Dagur - 19.11.1986, Blaðsíða 12
Akureyri, miðvikudagur 19. nóvember 1986
Stórbætt þjónusta
Getum smíðað alla vega púströr.
Eigum til beygjur 45° og 90°
Stóraukið úrval af kútum, pakkningum og
festingum í flesta bíla.
í— »
ísetning á staðnum
CM
CNI
■
co
cr>
cn
Varahlutaverslun
Norðurland vestra:
Prólkjör hjá
Framsókn
- Allnýstárlegar prófkjörsreglur
hjá
Prófkjör framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi eystra
fer fram um næstu helgi. Að
sögn Ástvalds Guðmundsson-
ar formanns kjördæmisráðs
Framsóknarflokksins á
Þórshöfn:
Góð veiði
smærri
bátunum
„Það er rólegt fiskirí hjá okkur
núna og lítið um að vera,“
sagði Jóhann A. Jónsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrysti-
hússins á Þórshöfn í samtali
við Dag.
Sagði Jóhann að það væri frek-
ar lítil vinna núna en það væri í
samræmi við árstíma, það væri
alltaf frekar lítið að gera á haust-
in. „Það er hér 70 tonna bátur á
línu, Fagranesið, og hefur fiskað
ágætlega, svona 5-7 tonn í róðri.
Smærri bátarnir eru flestir á línu
og hafa fiskað vel. Geir er á drag-
nót og er búinn að fara einn túr á
dragnót síðan hann hætti á rækj-
unni og kom með 10 tonn úr
þeim túr,“ sagði Jóhann.
Stakfellið, togarinn á Þórshöfn
er búinn að vera bilaður undan-
farið og er í viðgerð í Slippstöð-
inni á Akureyri. Hann er búinn
að vera í viku í slipp og er gert
ráð fyrir að hann verði þar í 10
daga í viðbót. Jóhann var spurð-
ur hvort það kæmi sér ekki illa
fyrir frystihúsið þegar togarinn
bilar. „Það er að sjálfsögðu
minna hráefni en þetta fer mest
eftir tíðarfari. Ef veður er sæmi-
legt fiska smærri bátarnir ágæt-
lega, en ef það er óstöðugt fiska
þeir ekki neitt,“ sagði Jóhann að
lokurn. -HJS
Noröurlandi vestra, hefur
nokkurs misskilnings gætt
varöandi þær reglur sem gilda í
prófkjörinu. Þessar reglur eru
nýjar af nálinni og með nokk-
uð öðrum hætti en áður hefur
tíðkast.
Hver kjósandi merkir við tvo
frambjóðendur í prófkjörinu:
Setja skal töluna 1 við nafn þess
sem kjósandi vill að verði númer
eitt en töluna 2 við nafn þess sem
kjósandi vill að verði númer tvö.
Ef frambjóðandi fær yfir 40%
greiddra atkvæða alls, skal telja
atkvæði hans sem númer 2 að 2/5
hlutum til bindandi kjörs. Ef
frambjóðandi nær ekki 40%
greiddra atkvæða telja atkvæði
hans sem númer tvö ekki.
Þetta virðist alltorskilið og því
rétt að nefna lítið dæmi til
skýringar.
Dæmi: 200 manns taka þátt í
prófkjörinu. Frambjóðandi A
fær 90 atkvæði í 1. sæti og 40
atkvæði í 2. sæti. Frambjóðandi
B fær 80 atkvæði í 1. sæti og 70
atkvæði í 2. sæti. Frambjóðandi
C fær 30 atkvæði í 1. sæti og 90
atkvæði í 2. sæti. Allir hafa þeir
þar með fengið yfir 40% greiddra
atkvæða. Samkvæmt ofangreind-
um reglum verður röð þeirra þá
þessi:
A =90 +16 (40% af atkvæðum
í 2. sæti) =106 atkvæði =2. sæti.
B =80 +28 (40% af atkvæðum
í 2. sæti) =108 atkvæði =1. sæti.
C = 30 +36 (40% af atkvæðum
í 2. sæti) =66 atkvæði = 3. sæti.
Sem fyrr segir fer prófkjörið
fram um næstu helgi. Allir þeir
sem verða 18 ára á næsta ári eða
eldri og skrifa undir stuðningsyf-
irlýsingu við flokkinn áður en
prófkjörið hefst, geta tekið þátt í
kosningunni.
Frambjóðendur eru eftirtaldir:
Elín R. Líndal, Guðrún Hjör-
leifsdóttir, Páll Pétursson, Stefán
Guðmundsson og Sverrir Sveins-
son. BB.
'Jart*
Framkvæmdum við Leiruveg miðar vel áfram og eins og sjá má styttist óðum
í að vegurinn nái alveg yfir Leirurnar. Mynd: rþb
Akureyri:
Tölvutæki sf.
kaupa Bókval
Tölvutæki s.f. hafa keypt
verslunina Bókval, sem er á
horni Kaupvangsstrætis og
Skipagötu og munu nýju eig-
endurnir taka við rekstrinum
1. janúar 1987.
