Dagur - 05.09.1986, Page 20
Akureyri, föstudagur 5. september 1986
Mýir réttir á
helgarseðli Smiðjunnar
3 umferðaróhöpp urðu á Akureyri í gær og voru 2 fluttir á sjúkrahús. Þetta óhapp hér átti sér stað á mótum Hrafna-
gilsstrætis og Þórunnarstrætis. Mynd: rþb
Kaupfélag Eyfirðinga:
61 þús. fjár slátrað
Akureyri:
Tveir
harðir
árekstrar
Þrír árekstrar höfðu orðið í
umferðinni á Akureyri fyrir
kvöldmat í gær, og voru tveir
þeirra mjög harðir.
Annar þeirra varð á mótum
Norðurgötu og Hjalteyrarbraut-
ar. Þar skullu tveir bílar saman.
Báðir ökumennirnir voru fluttir á
sjúkrahús, talsvert skornir á
höfði en annars ekki mikið slas-
aðir. Báðir bílarnir voru mjög
mikið skemmdir eða ónýtir með
öllu.
Annar mjög harður árekstur
varð á mótum Þórunnarstrætis og
Hrafnagilsstrætis, þar urðu ekki
slys á fólki en bílarnir voru mikið
skemmdir. Loks varð árekstur á
Þórunnarstræti neðan við lög-
reglustöðina en hann var ekki
mjög harður og engin meiðsli
þar. gk-.
Kópasker:
Fengur
með
14 tonn
af rækju
- Mikil vinna
og unnið á vöktum
í rækjuvinnslunni
Fengur, skipið sem Útgerðar-
félag Kópaskers hefur á leigu
frá Þróunarsamvinnusjóði
íslands, kom úr sinni fyrstu
veiðiferð fyrir Kópaskersbúa
á hádegi í gær.
Skipið var með um 14 tonn af
rækju sem fer til vinnslu hjá Sæ-
bliki. Mikil vinna hefur verið í
rækjuvinnslunni undanfarna
daga. Þar starfa rúmlega 20
manns, en fimm bátar leggja
upp rækjuafla sinn hjá fyrirtæk-
inu og í dag var starfsfólki fjölg-
að og vaktafyrirkomulag tekið
upp. IM
„Slátrun hefst hjá okkur þann
16. september og er það á
sama tíma og venjulega,“
sagði Óli Valdimarsson slátur-
hússtjóri hjá KEA á Akureyri.
Hann sagði að um nokkra
fækkun yrði að ræða varðandi
sláturfé, eða senr næmi 10%. í
sláturhúsi KEA á Akureyri verð-
ur slátrað 36 þúsund fjár, á Sval-
barðseyri verða það 13 þúsund
og 5 hundruð og á Dalvík um 11
þúsund og 5 hundruð. Ástæðuna
fyrir fækkun taldi hann vera að
menn hafi verið að fækka hjá
sér sauðfé undanfarið ár og marg-
ir alveg hættir nú. „Við erum
búnir að selja allt okkar dilkakjöt
fyrir löngu og höfum flutt kjöt frá
Húsavík, Kópaskeri, Þórshöfn
og Vopnafirði. Það er því kær-
komið að fá nýtt kjöt núna. Þess
má geta að við seljum til útflutn-
ings um 100 tonn af kindakjöti á
ári og tökum það svo í staðinn
hjá kaupfélögunum í kring. Þetta
byggist á því að kjöt til útflutn-
ings er verkað sérstaklega og
Nú er sá tími kominn að bænd-
ur fara á fjöll að leita sér
lamba. Fyrstu göngur hafa
þegar verið gengnar og eitt-
hvað er búið að rétta en þó má
segja að þessi mikli annatími
sé í þann mund að hefjast. Á
hverju hausti er töluvert um
það að fólk úr þéttbýlinu fari í
réttir bændum til gagns eða sér
til gamans nema hvort tveggja
sé. Fólk á sér þá gjarnan sína
rétt sem það fer í ár eftir ár.
| hafa ekki öll sláturhús leyfi til að
vinna kjöt til útflutnings. Þess
vegna þurfum við að gera þetta á
| þennan veg,“ sagði Óli gej-
Undanfarna daga hafa fjall-
skilanefndir verið að ákveða
réttardaga og hér á eftir fara þær
upplýsingar sem blaðinu tókst að
afla um réttir nú um helgina.
Frekari upplýsinga um þessi mál
er að vænta eftir helgi.
Húnavatnssýslur:
Hrútatungurétt sunnud.
7. september
Miðfjarðarrétt sunnud.
7. september
Stafnsrétt dagana
10.-11. seotember
Grenjaðarstaður:
Lögmæt
kosning
Laugardaginn 30. ágúst fór fram
prestskosning í Grenjaðarstað-
arprestakalli. Einn umsækjandi
var um embættið, séra Kristián
Valur Ingólfsson farprestur á Isa-
firði.
