Dagur - 25.09.1986, Qupperneq 1
69. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 25. september 1986
179. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Akureyri:
Lagnir fyrir boðveitu 7,1 km
- verða alis um 10 km þegar framkvæmdum lýkur
„Þaö sem við höfum meðal
annars verið að gera í sumar er
að leggja rör í allar gangstéttir
sem ekki eru malbikaðar. I
þessi rör er svo mögulegt að
íeggja kapalkerfi sjónvarps og
símakerfis. Þetta hófst í vor
eftir að óskir komu þess efnis
að þessi rör yrðu lögð í gang-
stéttir sem væri verið að ganga
frá undir malbik,“ sagði
Arsæll Magnússon umdæmis-
stjóri Pósts og síma á Norður-
landi.
Ársæll sagði að slíkt væri einn-
ig gert á Húsavík, Hvamms-
tanga, Ólafsfirði og fleiri stöðum
á Norðurlandi. „Mest er um
þetta á Akureyri og er það gert í
samvinnu við bæjarfélagið og
stofnanir þess, svo sem Rafveitu,
Vatnsveitu og Hitaveitu. Nokkuð
er um það að endurnýja þurfi
lagnir þessara veitustofnana og er
þá tækifærið notað og lagt fyrir
boðveitunni í leiðinni,“ sagði
Ársæll.
Nú þegar er búið að leggja um
7,1 km af lögnum fyrir boðveitu,
en reiknað með því að um 10-11
km þurfi til að lagnir verði komn-
ar um allan bæinn. Verkiö hefur
verið unnið í sumar.
Þarna opnast möguleikar fyrir
aðila sem þurfa að dreifa efni til
fólks, livort sem það er sjónvarp,
sími, eða eitthvað annað í þeim
dúr,“ sagði Ársæll. gej-
■p—■
Hann var heldur aumkunarverður að sjá litli grísinn í Arnarfelli.
Grís fæddist með
utanáliggjandi hjarta
„Ég þekki ekkert dæmi þessa
hjá nokkurri skepnu,“ sagði
Jón Eiríksson, bóndi á Arnar-
felli í Saurbæjarhreppi í Eyja-
firði, þegar hann sýndi blaða-
mönnum Dags nýfæddan grís.
Sá var nokkuð sérstæður, því
eitt mikilvægasta líffæri hans
var utanáliggjandi, nefnilega
hjartað.
Grísinn fæddist í fyrrinótt og í
gær var hann töluvert sprækur.
Hjartað sló kröftuglega og mátti
greinilega sjá það. Þegar Dagur
hafði samband við Ágúst Þor-
Ieifsson, dýralækni, sagði hann
að þessa væru dæmi hjá flestum
dýrum þótt ekki væri hægt að
segja að þetta væri algengt.
Þarna væri um að ræða van-
skapnað sem yfirleitt væri ekki
reynt að lagfæra. Dýr með þenn-
an fæðingargalla lifðu yfirleitt
ekki nema frá nokkrum klukku-
stundum upp í nokkra daga. HS
Bæjarstjórn Akureyrar:
Bærinn leggur
ekkí hlutafé
í Akur hf.
A fundi bæjarstjórnar á
þriðjudaginn voru fjölmörg
mál afgreidd, flest án
umræðna. Fyrir fundinum lá
dagskrá í 13 liðum þar sem
voru fundargerðir bæjarráðs
og hinna ýmsu nefnda bæjar-
ins.
í fundargerð bæjarráðs frá 18.
september, sem bæjarstjórn sam-
þykkti samhljóða, var mælt með
því að umsókn Svartfugls s.f. um
lán að upphæð 3 millj. króna væri
vísað aftur til atvinnumálanefnd-
ar. Atvinnumálanefnd hafði mælt
með því að Svartfugli yrði veitt
lán að upphæð 1,5 millj. króna en
bæjarráðsmönnum þótti rétt að
bankar sæju um slíkar lánveiting-
ar þar sem þeir teldu fyrirtækið
standa vel. Bæjarstjórn staðfesti
einnig synjun um hlutafjárfram-
lag bæjarins til Akurs h.f.
