Dagur - 05.09.1986, Blaðsíða 7

Dagur - 05.09.1986, Blaðsíða 7
5. september 1986 - DAGUR - 7 NBA deildinni bandarísku. Ég get byrjað að spila með landslið- inu núna, en ég veit ekki hvort það verður, það myndi kosta mikil ferðalög. Ég hef mikinn áhuga á að leika með landsliðinu en það á eftir að koma í ljós hvort það verður.“ - Af hverju valdirðu að koma til Akureyrar? „Mig langaði að fá aftur reynslu í þjálfun. Ég vil spila með liöi sem þarf að byggja upp, það er skemmtileg vinna. Draumur- inn er að fá góða reynslu í að þjálfa og verða síðan aðstoðar- þjálfari Einars Bollasonar með landsliðið eftir 2-3 ár. Ég verð að sýna það hér með Þórsliðið hvers ég er megnugur til að sá draumur rætist." Draumurinn að koma Þórsliðinu í Urvalsdeild - Stefnirðu að því að koma Þórsliðinu í Úrvalsdeild? „Já, það er draumurinn. Það ætti ekki að taka lengri tíma en 2 ár og ef liðið nær vel saman gæti það tekið 1 ár. Það tekur 2 ár að gera það sem ég ætla að gera með liðið og ég réð mig hingað í 2 ár. Fyrri helmingur keppnistímabils- ins verður erfiður vegna þess að það vantar enn 5 menn í liðið sem koma ekki fyrr en í lok sept- ember. Það veldur erfiðleikum hve fáir eru á æfingum. Ég er hræddastur við ÍR liðið. Við spil- um fyrsta leikinn við þá og ef við náum að vinna hann er ég bjart- sýnn á gengi liðsins í vetur. Þórsliðið var fyrir nokkrum árum eitt af bestu liðum landsins og takmarkið er að koma því aft- ur í röð bestu liða. Það verður erfitt og mun kosta mikla vinnu. Ég vona að á heimaleikjum liðs- ins verði áhorfendabekkir þétt setnir fólki sem hvetur liðið. Það er mjög mikilvægt. En það verð- ur að hafa það í huga að það er ekki ég einn sem kem liðinu áfram, í leiknum er ég aðeins einn af liðinu og við ætlum allir í sameiningu að gera liðið gott. Ég get ekkert gert einn, annars hef ég ekki hitt nema helming liðsins enn og get því kannski lítið sagt enn sem komið er. Ég vona að það gerist það sama með Þórsliðið og Hauka. Þeg- ar ég kom fyrst til Hafnarfjarðar var handboltinn hæst skrifaður, þá fótboltinn og körfuboltinn neðstur. Síðan urðu Haukar bikarmeistarar 2 ár í röð og eftir það var körfuboltinn hæst skrifaður. Það var meira um körfuboltann í sjónvarpinu og þar með uppgötvaði fólk að það er spilaður körfubolti víðar en í Reykjavík og Njarðvík." - Hvernig líst þér á Akureyri? „Mér líst vel á bæinn, hann er virkilega fallegur. Ég hef aðeins verið hér í 3 vikur og því er lítil reynsla komin á dvölina hér ennþá. Mér finnst ég ekki ennþá eiga heima hérna, en ég er vanur þ\’í, ég er búinn að flytja svo oft. Þegar ég kom fyrst til Hafnar- fjarðar fyrir tveimur árum vakti ég mikla athygli fyrst en eftir nokkra mánuði hætti fólk að taka sérstaklega eftir mér og mér fannst ég vera eins og heima. Það er ekkert skrítið þó ég veki athygli, í fyrsta lagi er ég mjög hár, í öðru lagi svartur, í þriðja lagi útlendingur og í fjórða lagi spila ég körfubolta. Það sögðu allir við mig fyrir sunnan þegar ég ákvað að fara til Akureyrar að það væri svo erfitt að kynnast fólkinu hér. En mér finnst það síður en svo, mér finnst í rauninni auðveldara að kynnast fólki hér. Það er gott og slæmt fólk ajls staðar og ég er bjartsýnn á að okkur muni líða vel hér.“ -HJS Á hverju ári útskrifast 2000 körfuboltaspilarar úr háskólum í Bandaríkjunum. 200 komast í lið í sínu heimalandi. En hvað eiga hinir 1800 að gera? Þeir fara að leika með liðum út um allan heim, aðallega í Evrópu, segir Ivar. borg í 1500 manna bæ. En eftir 2 mánuði var ég eins og heima hjá mér. Fyrstu jólin mín að heiman voru í Borgarnesi og þau voru ósköp indæl. Ég eignaðist fljót- lega fullt af vinum þar. í Borg- arnesi var svertingi á undan mér að spila körfubolta, hann hafði komið vel fram og það hjálpaði mér.