Dagur - 19.11.1986, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 19. nóvember 1986
viðtal dagsins.
MCHJSi
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari._____________________________
Embættismannakerfið
þungt í vöfum
Embættismannakerfið í landinu fékk þunga
ákúru á dögunum og frá ekki ómerkari manni en
forsætisráðherra. Embættismenn hafa lengi haft
það orð á sér að þeir ráðskist meira og minna
með hin ýmsu mál sem ekki sé í þeirra verka-
hring að taka neinar ákvarðanir um. Einkum hef-
ur það verið gagnrýnt að erfiðlega gangi að fá
mál afgreidd frá kerfinu, jafnvel þó að stjórn-
valdsákvörðun liggi fyrir um afgreiðslu málsins.
Kerfið er talið vera þungt í vöfum.
Forsætisráðherra viðhafði gagnrýni sína
vegna eins ákveðins máls er snertir skreiðarút-
flutning og endurreikning vaxta. Ríkisstjórnin
tók ákvörðun um afgreiðslu málsins í ágúst og
um miðjan nóvember var það ennþá fast í kerf-
inu, nánar tiltekið í Seðlabankanum. For-
sætisráðherra sagði í viðtali við dagblaðið Tím-
ann af þessu tilefni:
„Ég verð því miður að segja að þegar ríkis-
stjórnin tekur ákvörðun, þá tekur vikur og mán-
uði að koma einföldum málum í gegnum emb-l
. ættismannakerfið, sérstaklega bankakerfið. Ég
held að þeir séu orðnir allt of margir þessir emb-i
ættismenn í bönkunum og að það mætti fækka
þeim og láta málin ganga hraðar fyrir sig. Þetta
er satt að segja að verða alvarlegt mál, því hér er
bunki af svona málum sem stranda á einhverj-
um embættismönnum sem eru að gera sig digra,
þótt ákvörðun ríkisstjórnarinnar liggi fyrir,"
sagði forsætisráðherra í þessu fréttaviðtali.
Athyglisvert er að ráðherra telur seina
afgreiðslu mála ekki stafa af því að ekki séu
nægilega margir embættismenn til að sinna
þeim, heldur þveröfugt. Embættismenn séu
orðnir of margir og mál velkist í kerfinu, frá
manni til manns. Oft er haft á orði að í ráðuneyt-
um og öðrum embættismannastofnunum fari
allt of mikill tími í það að flytja til pappíra. Þá eru
píslargöngur sveitarstjórnamanna á vit emb-i
ættismannakerfisins í höfuðborginni þekkt
fyrirbæri. Stór hluti af starfstíma þeirra fer í að
ganga á milli stofnana.
Það er eins og eitthvert tregðulögmál sé inn-
byggt í stjórnkerfinu, sem veldur því að af-
greiðsla mála verður seinvirk. Flestir embættis-
menn eru vafalaust hæfir og allir af vilja gerðir
að hðka til fyrir málum sem bíða afgreiðslu. Á
hinn bóginn er vitað að innan raða þeirra eru
smákóngar sem telja sig hafna yfir það að taka
við fyrirmælum frá löglega kjörnum yfirvöldum
landsins.
Stirt embættismannakerfi er ekkert sérfyrir-
brigði á íslandi. Þetta er þekkt í flestum löndum
og einkum þar sem skrifræði er í hávegum haft.
Það er nauðsynlegt að vanda til afgreiðslu mála,
um það þarf ekki að deila, en ef skrifræðið er far-
ið að verða til skaða þarf að leita leiða til einföld-
unar. HS
m
Ingibjörg Auöunsdóttir og Hilda Torfadóttir í góðum hópi.
Nýjungar í
forskólakennslu
-Tilraunakennsla á málörvunarefni og nýtt myndband
um lestrarkennslu
Nýlega var haldið námskeið á
vegum Fræðsluskrifstofu
Norðurlands eystra fyrir for-
skólakennara á Akureyri.
Umsjón með námskeiðinu
hafði Ingibjörg Auðunsdóttir,
leiðbeinandi í byrjenda-
kennslu, en auk hennar höfðu
leiðsögn Valdís Jónsdóttir,
talkennari, sem fjallaði um
máltöku barna og Hilda Torfa-
dóttir, leiðbeinandi í íslensku,
sem kynnti nýtt málörv-
unarefni og verður það til-
raunakennt á Akureyri í vetur.
