Dagur - 05.09.1986, Page 8
8 - DAGUR - 5. september 1986
Knattspyrna
helgarinnar
Um helgina veðrur næstsio-
asta umferðin í 1. og 2. deild á
íslandsmótinu í knattspyrnu
leikin og úrslitaleikirnir í
neðri deildunum fara einnig
fram.
í 2. deild leika Einherji og
Völsungur á Vopnafirði á laugar-
dag kl. 14 en leikir UMFN og KA
í Njarðvík og Víkings og KS í
Reykjavfk fara fram á sunnudag
ieiKa sinn síðasta leik í deildinni
á laugardag en þá fá þær ÍBK í
heimsókn. Leikurinn fer fram á
Þórsvellinum og hefst kl. 14.
Tónleikar í
Húsavíkurkirkju
kl. 14.
UBK og Þór leika á Kópavogs-
velli í 1. deildinni á sunnudag kl.
16.
Leiftur og ÍR leika til úrslita í
3. deildinni kl. 14 á laugardag og
fer leikurinn fram á Akureyrar-
vellinum. KA og Stjarnan Íeika
til úrslita í 2. deild kvenna á sama
tíma á laugardag og fer leikurinn
fram á Stjörnuvelli í Garðabæ.
Stelpurnar í 1. deildar liði Þórs
Sunnudaginn 7. september halda
Guðrún Sigríður Friðbjörnsdótt-
ir sópransöngkona og Ulrik Óla-
son píanisti og organisti tónleika
í Húsavíkurkirkju. Á efnisskránni
verða aríur úr óratóríunni Mess-
ías eftir Hendel, íslensk og er-
Iend lög af nýútkominni plötu
Guðrúnar og lög eftir Friðrik
Jónsson organista á Húsavík. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 17.00.
IM
Köflóttar barnabuxur
st. 116-156. Verð kr. 970.-
Fóðraðir barnastakkar og
buxur úr vinnufataefni
st. 116-149. Verð kt. 2280 settið.
Barnakuldagallar
st. 104-128. Verð kr. 2598.- settið.
Stakkar á fullorðna
st. S-M-L-XL. Verð kr. 1950.
Flauelsbuxur á fullorðna
st. 40-48. Verð 850.
Opið laugardaga frá kl. 9-12.
Eyfjörö
Hjalteyrargötu 4 - sími 22275
E
V/SA
0 SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Iðnaðardeild - Akureyri
Okkur vantar verkstjóra
á kvöldvakt (eöa skiptivakt dv./kv.) og flokks-
stjóra á dagvakt og kvöldvakt.
Æskilegt er aö viökomandi séu vanir meöferö
véla. Umsóknarfrestur er til 12. september nk.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma
21900 (220-222).
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Sími (96)21900
$ SAMBAND fSIENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Iðnaðardeild - Akureyri
Óskum eftir að ráða
fóik til starfa
á næturvakt í skinnaiönaöi. Vaktin er frá kl.
01.35-07 aö morgni.
Þarna er um tímabundna vinnu aö ræöa, eöa til
mánaðamóta nóv./des. 1986.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma
21900 (220-222).
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Sími (96)21900
Flestir þeir sem fylgjast með
íþróttum hafa heyrt nöfn
bræðranna Garöars og Gylfa
Gíslasona en þeir voru (og
eru) tveir af okkar bestu lyft-
ingamönnum í olymískum lyft-
ingum. Þeir bræður hafa nú
síðastliðin þrjú ár, búið í Sví-
þjóð og fyrir tæpu ári tóku þeir
sér sænskan ríkisborgararétt.
Garðar var hér á ferð í vik-
unni, ásamt sænskri unnustu
sinni og Dagur náði tali af honum
og spurði hann fyrst hver aðdrag-
andinn að því að þeir bræður
fluttu út, hafi verið.
„Fyrir rúmum þremur árum
lentum við Gylfi í útistöðum við
Lyftingasamband íslands, þegar
lið íslands var valið á Norður-
landamótið. Við vorum ekki sátt-
ir við niðurröðunina í flokka fyrir
mótið.
Á þessum tíma, var sænski
landsliðsþjálfarinn í lyftingum
staddur hér á landi og hann kom
m.a. hingað til Akureyrar. Hann
frétti af þeim látum, sem þá urðu
Garðar og unnusta hans Marie Svensson.
Mynd: KK
„Mun auöveldara
að stunda æfingar"
— segir Garðar Gíslason en hann hefur
sænskan ríkisborgararétt
og það varð til þess að hann bauð
okkur Gylfa að koma út til Sví-
þjóðar og æfa og keppa þar.
