Dagur - 27.08.1986, Qupperneq 12
Þjónusta fyrir
háþrýstislöngur
olíuslöngur og barka
Pressum
tengin á
Fullkomin tækni
vönduð vinna
- vegna hátíðarinnar 17. júní“
segir Skúii Lórenzson
„Þessi beiðni kom vegna þess
að kostnaður við hátíðahöldin
var það mikill að félagið hefði
fengið lítið í sinn hlut, þrátt
fyrir að 50-60 manns hafi unnið
að undirbúningi dagsins,“
sagði Skúli Lórenzson, sem
stjórnaði 17. júní hátíðinni á
Heimilið 86:
Kynning á
sjávarútvegi
„Sjávarútvegsráðuneytið ætlar
að vera með bás á Heimilissýn-
ingunni, til að minna fólkið í
landinu á gildi sjávarútvegs
fyrir þjóðina,“ sagði Halldór
Asgrímsson sjávarútvegsráð-
herra í samtali við Dag.
Halldór sagði að sjávarútveg-
urinn hefði lent í neikvæðri
umræðu og því veitti ekki af að
taka þátt í svona sýningu.
„Mér finnst Reykvíkingar sér-
staklega þurfa á fræðslu að halda,
því í Reykjavík er mikið um fólk
sem veit lítið um sjávarútveg. Á
sýningunni ætlum við að reyna að
fá fólk til að hugleiða hvað sjáv-
arútvegurinn hefur upp á að
bjóða,“ sagði Halldór að lokum.
-SÓL
Akureyri í ár.
Undanfarin ár hefur venjan
verið sú að íþróttafélögin Þór
KA og Skátafélag Akureyrar
hafa skipst á að sjá um fram-
kvæmd þjóðhátíðardagsins í
bænum. Hefur bærinn veitt
ákveðna upphæð til þess félags
sem séð hefur um daginn. í ein-
hverjum tilfellum hafa félögin
fengið eitthvað fyrir mikla sjálf-
boðaliðsvinnu, eftir að hafa borg-
að skemmtikröftum fyrir sitt
framlag.
„Við þurftum að sækja alla
skemmtikrafta til Reykjavíkur,
auk þess sem við vildum bjóða
upp á góða skemmtun, en því
miður hefur verið misbrestur á
því í gegnum tíðina. Þessu fylgir
mikill kostnaður við ferðir, fæði
og gistingu, auk launa. Því var
lítið eftir þegar dæmið var gert
upp. Þess vegna fórum við fram á
aukafjárveitingu að upphæð 100
þúsund krónur, sem voru v.eittar
af bæjarráði," sagði Skúli.
Að þessu sinni voru veittar 580
þúsund krónur til hátíðarinnar og
sagði Skúli að tap hefði ekki
orðið, „en lítið verið eftir handa
félaginu. Með þessari aukafjár-
veitingu fær félagið 220 þúsund í
sinn hlut og er það of lág upphæð
að margra mati, því geysileg
vinna er við þetta,“ sagði hann.
gej-
íþróttahúsið á Siglufirði:
Hmm tilboð bámst
Á mánudag voru opnuð tilboð
í klæðningu, einangrun og frá-
gang þakboga íþróttahússins á
Siglufírði. Alls bárust fímm til-
boð í verkið. Að sögn Þráins
Sigurðssonar, bæjartækni-
fræðings á eftir að meta þessi
tilboð.
Tvö frávikstilboð bárust, frá
Byggingavöruverslun Kópavogs
og Barkareiningum í Hafnarfirði
og þrír heimaaðilar buðu í
verkið. Með lægsta tilboðið af
þeim var Byggingafélagið Berg
en hin fyrirtækin sem buðu í
verkið voru Húseiningar og
Sigurður Konráðsson ásamt fleir-
um.
Að sögn Þráins er mjög lítill
munur á þessum tilboðum, þau
eru á bilinu 130-134% yfir kostn-
aðaráætlun. Hann sagðist ekki
hafa skýringu á því hvers vegna
tilboðin hefðu öll verið yfir
kostnaðaráætluninni. Kostnaðar-
áætlun var miðuð við tvær bygg-
ingaraðferðir, annars vegar ein-
ingasmíði fyrir 6,399 milljónir en
hins vegar hefðbundna bygging-
araðferð á 6,927 milljónir.
