa bifreið til umráða.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist Verðlagsstofnun, Glerárgötu
20, 600 Akureyri fyrir 31. ágúst nk.
Upplýsingar um starfið eru veittar í síma 91-
27422.
Verðlagsstofnun.
FLUGLEIDIR
Flugleiðir hf. vilja ráða starfsmann
við flugstöðina á Akureyrar-
flugvelli sem fyrst
Starfið er fólgið í fermingu og affermingu flugvéla,
ásamt almennum vöru- og farþegaafgreiðslu-
störfum.
Nokkur tungumálakunnátta nauðsynleg.
Umsóknareyðublöð fást í farþegaafgreiðslunni á Akureyrar-
flugvelli.
FLUGLEIDIR
Viljum ráða tvo
menn til starfa
í málningadeild okkar.
Upplýsingarveitir verksmiðjustjóri í síma21165.
Efnaverksmiðjan
Sjöfn.
Rösk og áhugasöm stúlka
óskast til léttra starfa
hálfan eða allan daginn.
Vinsamlega leggið nafn, heimilisfang og síma-
númer inn á afgreiðslu Dags sem allra fyrst merkt
„Rösk og áhugasöm".
S.U.F.- þing
Sambandsþing SUF hið 21. verður haldið í Hrafnagils-
skóla í Eyjafirði 29.-30. ágúst 1986.
Dagskrá:
Föstudagur 29. ágúst.
1. kl. 16:00
2. kl. 17:00
3. kl. 17:15
4. kl. 17:20
5. kl.17:45
6. kl. 18:00
7. kl. 19:00
8. kl. 20:00
9. kl. 20.30
10. kl. 22:30
Mæting
Þingsetning,
Finnur Ingólfsson formaður SUF.
Kosning starfsmanna þingsins:
a. Þingforsetar (2)
b. Þingritarar (2)
c. Kjörnefnd(8)
Skýrslastjórnar
a. Formanns
b. Gjaldkera
Ávörp gesta
Framsóknarflokkurinn. Afl nýrratíma.
a. Staða Framsóknarflokksins í
íslenskum stjórnmálum.
b. Niðurstöður þjóðmálakönnunar SUF
c. Megináherslur Framsóknarflokksins
í stjórnmálum næstu árin.
Kvöldverður
Kynning á drögum að ályktunum.
a. Stjórnmálaályktun
b. Megináherslur Framsóknarflokksins
í íslenskum stjórnmálum næstu árin.
Almennarumræður
Kvöldvaka
Laugardagur 30. ágúst.
1. kl. 8:00 Morgunverður
2. kl. 8.30 Nefndarstörf
a. Stjórnmálanefnd
b. Flokksmálanefnd
3. kl. 12:00 Hádegisverður
4. kl. 13:00 Knattspyrna, sund
5. kl. 14:00 Kynning á álitum nefnda, umræður og
afgreiðsla mála.
6. kl. 17:30 Kosningar
7. kl. 18:00 Önnurmál
8. kl. 19:30 Þingslit
9. kl. 20:00 Kvöldskemmtun.
Sunnudagur 31. ágúst
1. kl. 10:00 Morgunverður
2. kl. 12:00 Lagtaf staðfráHrafnagilsskóla.
Stjórnin