“ - Aldrei orðið fyrir aðkasti? Fólk hafði gert sér ákveðna ímynd af svertingjum „Fyrst eftir að ég kom og fór á ball komu alltaf einhverjir og voru með leiðindi, höfðu kannski séð mig í blöðunum og sjónvarp- inu og áttu eitthvað vantalað við mig. Svo hitti ég kannski sömu mennina daginn eftir og þá voru þeir eins og allt aðrir menn. Fólk breytist svo ótrúlega mikið með víni. Ég verð helst fyrir aðkasti frá drukknu fólki, en ég hef lært að hafa stjórn á mér, leiði þetta hjá mér eins og ég get. Ég varð mikið var við að fólk hafði gert sér ákveðna ímynd af svertingjum, hélt að þeir væru allir eins. Fólk fékk þessar hug- myndir úr fjölmiðlum. Þar með þóttist það þekkja mig, vita nákvæmlega hvernig ég var. En þetta var röng mynd. Það væri eins og ef ég þekkti einn hvítan mann og héldi að allir hvítir menn væru eins og þessi maður. Annars fer þetta mikið eftir fólkinu sjálfu. Margir af þeim körfuboltamönnum sem komu hingað voru bara heima, mættu á æfingar kl. 6 og blönduðu ekkert geði við fólkið í landinu. Ég ferð- aðist víða um Bandaríkin og lærði að hafa samskipti við hvern sem var. Ef ég hitti fólk sem mér leiðist þá forða ég mér bara. Ég get tekið dæmi af einum körfu- boltaspilaranum sem kom hingað. Hann var feiminn og hlédrægur og honum einfaldlega leiddist hérna. Ég ráðlagði hon- um að fara í bíó, á böll og umgangast fólkið. Ég gerði það, ég get ekki setið aðgerðalaus, verð alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Ég á orðið nokkra mjög góða vini á Islandi, en ég þekki marga, svona kunningjar sem maður heilsar á götu.“ Langar ekki að flytja aftur til Bandaríkjanna - Saknarðu ekkert Bandaríkj- anna? ívar segir að íslenskur körfubolti sé 70-80% betri en þegar hann kom hingað til lands áriö 1979. fóru íslensku leikmennirnir að þora að sýna hvað í þeim bjó. Þjálfararnir hafa líka batnað mikið. Það er nóg að líta á lands- liðið. Það var í C-keppninni en er nú í B-keppninni, liðið er gott en það vantar háa menn í það. Ef ég og Pétur Guðmundsson værum í því væri þetta topplið. Pétur get- ur ekki spilað með íslenska landsliðinu af því hann spilar í „Jú, jú, ég sakna margs þaðan. Ég hef farið þangað þrisvar sinn- um síðan ég flutti til Islands og ég er búinn að sjá það að mig langar ekki til að eiga heima þar lengur. Ég myndi ekki flytja aftur til Bandaríkjanna nema miklir pen- ingar væru í boði. En auðvitað sakna ég margs. Körfuboltans, fjölskyldunnar og það er margt sem ekki er hægt að kaupa á ís- landi. Ég fæ ekki tilbúin föt á mig hér, þarf að láta sérsauma allt. Mér finnst ísland hafa marga góða kosti. Ég hef ferðast víða, t.d. til Svíþjóðar, Finnlands, Noregs og Frakklands. ísland er ólíkt öllum öðrum löndum, og að sjálfsögðu gjörólíkt Fíladelfíu. Mér finnst það vera eins og Disneyland í samanburði við stórborgir í Bandaríkjunum. Hér er hægt að skilja húsið eftir ólæst og börnin geta leikið sér örugg úti á götu. Ég vil ekki að börnin mín alist upp í Bandaríkjunum. Kannski í litlum bæ, en ekki við þau skilyrði sem ég ólst upp við.“ Snúum okkur þá að körfubolt- anum. Hvenær byrjaðir þú að æfa hann? „Ég byrjaði 14 ára að spila körfubolta. í Bandaríkjunum er körfubolti mikið spilaður úti og ég hef lagt það til að hér verði gerðir fleiri körfuboltavellir úti og síðan verði spilað úti næsta sumar. Það yrði til þess að ungir krakkar fara að spila. Það er eins með körfuboltann, handboltann og fótboltann, að þjálfun barna og unglinga skiptir mestu máli. Það skilar sér eftir 2-3 ár. Ungu krakkarnir eru framtíðin.“ íslenskur körfubolti hefur tekið miklum framförum - íslenskur körfubolti? „Hann hefur tekið miklum framförum og er um 70-80% betri en þegar ég kom hingað fyrst. Þá voru öll lið með erlenda leikmenn og þeir skoruðu 30-40 stig í hverjum leik, en hinir skutu 2-3svar á körfuna. Eftir að er- lendir leikmenn voru bannaðir með fslenskum liðum hefur körfuboltinn batnað mikið. Þá

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.