Bókval s.f. er stærsta bóka- og
ritfangaverslunin utan Reykja-
víkursvæðisins. Bókval selur auk
bóka- og ritfanga, skrifstofutæki
frá Skrifstofuvélum h.f. og skrif-
stofuhúsgögn frá ýmsum aðilum í
Reykjavík. Fyrri eigendur Bók-
vals eru Aðalsteinn Jósepsson og
fjölskylda og halda þau upp á 20
ára afmæli verslunarinnar um
þessar mundir, í nýinnréttaðri
verslun.
Tölvutæki s.f. hafa rekið versl-
unar- og þjónustufyrirtæki með
alhliða tölvubúnað og rekstrar-
vörur að Gránufélagsgötu 4 og
annast útibú tölvudeildar Skrif-
stofuvéla h.f. á Akureyri síðast-
liðin tvö ár. Með þessum kaupum
hyggjast eigendur Tölvutækja s.f.
breikka starfssvið fyrirtækisins og
bjóða einstaklingum og fyrirtækj-
um allar vörur nauðsynlegar til
skrifstofureksturs, allt frá flókn-
um tölvubúnaði til smæstu rit-
fanga. Auk þess mun fyrirtækið
bjóða bækur, blöð, tímarit,
teiknivörur og námsgögn eins og
Bókval hefur gert í 20 ár. Eig-
endur Tölvutækja s.f. eru bræð-
urnir Unnar Þór og Jón Ellert
Lárussynir.
■ ■
Útgerðarfélag Skagfirðinga:
„011 skipin með end-
ingartíma nýrra skipa“
- segir Marteinn Friðriksson, stjórnarformaður Ú.S.
„Öllum sem kunnugir eru
útgerðarrekstri á íslandi
undanfarin ár er Ijóst, að faili
tveir togarar úr rekstri hálft
rekstrarár og aðeins einn er
eftir til að standa undir félag-
inu, er fjarri því að tekjur
komi inn til þess að standa við
Akureyri:
Helgi magri fer í þurrk
og meðferð
„Það var ákveðið að taka stytt-
una niður og setja hana í þurrk
og reyna að gera við hana,
enda tel ég brýna nauðsyn að
gera eitthvað í málinu,“ sagði
Gunnar Ragnars forseti bæjar-
stjórnar og formaður menning-
armáianefndar Akureyrar um
styttuna af Helga Magra, sem
stendur á klöppunum fyrir
ofan Glerárgötu á Akureyri.
Það hefur komið í ljós við
skoðun á styttunni að hún. er
mjög illa farin og þarfnast stór-
viðgerðar. Mcðal annars er brot-
inn fingur á styttunni auk þess
sem miklar skemmdir eru víðs
vegar í steypu.
Því hefur verið ákveðið að
stytta Helga Magra, sem er nokk-
urs konar tákn fyrir Akureyri,
fari í þurrk í vctur og viðgerð fari
fram á henni. Mun það falla í
skaut Hitaveitunnar að hafa
styttuna í sínum húsakynnum
meðan mesta vætan rennur úr
henni. Ekki hefur verið ákveðið
hver taki að sér viðgerðina, en
það mun að öllum líkindum
verða maður með góða kunnáttu
í slíkum vinnubrögðum.
„Það er fullur vilji fyrir því að
gera við styttuna ef nokkur kost-
ur er og koma henni fyrir á sínum
stað aftur,“ sagði Gunnar
Ragnars. gcj-
allar skuldbindingar á eðlileg-
um tíma, jafnvel þótt skipið
sem í rekstri er sé aflahæst á
sínu svæði, eins og raunin er
hjá okkur.“
Þetta sagði Marteinn Friðriks-
son stjórnarformaður Útgerðar-
félags Skagfirðinga í tilefni frétt-
ar í blaðinu sl. föstudag. Mar-
teinn er alls ekki samþykkur
þeirri mynd sem undirritaður dró
upp af stöðu félagsins eftir að
hafa setið hluthafafund í síðustu
viku og telur Marteinn hana til
þess fallna að skaða félagið og
reyndar allt byggðarlagið. Hann
kveðst hafa vonast til að það
þætti fréttnæmt að einu útgerð-
arfyrirtæki á íslandi hefur tekist
að endurnýja öll sín skip og ætti
nú í rekstri þrjá skuttogara með
endingartíma nýrra skipa, á með-
an öll önnur togarafélög á íslandi
eru með 12-15 ára gömul skip í
rekstri. -þá
s«e»r.
Þessi mynd var tekin þegar togarinn Drangcy kom til heimaliafnar á Sauð-
árkróki í haust frá Þýskalandi þar sem gagngerar endurbætur voru unnar á
skipinu. Mynd: -þá