Við fluttum út. til Stoíckhólms
Restaurant Laut
auglýsir:
í vetur opnum viö
kl. 14:30. Alla daga með
okkar glæsilega kaffihlað-
borð, sem er síbreytilegt
frá degi til dags.
Verðið er hlægilegt eða aðeins
kr. 190.- og kr. 80.- fyrir böm yngri
en 10 ára. Opnum kl. 18.00 fyrir
kvöldverðargesti. Á matseöli okkar
um helgina finnið þér m.a. ekta
uxahalasúpu með rjóma og portvíni
kr. 150.- Rjómasoðinn skötusel með
kjörsveppum kr. 390.- Grill steiktur
nautavöðvi með gini og einiberjum
kr. 750,- o.fl. o.fl.
Njótið góðra veitinga í
rólegu umhverfi.
Við stillum verðinu í hóf
Ht.STAtKANT
i.aut/
Restaurant Laut
Sími 22525
og höfum búið þar síðan og æft
og keppt með félagi þarna úti,
sem heitir Stokkholmspolicen.
Þetta er mjög sterkt félag og það
besta þarna úti í dag.
í Svíþjóð er keppt í deilda-
keppni á milli félaga sem stendur
yfir frá því í september og fram í
febrúar. Keppt er 5. hverju viku
á því tímabili og það félag sem
nær bestum samanlögðum ár-
angri á tímabilinu vinnur deild-
ina. Þetta er geysilega mikil og
hörð keppni og er hægt að líkja
henni við t.d. knattspyrnuvertíð.
í fyrra vann Stokkholmspolicen
deildina.
Við gátum strax tekið þátt í
deildakeppninni eftir að við
komum út, því ef þú ert Norður-
landabúi, ert þú löglegur í deilda-
keppnina."
- Hvaða vinnu hefur þú stund-
að í Svíþjóð?
„Við bræðurnir höfum báðir
verið í vinnu hjá póstinum, við
sundurliðun bréfa og út-
keyrslu. Þetta er létt og góð
vinna og hún er þægileg með öll-
um æfingunum. Þá hef ég einnig
verið að læra nudd og er hálfnað-
ur með það nám. Þetta er dýrt
nám og er kennt í einkaskóla hér
en ég stefni á að ljúka því.“
- At hverju fóruð þið út í það
að gerast sænskir ríkisborgarar?
„Viö vorum farnir að velta
þessu fyrir okkur, enda vorum
við undir töluverðum þrýstingi að
gera það, t.d. frá þjálfaranum
okkar sem einnig er landsliðs-
þjálfari Svía. Hann sjálfur er
Finni en hefur tekið sér sænskan
ríkisbogararétt. Enda fór það svo
að viku eftir að ég var orðinn
sænskur borgari, keppti ég með
sænska landsliðinu í fyrsta skipti.
Það var í landskeppni við Finna.
Þá hefur maður líka miklu
betri möguleika á því að æfa vel.
Við erum sendir í æfingabúðir,
fáum styrki til æfinga og ýmislegt
annað. Tíminn sem fer í þetta er
alveg rosalegur og eftir að ég
gerðist sænskur borgari er þetta
allt mun léttara.“
- Hvað er framundan hjá þér í
keppni?
„Næsta stórmót sem ég stefni
á, er sænska meistaramótið sem
fer fram í mars á næsta ári. Allar
mínar æfingar núna, miðast við
það mót. Af því loknu koma svo
öll stórmótin, heimsmeistara-
mótið, Norðurlandamótið og
Baltic-cup. í fyrra varð ég í öðru
sæti í 100 kg flokki, á sænska
meistaramótinu. Einnig hef ég
tekið þátt í Grand-prix mótum,
sem eru peningamót.“
- Þú ert þá ekkert á heimleið á
næstu árum?
„Nei ég á ekki von á því. Ég er
aðeins 23 ára gamall og það er
sagt að besti aldurinn fyrir lyft-
ingamann sé á tímabilinu 25-32
ára. Ég hef stundað lyftingar í 10
ár og það má segja að ég sé búinn
að æfa 4-5 sinnum í viku frá því
að ég var 15 ára. En það verður
að koma í ljós hvað maður endist
í þessu.
Ég hefði áhuga á því að koma
hingað í einhvern tíma og hjálpa
íslenskum lyftingamönnum að
komast af stað, t.d. að halda
námskeið. Maður hefur lært mik-
ið um íþróttina á þessum árum og
er fús að miðla þeirri þekkingu
hér á landi.
Mér þætti ekkert ótrúlegt að ég
flytti heim þegar ég hætti í lyft-
ingum en nú er maður ekki leng-
ur einn um ákvarðanatökur, svo
það kemur bara í ljós seinna,"
sagði Garðar Gíslason.