Dagur - 25.09.1986, Blaðsíða 3
25. september 1986 - DAGUR - 3
Óbeint ónæði vegna Bylgjunnar
Aðfaranætur laugardags og
sunnudags urðu hjónum hér í
bæ heldur óyndislegar. Síminn
hringdi 7-9 sinnum hvora nótt-
ina og vildi fólk fá óskalag á
Bylgjunni, útvarpsstöð þeirra
sunnanmanna. Þar sem Bylgj-
an er alls ekki til húsa hjá þess-
um hjónum og nær reyndar
ekki hingað norður þá þótti
þetta ekki aleinasta hvimleitt
heldur og furðulegt.
Einar Sigurðsson útvarpsstjóri
Bylgjunnar var miður sín út af
þessu atviki og taldi að skýring-
una gæti verið að finna í þeirri
staðreynd að ef maður bætir 9
framan við stúdíónúmer Bylgj-
unnar þá kemur út númer hjón-
anna á Akureyri. Hann bætti því
við að álag hefði verið gífurlegt á
línunum hjá þeim og ein brunnið
yfir, þannig að hugsanlega væri
um að ræða einhverja bilun í
símakerfinu. „Það hringir hjá
okkur alla nóttina, alveg sama
þótt maður biðji fólk að gera það
ekki. Ég vona að þeim verði
svefnsamt næstu helgi, en láttu
mig endilega vita ef þessu linnir
ekki því þá sendi ég hjónunum
að minnsta kosti konfektkassa,"
sagði Einar Sigurðsson að
lokum. SS.
Snyrtivörukynning
Adidas, Nike og Yonex
íþróttaskór
Verð frá kr. 1.416,-
Boron og Yonex
badmintonspaðar
Verð frá kr. 330,-
Helgarferðir -
Helgarferðir
Okkar vinsælu helgarferðir
til Reykjavíkur eru byrjaðar
Bjóðum einnig viðskiptapakka til Reykja-
víkur, sem innihalda flug og bíl eða flug
og hótel og eru í gildi alla
daga vikunnar.
Samvinnuferóir - Landsýn
Skipagötu 14, símar 21400 og
Hann virtist þungt hugsi þessi ungi maður sem sólaði sig við sundlaugina á Akureyrí, einn fagran haustdag fyrir
skömmu. Mynd: RÞB
Snyrtifræðingur
kynnir hinar
vinsælu
TBiodroqa
snyrtivörur eftir hádegi
í dag, fimmtudag.
Snyrtivörudeild.
sími
(96) 21400
Hestamannafelagió
Léttir
Almennur félagsfundur verður haldinn í félags-
miðstöðinni í Lundarskóla, mánudaginn 29.
sept. kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Lýst eftir tillögum til landsþings LH.
3. Umræður um sl. landsmót og nk. fjórð-
ungsmót.
4. Önnur mál.
Stjórn Léttis.
Kratar Norðurlandi eystra:
Ámi fer fram
Árni Gunnarsson, fyrrverandi
alþingistnaður, tilkynnti um
helgina að hann ætlaði í fram-
boð fyrir Alþýöuflokkinn í
Norðurlandskjördæmi eystra í
komandi alþingiskosningum.
Árni tilkynnti ákvörðun sína á
30 manna kjördæmisráðsfundi
Álþýðuflokksins sem haldinn
var að Stóru-Tjörnum í Ljósa-
vatnsskarði um seinustu helgi.
Árni var kosinn á þing í kjör-
dæminu í kosningunum 1978 og
1979 en náði ekki kjöri í seinustu
alþingiskosningum. Alþýðu-
flokkurinn á því engan fulltrúa úr
Norðurlandskjördæmi eystra á
þingi í dag.
Áður en Árni tók af öll tvímæli
með framboð sitt, var talið lík-
legt að hann hyggðist fara fram í
Reykjavík, að því tilskildu að
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðufiokksins, færi í
framboð á Austurlandi. Nú þykir
flest benda til þess að Jón sé
afhuga þeirri hugmynd, enda allt
eins líklegt að með því móti
kæmist hann ekki á þing, þar sem
Austurland hefur fram til þessa
ekki verið lífvænlegt kjördæmi
fyrir krata.
Ákveðið hefur verið að halda
prófkjör Alþýðuflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra eigi
síðarení janúaránæstaári. BB.
Grímsey:
Kennaramálin leyst
„Eg hef sent þetta erindi frá
mér og er þetta komið í lag eft-
ir því sem ég best veit,“ sagði
Sturla Kristjánsson fræðslu-
stjóri á Norðurlandi eystra er
hann var spurður um kennara-
mál í Grímsey.
Eins og fram hefur komið
reyndist erfitt að fá kennara til
starfa í Grímsey á komandi
skólaári en þar vantaði skóla-
stjóra og kennara. „Þegar til kom
fengu færri en vildu,“ sagði
Sturla. „Það er oft þannig að þeg-
ar verið er að ráða í síðustu'
stöður, að haft er samband við þá
sem sótt hafa um stöður, en ekki
fengið og þeim sagt að laust sé á
einhverjum öðrum stað. Oft er
það svo að þetta fólk tekur þessar
stöður og var það þannig í þessu
tilfelli," sagði Sturla.
Búið var að ráða í kennara-
stöðuna fyrir skömmu, en skóla-
stjórann vantaði. Nú eru þau mál
komin í lag. „Að vísu er ekki um
réttindafólk að ræða, en engu að
síður er málið í höfn,“ sagði
Sturla. gej-