Dagur - 25.09.1986, Blaðsíða 13
, Uppgröftur að Gásum:
„Anægður með
árangurinn
- segir Bjarni Einarsson
„Við erum hætt að grafa í bili
og ég vU á þessu stigi ekkert
segja um frarahaldið,“ sagði
Bjarni Einarsson fornleifa
fræðingur og forstöðumaður
Minjasafns Akureyrar. Hann
ásamt Margréti Hermanns-
dóttur fornleifafræðingi unnu
að uppgreftri við rústir að Gás-
um í sumar.
Bjarni sagði að ekki hefðu
fundist mjög merkilegir munir
við uppgröftinn í sumar. „Pað
fannst mikið af beinum, nokkuð
af járni sem er að öllum líkindum
önglar og naglar, smávegis af
miðaldakeramiki, sérkennilegur
hnappur, en slíkan hnapp höfum
við ekki séð áður, hryggjaliður úr
hval, sem að öllum líkindum hef-
ur verið notaður sem vinnuborð
einhvers konar og svo fundum við
brot úr beinkambi sem negldur
var með 2 bronsnöglum," sagði
Bjarni. Hann sagði að næsta
skrefið í rannsóknunum væri að
greina sýnin, en það er gert er-
lendis.
í sumar grófu Bjarni og Mar-
grét 4 holur á svæðinu við Gása
og voru þær um 12 fermetrar að
stærð. „Við erum mjög ánægð
með árangurinn og höldum enn
fast í það að þarna séu merkustu
rústir á landinu,“ sagði Bjarni.
gej-
Garðyrkjufélag Akureyrar:
Gaf bænum
228 þúsund
Garðyrkjufélag Akureyrar
hefur fært Akureyrarbæ
bankabók með 228 þúsund
króna innistæðu að gjöf.
Þessari upphæð safnaði parð-
yrkjufélagið á miðsumarhátíð
sinni í júní s.l. Söfnunarféð er
ætlað til framkvæmda í Lysti-
garði Akureyrar, og er þess
vænst að bæjarstjórn leggi fram
fé á móti til þess að bæta megi
aðstöðu starfsfólks og gesta
Lystigarðsins. Bæjarráð hefur
þakkað þessa gjöf og þann
áhuga á málefnum Lystigarðsins
sem hún lýsir.
25. september 1986 - DAGUR - 13
Frá einni af keppnum Bridgefélags Akureyrar í fyrravetur.
Bridgefélag Akureyrar:
Vetrarstarfið hefst
með „startmóti"
43. starfsár Bridgefélags Akur-
eyrar hófst með aðalfundi sem
haldinn var I Félagsborg á
þriðjudagskvöldið. A fundin-
um var ákveðið að fyrsta
keppni vetrarins fari fram
næstkomandi þriðjudags-
kvöld. Það verður eins kvölds
tvímenningskeppni, svo kallað
Startmót. Spilað verður eftir
Mitchell-fyrirkomulagi en
verðlaun eru gefin af Skipaaf-
greiðslu KEA.
Sem fyrr verður spilað í Fé-
lagsborg og er öllu briddsfólki á
Norðurlandi heimil þátttaka.
Skráning fer fram á staðnum en
keppnin hefst klukkan 20.30 og
eru briddsarar minntir á að mæta
tímanlega. Þama er kjörið tæki-
færi til að taka létta upphitun fyr-
ir veturinn og rifja upp spilaklæk-
ina.
Þann 7. október hefst síðan
Bautamótið sem er fjögurra
kvölda tvímenningskeppni.
Keppnisstjóri hjá Bridgefélagi
Akureyrar er sem fyrr hinn gam-
alreyndi en síungi Albert Sig-
urðsson eða Alló eins og hann er
vanalega nefndur.
Loks er rétt að minna bridds-
ara á að Norðurlandsmót í tví-
menningi verður haldið í Félags-
borg laugardaginn 4. október
næstkomandi.
Á vegum Bridgefélags Akur-
eyrar fer fram viðamikil starfsemi
enda er það eitt stærsta briddsfé-
lag landsins. Stjóm félagsins ber
hitann og þungann af undirbún-
ingnum og þar verða menn að
hafa breið bök. Núverandi stjórn
Bridgefélags Akureyrar skipa:
Frímann Frímannsson, Gunnar
Berg, Pétur Guðjónsson, Stefán
Ragnarsson og Tryggvi Gunnars-
son en stjórnin á eftir að skipta
með sér verkum. BB.
SÍMI
(96)21400
VIDEOTÆKI
VX-510TC
• „Sllmllne"
(aðeins 9,6 cm á hæð).
• Framhlaðið m/fjarstýringu.
• Skyndiupptaka
m/stillanlegum tíma,
allt að 4 klst.
• 14 daga minni
og 2 „prógrömm".
• 12 ráslr.
• Hrein kyrrmynd
og færsla á milli
myndramma.
• Stafrænn teljari.
• Sjálfvirk bakspólun.
• Hraðspólun m/mynd
í báðar áttir.
kr. 34.900,-
staðgreitt
Reykjavíkur
VB-StCT