Tvennt nýtt kom fram á þessu
námskeiði, það er málörvunar-
efnið sem áður er minnst á og
myndband um byrjendakennslu
sem nýlega er lokið vinnu við. Á
blaðamannafundi sem haldinn
var eftir námskeiðið kynntu þær
Hilda og Ingibjörg þessar
nýjungar. Málörvunarefnið er
þýtt, endursamið og staðfært úr
sænsku og dönsku af Hildu, sem
einnig mun hafa umsjón með til-
raunakennslunni. Sagði Hilda að
það væri byggt á hugmyndum
Ingvars Lundbergs, sem er próf-
:essor í málvísindum í Umea í
Svíþjóð. Þetta eru málörvunar-
leikir, sem verða æfðir í 15-20
mín. á dag og hafa rannsóknir
Ingvars Lundbergs sýnt, að notk-
un þeirra örvar málþroska, ef
þeir eru notaðir eftir settum
reglum. Þá er búið að kenna
börnunum hugtök og auka til-
finningu þeirra fyrir málinu,
þannig að þeim gangi betur að
læra að lesa.
í vetur á að kenna þetta efni í
öllum forskólabekkjum á Akur-
eyri og Dalvík og síðan verður
fylgst með þessum börnum næstu
3 árin í lestrarnámi. Markmið til-
raunakennslunnar er í stuttu máli
það að skjalfesta að á íslensku sé
samhengi milli málþroska og
lestrarnáms fyrstu þrjú árin, að
sanna að málþroska er hægt að
örva með skipulagðri og mark-
vissri málörvun og að þróa mál-
örvunarkerfið þannig að hver
kennari geti aðlagað það sinni
kennslu.
Sagði Hilda að þetta væri í
fyrsta skipti sem námsefni væri
tilraunakennt á vegum Fræðslu-
skrifstofu Norðurlands eystra og
því merkur áfangi í starfsemi
hennar. Hins vegar hefur þetta
verið gert áður, en ekki mark-
visst og því ekki borið sama
árangur. Tilraunakennslan miðar
að því að örva málþroska barna.
Þegar barnið getur leikið með
mál, vísur og þulur - þegar það
skilur að hægt er að skipta því
sem við segjum, í setningar, orð,
samstöfur og hljóð, þá er það á
réttri leið.
Hilda var spurð hvort hún
hefði samanburðarhóp, þ.e. börn
sem ekki fá málörvun og sagði
hún að það yrði reynt.
Á námskeiðinu voru sýnd tvö
myndbönd. Annað er gamalt í
eigu Fræðsluskrifstofunnar, en
hitt er nýtt. Það er tekið í
Lundarskóla síðast liðið vor. Þar
er verið að benda á ákveðin
vinnubrögð í lestrarkennslunni,
bæði nýjar og gamlar aðferðir.
Það er notuð hljóðlestraraðferð,
önnur aðferð frá Svíþjóð, LTG
aðferðin og fleiri aðferðir. Þar er
gengið út frá máli barnanna
meira en að nota lestrarbækur. í
myndbandinu fara börnin í ferð
fram í Kjarnaskóg. Þegar heim
var komið ræddi kennarinn við
nemendur um ferðina og síðan
var búin til saga um hana. Út úr
þeim texta var tekið ákveðið
hljóð, í þessu tilfelli a, og það var
kennt. Þetta er byggt á þeirri
hugmynd að börnin eigi auðveld-
ara með að lesa erfiðan texta ef
hann er þeirra eigin. Markmiðið
er að byggja námið á leik og að
börnin fái að vinna frjótt starf.
Sagði Ingibjörg að þetta væri
fyrsta myndbandið sem útbúið
væri á vegum Fræðsluskrifstofu
Norðurlands eystra til þessara
nota og vonandi verður framhald
þar á. Þjónustusvæði F.N.e nær
frá Ólafsfirði austur á Þórshöfn.
Myndband eins og þetta gefur
leiðbeinendum möguleika til að
kynna nýjar kennsluaóferðir í
afskekktum skólum á svæðinu á
mun einfaldari hátt en verið hef-
ur til þessa.
Aðspurðar sögðu þær Hilda og
Ingibjörg að ekki væri verið að
auka kennslu í forskólanum held-
ur væri verið að taka upp nýjar
aðferðir. Sögðu þær að forskóla-
kennarar á Akureyri hefðu unnið
mjög markvisst starf í haust og
hafa vaknað 2 spurningar í fram-
haldi af því. Sú fyrri er hvernig
megi fækka nemendum í deildum
í forskólanum. Þeir eru 15-22 í
deildum þar sem 1 kennari er og
allt upp í 39 nemendur þar sem 2
kennarar eru. Þetta háir kennur-
unum mjög í starfi því það er erf-
itt að sinna einstaklingnum þar
sem svona mikill fjöldi er. Hin
spurningin var hvernig megi bæta
námsumhverfi og aðstöðu barna í
1. bekk. Foreldrar 6 ára barna
borga efnisgjald og í gegnum árin
hefur verið hægt að nýta þessa
peninga vel og búa stofur forskól-
ans vel út. En síðan þegar er
komið upp í 1. bekk eru skóla-
stofurnar ekki eins vel búnar
kennslugögnum. Þá miðast nám-
ið meira við bækurnar en minna
við skapandi starf. -HJS