587 voru á kjörskrá, 301 kaus.
Umsækjandinn hlaut 282
atkvæði, 15 seðlar voru auðir og
4 ógildir. Kosningin var lögmæt.
Færri bílar
fluttir inn
„Það hefur dregið verulega úr
innflutningi síðustu vikurnar,“
sagði Sigurður Indriðason hjá
bifreiðaeftirlitinu á Akureyri,
er hann var spurður um inn-
flutning bfla sem skráðir eru
hjá embættinu.
Á þessu ári hafa verið nýskráð-
ir um 400 bílar hjá bifreiðaeftir-
litinu. En eins og kom fram fyrr
í sumar var búið að skrá rúmlega
300 bíla frá mánaðamótum
febrúar og mars, þar til snemma í
sumar. En nú hefur sem sagt
dregið verulega úr innflutningi.
„Ég veit ekki hvað veldur nema
menn séu búnir að fá nóg í bili.
Þó gæti komið önnur skriða
aftur, sérstaklega ef farið verður
að selja fyrraárs bíla, því nú eru
að koma á markaðinn bílar af
árgerð 1987 og getur það breytt
miklu, því sagt er að mikið sé til
af óseldum bílum af árgerð
1986,“ sagði Sigurður. gej-
Þingeyjarsýslur
Skógarétt laugard.
6. september
Húsavíkurrétt laugard.
6. september
Tungugerðisrétt sunnud.
7. september
Fjallarétt sunnud.
7. september
Víkingavatnsrétt sunnud.
7. september
Tjarnarrétt mánud.
8. september
Hraunsrétt þriðjud.
9. september ET
Réttir að hefjast
Landssamtök sauðfjárbænda:
Markaðsmálin eru efst á
Fyrsti aðalfundur Landssam-
taka sauðfjárbænda var hald-
inn að Hólum í Hjaltadal helg-
ina 23.-24. ágúst. Samtökin
voru stofnuð að Hvanneyri í
ágúst 1985 og fjalla þau um
margvísleg hagsmunamál
sauðfjárbænda þó jafnan hafi
markaðsmál verið efst á baugi.
Á þessu fyrsta starfsári félags-
ins hélt stjórnin sex fundi og
reyndi hún að fylgja eftir þeim
fjölmörgu ályktunum og tillögum
sem fram voru bornar á stofn-
fundinum. Sem dæmi um þetta
má nefna breytingar á kjötmati,
bætta meðferð kjöts í sláturhús-
um og síðast en ekki síst stórátak
í útflutnings- og markaðsmálum.
Aðalfundinn sátu 42 fulltrúar
auk stjórnar og nokkurs fjölda
gesta. Þeirra á meðal var Jón
Helgason landbúnaðarráðherra
sem flutti ávarp.
í skýrslu stjórnar sem lögð var
fram á fundinum segir meðal
annars í kafla um markaðsmál:
„Þegar við framleiðendur vit-
um hvaða kjörþyngd markaður-
inn bæði hér heima og erlendis
vill, ber okkur að leitast við að
framleiða þá vöru. Slíkt verður
ekki hægt nema með breyttu
kjötmati sem tekur mið af þess-
um óskum neytenda." Síðar
segir: „Sem betur fer búum við
íslenskir bændur við innflutn-
ingsbann á kjöti en það bann
leggur okkur þær skyldur á herð-
ar að sinna svo sem hægt er kröf-
um markaðarins." Einnig er í
skýrslunni minnst á hugmyndir
um breytingar á sláturtíma sem
að nokkru eru komnar í fram-
kvæmd með „léttlömbunum“
svokölluðu.
Á fundinum var skipað í
nefndir sem unnu að tillögugerð í
hinum ýmsu málaflokkum en auk
þess komu fram nokkrar tillögur
frá einstaklingum. Alls voru sam-
þykktar á fundinum um 20 tillög-
ur flestar samhljóða. Mestar
umræður urðu um tillögu að
ályktun um nýjar leiðir og sölu á
lambakjöti. Framleiðslunefnd
klofnaði í þessu máli og kom til-
lagan frá meirihlutanum en
minnihlutinn skilaði séráliti. Aö
lokum var samþykkt tillaga um
þetta efni komin frá þeim sem
baugi
harðast höfðu deilt á hina fyrri.
Tillagan er þess efnis að leita beri
allra leiða til að lækka verð á
dilkakjöti og er bent á nokkur
atriði til lausnar svo sem lækkun
á framleiðslukostnaði bænda og
milliliðakostnaði. Það sem mest-
um deilum olli varðandi fyrri til-
löguna var málsgrein sem kvað á
um lækkað verð til bænda
þ.e.a.s. tekjuskerðingu. Af öðr-
um tillögum sem samþykktar
voru má nefna þá sem kveður á
um bætta meðferð kjöts í slátur-
húsum. E.T.