Dagur - 05.09.1986, Qupperneq 5
5. september 1986 - DAGUR - 5
Það máreyna að setja
fleiri íslandsmet
- Bima Björnsdóttir sunddrottning tekin tali
- Góðan daginn Birna. Okk-
ur dauðlangar að spjalla dálítið
við þig.
- Já, allt í lagi.
- Nú tókst þú þátt í maraþon-
hlaupinu um daginn, varstu eini
keppandinn frá Akureyri?
- Já, ég held það. Og þykir
mér það ansi lélegt.
- Hvernig gekk?
- Ég hljóp hálft maraþon-
hlaup og gekk bara vel. Það
rigndi nokkuð fyrsta spölinn en
ágætis veður eftir það. Nei,
þetta er ekkert óskaplega erfitt
ef maður er í góðri æfingu.
- Kannski ekki, en það var
önnur íþróttagrein sem ég ætlaði
að ræða við þig um. Mér skilst
að þú sért upprennandi sund-
drottning og hafir sett nokkur
íslandsmet?
- Já, ég hef sett þrjú íslands-
met og einhver Akureyrarmet.
- Er uppgangur hjá Óðni?
- Það má kannski segja það.
Nú æfa nokkuð margir og þjálf-
ari er Jóhann Möller, en að vísu
þjálfar hann okkur bara af því
að það fékkst enginn þjálfari,
þannig að ástandið er ekki alveg
nógu gott. Svo hefur það alltaf
verið þannig að krakkar sem
byrja að æfa hætta því yfirleitt
um 15-16 ára, ef ekki fyrr. Þeir
missa bara áhugann.
- Pannig að þetta er eins og í
fimleikunum; flestir hætta áður
en þeir verða fullorðnir.
- Já, því miður gefast krakk-
arnir upp of snemma. Hætta
kannski áður en árangurinn er
almennilega kominn í ljós.
- Er nokkur tími fyrir aðrar
íþróttir?
- Jú, ég hef aðeins spilað fót-
bolta með KA í 2. flokki.
- Snúum okkur þá frá íþrótt-
unum að sinni. Hvað ertu gömul
og hverra manna ertu?
- Ég er þrettán ára og byrja í
Gagnfræðaskólanum í haust.
Foreldrar mínir eru Björn
Axelsson og Anna Karlsdóttir.
Nú, svo á ég tvo bræður. Annar
þeirra heitir Axel Björnsson.
Hann æfir með unglingalands-
liðinu í handbolta, eða réttara
sagt æfði með því. Hann er víst
orðinn of gamall núna.
- Fékkstu eitthvað að gera í
sumar?
- Já, ég vann við mini-golf-
brautirnar sem sundfélagið var
með. Krakkarnir í félaginu
unnu þarna í sumar. Það veitir
ekki af að efla sundfélagið.
- Var aðsókn þá góð?
- Já, hún var bara mjög góð
og ágætt að vinna þarna.
- Hvað með önnur áhuga-
mál. Hefurðu áhuga á tónlist?
- Aðeins, ég hlusta nú ekkert
mikið á hana.
- Pú ert þá ekki forfallin
Duran Duran aðdáandi?
- Neeei, eiginlega ekki.
- En hvað með aðrar
skemmtanir. Finnst þér gaman
að dansa?
- Ja, ég hef nú lítið kynnst
því að fara á ball. Krakkar fara
oft í Dynheima eftir að þeir eru
byrjaðir í Gagnfræðaskólanum,
en ég veit ekki, kannski fer ég
eitthvað þangað.
- Er ekki bærilegt að vera
unglingur á Akureyri?
- Jú, það er alveg ágætt. Það
er gott að búa hér, fallegt
umhverfi og skemmtilegt fólk.
- Heldurðu að það sé öðru-
vísi að búa í Reykjavík?
- Já, það er ábyggilega allt
annað. Miklu meira stress og
svoleiðis. Meira um unglinga-
vandamál.
- Jæja Birna. Að lokum lang-
ar mig að spyrja þig: Ætlarðu að
halda áfram að setja íslands-
met?
- Já, það má reyna það.
- Og halda áfram að æfa í
mörg ár?
- Alveg örugglega. Ég fer
ekkert að gefast upp á næstunni.
- Pað er gott að heyra. Ég
óska þér góðs gengis og þakka
þér kærlega fyrir spjallið.
Þá er bara að bíða og sjá. SS
Gylfi Ægisson leikur fyrir matargesti
föstudagskvöld, laugardagskvöld og sunnudagskvöld
Pantanir í síma 96-61751. Verið velkomin.
0!^ Veitingahúsið Brekka
Húsnæði
Til leigu 350 fermetra húsnæði
(efri hæð) á góðum stað í bænum.
Lofthæð er 3 metrar.
Húsnæðið hentar fyrir margháttaða starfsemi -
léttan iðnað - skrifstofur - þjónustu - verslun.
Sala á húsnæðinu hugsanleg. Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 24001.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Nemendur og fyrrum
nemendur V.M.A. athugið
Vegna fyrirhugaðs bókamarkaðar, vinsamlega skilið
inn gömlum bókum á sal tæknisviðs, fimmtudag og
föstudag milli kl. 17 og 19, merktum með nafni og
verðhugmynd.
* Léttum undir, verslum ódýrara *
Stjórn Skólafélags V.M.A.
FJölskyldutílhod
á Súlnabergí
sunnudaginn 7. sept.
Spergilsúpa,
reykt grísalæri
með rauðvínssósu
Aðeins 360.-
Frítt fyrir börn að 6 ára aldri. Hálft verð fyrir börn frá 6-12 ára
★
Laugardagskvöldið 6. sept
Kristinn Örn Kristinsson og Lilja Hjaltadóttir
leika fyrir matargesti
Dansleikur
Hin stórgóða hljómsveit
Geirmundar Valtýssonar
heldur uppl stanslausu fjöri til kl. 03.
ATH. Sídastidansleikur hj/ómsvoHar
Geirmundar Vaitýssonar á hóteiinu
í suntar
Matargestir ath. að panta borð tímanlega því
síðustu helgar hefur verið uppselt í mat
Verið velkomin.
HÓTEL
KEA ^ AKUREYRI