Dagur - 05.09.1986, Qupperneq 12
12 - DAGUR - 5. september 1986
. I /ya .
Nú er aðeins opið um helgar
í Laxdalshúsi. En á það skal
bent að hægt er að panta hús-
ið á öðrum tímum fyrir fundi
og veislur hvers konar.
Boröapantanir í símum 22644 og 26680
Sjáumst í Laxdalshúsi
Atvinnurekendur
Höfum dreifingu á vinnusloppum, mislitir og
hvítir, fyrir frystihús, sláturhús, kjörbúðir svo og
sláturhúsaskyrtur, húfur mislitar og hvítar. Einn-
ig íslenska þjóðfánann.
Allt er þetta frá saumastofu KS Hofsósi.
Borg sf.
Fjölnisgötu 4b, 600 Akureyri. S. 96-22536.
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN
Á AKUREYRI
Krabbameinsleit
Konur 20 ára og eldri
Leitarstöðin er tekin til starfa að loknu sumarleyfi.
Tímapantanir eru sem áður alla virka daga frá kl.
8.00 til 17.00 í síma 25511.
Starfsfólk Krabbameinsleitarinnar.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Framkvæmdasjóður fatlaðra
Með tilvísun til laga nr. 41/1983 er hér með auglýst
eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði
fatlaðra vegna fyrirhugaðra framkvæmda á árinu
1987.
Umsóknum, ásamt með greinargerð um fram-
kvæmdir, fyrri fjármögnun og áætluð verklok, skal
komið á skrifstofu Svæðisstjórnar málefna fatlaðra,
Stórholti 1, Ak. fyrir 20. sept. nk.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Svæðisstjórn-
ar í síma 26960 alla virka daga kl. 9.00-12.00.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Á NORÐURLANDI EYSTRA
Vilt þú afla þér aukatekna?
Við kynnum að hafa starf sem þér
gæti hentað.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Norðurlandi eystra
vill ráða til starfa fjölskyldur, sem um skemmri eða
lengri tíma gætu tekið til dvalar á eigin heimili fötluð
börn eða unglinga. Hámark samfelldrar dvalar hvers
einstaklings er 3-5 sólarhringar í mánuði.
Hér er um hentugt starf að ræða fyrir heimavinnandi
foreldri sem hefur yfir að ráða nægilegu húsrými.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Svæðisstjórn-
ar í síma 26960 alla virka daga kl. 9.00-12.00.
Nokkur orð af vörum
Oft er vitnað í poppstjörnur í
greinum eins og þessum eða
jafnvel á hinni síkátu rás tvöööö.
Hér ætla ég að gefa fólki
kost á að læra utan að nokkur
gullkorn af vörum Julian
Lennon, sem er sonur John
Lennon heitins eins og allir vita.
Nú, ef menn vilja ekki nota
þetta tækifæri til þess að slá um
sig í samkvæmum, þá er mér
sosum sama. Þá geta þeir bara
notið greinarinnar yfir kaffibolla
og gleymt henni svo. Sei, sei,
sei.
„Faðir minn kom mér oft til aö
hlæja, enda alveg sérstaklega
fyndinn maður. Hann hafði svo-
lítið sérstakan gálgahúmor sem
fólst í því að gera grín að fólki
eða fífla það á annan hátt. Ég
má svolítið passa mig, því þetta
tók ég uþp eftir honum eins og
svo margt annað. Hann var mín
fyrirmynd í einu og öllu.“
„Sko, pabbi er ábyggilega í
músíkhöllinni á himnum að
spila og spinna tónlist með Jimi
Hendrix og fleiri köppum eða
heimsækja himnesk öldurhús.
Alla vega lít ég svoleiðis á hlut-
ina. Bíðið þið bara, bráðum
kem ég uþp til ykkar og þá verð-
ur stuð.“
„(Um son John og Yoko,
Sean.) Við sjáumst ennþá frek-
ar lítið en ég vona að við verð-
um góðir vinir þegar hann
stækkar. Ég vona bara að hann
verði eins myndarlegur og ég,
er hann vex úr grasi."
„Draumastúlkan? Þú spyrð
ekki um lítið. Dökkleit, blíðlynd
og hlý. Kannski samt þannig að
votti fyrir Ijósum litum. Sterk-
byggð og þolin. Sjálfstæð og
alveg robbosslega sæt. Svo
þarf að vera gaman að
skemmta sér með henni.“
„Mig hefur aldrei langað i
neina ímynd. Mér líður best í
gallabuxum og nærbol í leti
heima hjá mér.“
„Ég er náttúrlega ekkert líkur
Prince, en ég er nokkuð vinsæll
í Bandaríkjunum. Pöpellinn
elskar mig.“
„Fyrstu tvö árin eftir að pabbi
dó voru mjög erfið. Bæði fyrir
mig og Yoko. Ég var töluvert
ringlaður og hún líka. Nú höfum
við róast og náð okkur niður.
Við skemmtum okkur ágætlega
saman.“
„(Um framtíðina?) Kannski
gerist ég fjölskyldumaður. Ég
veit ekki, ég reyni að horfa ekki
fram á veginn heldur lifa fyrir
daginn í dag. Kannski klikkast
ég og fer að búa á eyðieyju
langt frá mönnum og mannvirkj-
um, safna hári og skeggi og lifi
á róturn."