Dagur - 25.09.1986, Page 6
6 — DAGUR - 25. september 1986
„Já, það er nú töluvert að gera.
Það er mest um smáóhöpp eins
og skurði, mínnf brot og vinnu-
slys,“ sagði Oddgeir Gyifason
kandldat á Slysadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins þegar við
inntum hann eftir hvort mikið
væri að gera.
Oddgeir sagði að mest væri að
gera á morgnana, frá átta og
fram undlr eitt, þegar fólk kæmi
aftur í eftirlit - en auðvitað yrðu
slys allan sólarhringinn og helg-
arnæturnar væru oft slæmar.
Þegar við inntum hann eftir
hvort einn aldurshópur kæmi
oftar á Slysadeildina en annar
sagðist hann ekki merkja það,
þó fannst honum fólk á aldrinum
15-20 ára minnst áberandi. Það
helsta sem væri einkennandi fyr-
ir unglingana væri kannski að
þeir fótbrotnuðu oftar en aðrir -
eftir að hafa veríð i fótbolta.
Oddgeir sagði að um helgar
kæmi mest ungt fólk, sem hefði
þá oft verið að skemmta sér. Það
bæri svolítið á því að þetta fólk
væri ölvað, en það væri yfirleitt
allt í góðu lagi og sjaldan kæmu
upp vandræði vegna ölvunar.
Hann sagði það ekki algengt að
þeir sömu kæmu aftur og aftur
með svipuð meiðsl og þegar við
snérum okkur að óvenjufegu til-
fellunum sagði hann þau helst
vera þegar þyrfti að fjarlægja
ótrúlegustu hluti úr vitum fólks.
Hann vitnaði í þess konar
„hlutasafn“ fyrir sunnan, sem
sýnt hefði verið í siónvarpinu
um daginn, og sagði að vel
mætti koma upp hliðstæðu safni
hér.
Þegar blaðamaður kvartaði I
lokin yfir að hafa lent í þvi að
biða, voðalega lengi, á slysa-
varðstofunni, sagði Oddgeir
aðstöðuna litla og að þarna væri
oft þröngt. Á vakt væri einn
aðstoðarlæknir en hjúkrunar-
fræðingur og sérfræðingur væru
á bakvakt. Hann sagðist hafa
unnið á sambærilegri deild fyrir
sunnan og þar væri algengt að
biðin væri mikið lengri en hér,
oft 2-3 tímar. Þeir slasaðri sætu
fyrir hinum að komast að.
um ferðalög
í ferðalaaag, í ferðalaaag.
Ég fer í ferðalag
bara strax í daaag.
(Eiríkur Fjalar)
Páll Jakobsson.
Það eykst jú stöðugt að fólk drífi sig í ferðafötin
og leggi land, nú eða lönd, undir fót.
Okkur fannst því tilvalið að taka þetta
fyrirbæri, ferðalög, til umfjöllunar - og
gerum það hér með
María Tryggvadóttir og
Sigrún Asgrímsdóttir
- Ferðuðust þið eitthvaö í sumar
stelpur?
María: „Já, ég fór hringinn
með pabba og mömmu, suður í
nokkra daga með bróður mínum
og í Mývatnssveit. Svo fór ég í
stuttar útilegur með skátunum og
svoleiðis."
- Hvað með þig Sigrún?
„Ég fór austur á land að passa
í mánuð á meðan sauðburðurinn
stóð yfir, svo fór ég á skátamót í
Viðey og síðan fór ég til Horna-
fjarðar í stutt stopp.“
- Hvernig var veðrið í þessum
ferðum?
„Það var alltaf mjög gott.“
- Voru þetta nokkuð dýrar
ferðir?
Sigrún: „Já skátamótið var fer-
lega dýrt.“
María: „Þetta var ekkert svo
dýrt."
- Hvað finnst ykkur skemmti-
legast á svona ferðalögum?
„Að hitta frændfólkið, fara í
berjamó, sund og f fjósið. Síðan
er lika bara gaman að skemmta
sér.“
- Hafið þið einhvern tímann
komið til útlanda?
Ekki Sigrún en María hafði far-
ið út. „Ég hef tvisvar flogið til Nor-
egs og farið sama hringinn
þaðan, til Sviþjóðar, Danmerkur
og Þýskalands. Það var æðis-
lega gaman í bæði skiptin."
- Finnst ykkur það ekki auk-
ast að unglingar fari til útlanda?
„Jú og þá aðallega að þeir fari
til sólarlanda eða í sumarhús í
Hollandi."
Páll Jakobsson
- Ferðu oft í ferðalög Páll?
„Nei, ég fer svona að meðaltali
einu sinni á ári.“
- Ferðastu þá bara yfir
sumartímann?
„Já.“
- Hvert ferðu helst?
„Ekkert ákveðið."
- Tekurðu yfirleitt Ijósmyndir á
ferðalögum?
„Já, en mér finnst ekki nauð-
syn að hafa myndavélina með.“
- Hvað finnst þér mikilvægast
að hafa með á góðu ferðalagi?
„Það er misjafnt eftir því hvert
ég fer.“
- Með hverjum ferðastu
oftast?
„Félögum mínum."
- Hefurðu einhvern tíma farið
í öræfaferð?
„Nei, ég hef engan áhuga á
því.“
- En til útlanda?
„Nei, en það er aldrei að vita
hvort maður fer.“
Elvar Birgisson
- Fórst þú í einhver ferðalög í
sumar?
„Ég fór í Vaglaskóg um versl-
unarmannahelgina. Síðan fór ég
tvisvar til Reykjavíkur og þá til
Vestmannaeyja í annað skiptið."
- Hefurðu ferðast mikið um
landið?
„Já þó nokkuð mikið, en ég hef
líka farið út.“
- Hvert út?
„Ég hef fariðtil Hollands, Belg-
íu, (talíu, Sviss, Austurríkis, Lux-
emborgar, Þýskalands og
Frakklands."
- Fórstu þá með foreldrum
þínum?
„Já, bróðir minn og bræður
mömmu voru líka með í ferðinni.
Við fórum til allra landanna í
sömu ferðinni - keyrðum á bíla-
leigubíl um Evrópu."
- Til hvaða lands fannst þér
skemmtilegast að koma?
„Hollands, það var gaman að
vera ( sumarhúsunum og félags-
lífið þar var gott.“
- Ætlar þú að ferðast mikið f
framtíðinni?
„Já, mig langar mest til Eng-
lands eða Bandaríkjanna."
María Tryggvadóttir og Sigrún Ásgrímsdóttir.