í fundargerð hafnarstjórnar frá
10. september, mælti meirihlut-
inn með því að Bílahöllinni h.f
yrði veitt umbeðin heimild til að
gera bílastæði sunnan Strand-
götu. Minnihluti hafnarstjórnar
gerði bókun þar sem hann lagðist
gegn þessari afgreiðslu og á fundi
bæjarstjórnar tók Heimir Ingi-
marsson bæjarfulltrúi upp rökin
fyrir þessari bókun og lagði til að
málinu yrði vísað til skipulags-
Sorpbrennsluver á Akureyri
- „Athyglisvert og þýðingarmikið mál fyrir Akureyringa“
„Ráðamenn bæjarfélaga hafa
þær skyldur á herðum að vaka
yfir velgengni viðkomandi
bæjarfélags og tryggja að eðli-
leg framþróun viðhaldist á öll-
um sviðum þess. Því miður má
of víða sjá að þessari skyldu
hafa ráðamennirnir brugðist
með misömurlegum afleiðing-
segir Wilhelm V. Steindórsson hitaveitustjóri
um fyrir allt athafnarlíf bæjar-
félagsins og þegna þess“.
Þetta segir Wilhelm V. Stein-
dórsson orkuverkfræðingur og
hitaveitustjóri á Akureyri m.a. í
grein í blaðinu í dag. í þeirri
grein gerir hann að umtalsefni
umræður um hugsanlega sorp-
brennslustöð á Akureyri sem
fram hafa farið á síðum Dags að
undanförnu. Wilhelm segist hafa
haft tækifæri til að sjá og fylgjast
með slíkum stöðvum erlendis. í
lok greinar sinnar segir Wilhelm
m.a.: „Hér er uin svo athyglisvert
og þýðingarmikið mál að ræða
fyrir Akureyringa að þeir hljóta
að krefjast þess að hæfum aðilum
verði falin nákvæm athugun á
hagkvæmni slíks reksturs þar sem
tekið verður tillit til allra
aðstæðna. Það er skoðun undir-
ritaðs að Akurevrarbær eigi að
taka forystu í þessum efnum. Ef
ekki, þá er ástæða til að hvetja
nágrannasveitafélögin til að sýna
frumkvæði". Sjá bls. 12
nefndar. Tillaga Heimis var sam-
þykkt samhljóða.
Tveimur fundargerðum var
bætt inn á dagskrá fundarins og
voru þær báðar frá því fyrr um
daginn. í fundargerð strætis-
vagnastjórnar var samþykkt að
hefja akstur á leið 6, Glerár-
hverfi-Brekkur-Glerárhverfi um
Hlíðarbraut og einnig staðfestur
afsláttur á fargjöldum til skóla-
nema frá 13 ára aldri. í fundar-
gerð skipulagsnefndar var sam-
þykkt tillaga Hestamannafélags-
ins Léttis um reiðleið suður úr
bænum og lagt til að gerð yrði ný
akstursleið að Verkmennta-
skólanum sem yrði suður úr Mýr-
arvegi til bráðabirgða. Þetta var
allt samþykkt samhljóða. ET
Akureyri:
Reykur
úr
potti
Laust fyrir klukkan þrjú í gær
var Slökkviliö Akureyrar kall-
aö að fjölbýlishúsi númer 12
við Skarðshlíð. íbúi í húsinu
hafði tilkynnt um reyk sem
legði út um glugga á íbúð á
efstu hæð hússins.
Slökkviliðsmenn þurftu að
brjóta glugga til þess að komast
inn í íbúðina þar sem húsráðend-
ur voru ekki heima. Þeir leituðu
þó af sér allán grun strax og inn
kom og sagði Tóntas Búi Böðv-
arsson að það væri alltaf gert í
svona tilfellum. Upptök reyksins
reyndust vera í potti sem gleymst
hafði á eldavél og var hann fjar-
lægður. Talsverðar skemmdir
urðu af völdurn reyksins en þó
verður að telja það lán í óláni að
ekki kom upp eldur. ET