Dagur - 25.09.1986, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 25. september 1986
NÝJU HÚSNÆÐISIÁIiIN:
KYNNING
OG GAGNLEGAR ÁBENDINGAR
FRAMHALD
TIL ENN
FREKARI
ÁHERSLU
Hvort sem þú byggir, kaupir nýtt eða notað,
gildir ávallt sama meginreglan:
Kaupi lífeyrissjóður þinn ekki skuldabréf af
Húsnæðisstofnun fyrir 55% af árlegum ráð-
stöfunartekjum sínum, þá skerðist lánið til þín
í hlutfalli við kaup hans.
VIÐHVAÐ
ERU
FRAMAN-
GREINDAR
LÁNS-
FJÁRHÆÐIR
MIÐAÐAR?
Þær eru allar miðaðar við byggingarvísitölu
270 stig í september 1986 og munu síðan
taka breytingum í samræmi við breytingar á
henni. Grunntölurnar, sem reiknað er frá, eru
frá því í janúar 1986 og þær er að finna í Sam-
komulagi aðila vinnumarkaðsins frá 26.2. sl.
og lögum nr. 54/1986 um Húsnæðisstofnun
ríkisins.
SKYLDU-
SPARNAÐUR
UNGMENNA
öllum einstaklingum á aldrinum 16-25 ára,
sem ekki hafa formlega undanþágu, er skylt
að leggja til hliðar 15% af launum sínum, í því
skyni að mynda sér sjóð til íbúðabygginga.
Launþegar á skyldusparnaðaraldri eru
hvattir til að fylgjast gaumgæfilega með því að
launagreiðendur dragi lögboðinn skyldu-
sparnað af launum og geri skil til Veðdeildar
Landsbanka Islands.
Hafi það brugðist, er þeim bent á að snúa
sér til lögfræðings, sem fer með málefni
skyldusparnaðar hjá Húsnæðisstofnun ríkis-
ins, Laugavegi 77, 101 Reykjavík.
Sími: 91- 28500.
BREYTINGAR
Á LÁNUMÚR
BYGGINGAR
SJÓÐI
VERKAMANNA
Lán úr sjóðnum mega nú nema 85% af
þeim kostnaðargrundvelli, sem Húsnæðis-
málastjórn samþykkir.
Heimilt er að hækka lánshlutfallið í allt að
90% ef um sérstaklega erfiðar fjölskyldu- eða
fjárhagsástæður er að ræða.
Einnig er heimilt að veita sérstök lán til allt
að þriggja ára til þeirra, sem eiga í verulegum
erfiðleikum með útborgun.
RAÐGJAFAR-
STÖÐ FYRIR
HÚS-
BYGGJENDUR
OG IBÚÐA-
KAUPENDUR
Ráðgjafarstöð stofnunarinnar hefur með
höndum ráðgjöf til handa lántakendum. Þeim
stendur þar til boða þjónusta ýmissa sérfræð-
inga, t.d. verkfræðinga, viðskiptafræðinga,
lögfræðinga, arkitekta, bókhaldsmanna o.fl.
aðila. Fólk er eindregið hvatt til að notfæra sér
þessa þjónustu, sem byggir á mikilli reynslu.
Stöðin er opin kl. 8-16 daglega, sími 28500.
Auglýsing þessi er birt að höfðu
samráði og í samvinnu við Félags-
málaráðuneytið og Alþýðusamband
íslands.
HVERNIG
GETURÐU
FENGIÐ
FREKARI
UPPLÝSINGAR?
Þær geturðu að sjálfsögðu fengið með
ýmsu móti. En taktu með varúð upplýsingum,
sem berast manna í milli eða söluaðilar veita,
þótt vel séu meintar og gefnar í góðri trú.
Hafðu samband við Húsnæðisstofnunina
sjálfa, sem opin er kl. 8-16 daglega, sími
28500. Auk þess verða á næstunni haldnir
kynningarfundir víða í landinu, þar sem sér-
fróðir menn um hina nýju löggjöf og fram-
kvæmd hennar munu flytja erindi og svara
fyrirspurnum. Kynningarbæklingar eru fyrir
hendi í Húsnæðisstofnuninni, Félagsmála-
ráðuneytinu, Byggingaþjónustunni,
Hallveigarstíg 1, Reykjavík og á skrifstofum
sveitarfélaga í landinu.
Húsnæðisstofnun
og
Alþýðusambandið
hafa ákveðið
að hafa sérstakan
símatíma
í dag kl. 5-8,
á morgun kl. 5-8
og næstkomandi
laugardag kl. 1-6,
óski menn eftir
frekari
upplýsingum.
Sími Alþýðusambandsins
er 83044 og sími
Húsnæðisstofnunarinnar
er 28500.
Húsnæðisstofnun ríkisins
Laugavegi 77. 101 Reykjavík. Sími 28500