Völdu Berg og Húseiningar
einingaaðferðina en Sigurður
Konráðsson og fleiri hefðbundnu
aðferðina. Þessu verki á að vera
lokiðfyrir 1. júlí ánæstaári. -þá
Aðeins meiri sól og aðeins fleiri kvenmenn sögðu hádegisdrengirnir við sundlaugina. Mynd: rþb
Skagafjörður:
Kjötið geymt í héraðinu
- minna peningastreymi suður
Á hverju hausti hefur hingað
til þurft að senda kjöt frá slát-
urhúsinu á Sauðárkróki suður
til frystingar vegna skorts á
frystirými á staðnum. Hefur
þetta verið bagalegt auk þess
sem talsverðir fjármunir hafa
flust úr héraðinu á ári hverju.
Engar reglur hafa gilt um leigu
á frystigeymslum og hefur stund-
um þurft að taka dýrt leigupláss
til Ieigu út úr neyð. En í haust
þarf lítið sem ekkert að flytja
suður til frystingar þar sem kaup-
félagið hefur fengið til leigu
frystirými í frystigeymslu hjá
Melrakka h/f, sem er í byggingu.
Á frystigeymslan að verða tilbúin
í lok seplember.
Það verða allt að 400 tonn af
Krossanes:
Ný soðtæki í notkun fljótlega
„Það er erfítt að vinna við
breytingar á verksmiðjunni
þegar vinnslan er í fullum
gangi, en það er verið að setja
upp ný soðkjarnatæki núna,“
sagði Geir Zoéga fram-
kvæmdastjóri Krossanesverk-
smiðjunnar.
Undanfarið hefur verið unnið
við uppsetningu á soðkjarnatækj-
um, og komast þau í gagnið á
næstu dögum. Tækin eru keypt
að hluta til frá Noregi og frá
Varmaverki í Hafnarfirði. Geir
sagði að mikið verk hefði verið
unnið að undanförnu við upp-
setninguna og væru menn ánægð-
ir með að fá þessi tæki í gagnið
þar sem gömlu soðtækin hefðu
verið ónýt. Verð á nýju soð-
kjarnatækjunum er um 15 millj-
ónir króna.
Um frekari endurnýjun tækja
verksmiðjunnar sagði Geir að
afkoma yfirstandandi vertíðar
réði miklu um það. „Þessi fram-
kvæmd var nauðsynleg þar sem
gömlu tækin voru ónýt. Okkur
langar að gera mikið í sambandi
við breytingar og er fyrirhuguð
endurnýjun á gufukatli og gufu-
þurrkara. Um breytingar á hús-
um verksmiðjunnar er ekkert
ákveðið. Þó eru til hugmyndir á
teikniborðinu og ráðast fram-
kvæmdir af afkomu verksmiðj-
unnar," sagöi Geir Zoéga. gej-
kjöti sem munu verða geymd í
geymslum þessum í vetur. Ölafur
Friðriksson, kaupfélagsstjóri,
sagði hagsmuni þessara fyrir-
tækja fara ákaflega vel saman.
Að hausti og vetri þegar kjötið
mun vera í geymslu hafa þeir
Melrakkar litla þörf fyrir þetta
geymslupláss undir fóðurvöru
sína. Ólafur kvað 1,5 millj. kr.
verða eftir í héraðinu í stað þess
að fara í greiðslu á frystiplássi
fyrir sunnan. Sagðist Ólafur
reikna með að í haust mundu
falla til 700-750 tonn af kjöti við
sauðfjárslátrun og er það því
rúmlega helmingurinn af því
kjöti sem rúmast í frystigeymsl-
um Melrakka þegar þar að
kemur. -þá
Loðnuverð:
„A að vera fijálst“
erfitt að ákveða fast verð til langs
tíma. Hins vegar finnst mér það
ekki eiga við með bolfisk,“ sagði
Halldór að lokum. -SÓL
- segir sjávarútvegsráðherra
„Loðnuveiðar hafa gcngiö
mjög illa. Það hcfur að vísu
fundist loðna á Vestfjarðamið-
um. Menn eru að vonast eftir
góðum markaði fyrir loðnu-
hrogn og frysta loðnu, þannig
að menn geta kannski vonast
eftir betra verði fyrir afuröirn-
ar en hingað til hefur fengist,“
sagði Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráðherra.
Það hafa alltaf verið sveiflur í
loðnuverði og það breytist að
sjálfsögðu í september, í nýja
verðtímabilinu. „Hins vegar hef
ég alltaf talið að loðnuverð ætti
að vera frjálst. Þá verða menn að
koma sér saman um verðið eftir
þeim aðstæðum sem búið er við.
Og einmitt þegar svona mikil
ólga er eins og nú, þá er mjög
Akureyri:
„Gífurlegur
kostnaður“