Dagur - 02.12.1986, Page 6
6 - DAGUR - 2. desember 1986
Filmuhúsið
Akureyri
Myndval
Akureyri
Hans Petersen hf.
Keykjavík
David Pitt & Co hf.
Reykjavík
Þorfinnur Gunnlaugsson
Hafnarfirði
Ijósmynd '86
Strandgötu 31
Ljósmyndakeppni
Dags ’86
Vegna mikillar þátttöku framlengjum við skila-
frestinn um eina viku, eða til föstudagsins 5. des. ’86.
1. verðlaun:
Olympus OMIO
Aukaverðlaun:
OMIO, pappír og vökvar til
framköllunar í lit og svart-
hvítu. Ektaflex framköllunar-
vélar, filmur og ókeypis fram-
köllun.
Björn Sigurösson • Baldursbrekku 7 ■ Símar 41534 ■ Sérleyfisferöir ■
Hópferöir • Saetaferðir • Vöruflutningar
Húsavík - Akureyri - Húsavík
Breytt áætlun á Húsavík í desember
Frá Húsavík Frá Akureyri
Mánud. 01.12.86 kl. 11.00 kl. 16.15
Þriðjud. 02.12.86 kl. 09.00 kl. 16.15
Miðvikud. 03.12.86 kl. 11.00 kl. 16.15
Fimmtud. 04.12.86 kl. 09.00 kl. 16.15
Föstud. 05.12.86 kl. 09.00 kl. 17.00
Laugard. 06.12.86
Sunnud. 07.12.86 kl. 18.00 kl.21.00
Mánud. 08.12.86 kl. 11.00 kl. 16.15
Þriðjud. 09.12.86 kl. 09.00 kl. 16.15
Miðvikud. 10.12.86 kl. 11.00 kl. 16.15
Fimmtud. 11.12.86 kl. 09.00 kl. 16.15
Föstud. 12.12.86 ki. 09.00 kl. 17.00
Laugard. 13.12.86
Sunnud. 14.12.86 kl. 18.00 kl.21.00
Mánud. 15.12.86 kl. 11.00 kl. 16.15
Þriðjud. 16.12.86 kl. 09.00 kl. 16.15
Miðvikud. 17.12.86 kl. 11.00 kl. 16.15
Fimmtud. 18.12.86 kl. 09.00 kl. 16.15
Föstud. 19.12.86 kl. 09.00 kl. 17.00
Laugard. 20.12.86 kl. 09.00 kl. 17.00
Sunnud. 21.12.86 kl. 18.00 kl. 21.00
Mánud. 22.12.86 kl. 11.00 kl. 16.15
Þriðjud. 23.12.86 kl. 09.00 kl.17.00
Miðvikud. 24.12.86
Fimmtud. 25.12.86
Föstud. 26.12.86
Laugard. 27.12.86
Sunnud. 28.12.86 kl. 18.00 kl. 21.00
Mánud. 29.12.86 kl. 11.00 kl. 16.15
Þriðjud. 30.12.86 kl. 09.00 kl. 16.15
Miðvikud. 31.12.86
Öil vörumóttaka Akureyri: Ríkisskip v/Sjávargötu sími 23936.
Vörur fluttar í öllum auglýstum ferðum. Vörur berist einni klst. fyrir
auglýsta brottför.
Afgreiðsla Húsavík: Flugleiðir, Stóragarði 7, símar41580 og 41140.
Farþegaafgr. Akureyri: Öndvegi hf, Hafnarstræti 82, sími 24442.
Björn Sigurðsson, sérleyfishafi.
-bækuc
Göngur
og réttir
- 4. bindi
Þetta gagnmerka ritsafn, Göngur
og réttir, kom út hjá bókaútgáf-
unni Norðra á árunum 1948-1953
og safnaði Bragi Sigurjónsson
efninu og bjó til prentunar. Nú
hefur þetta ritsafn verið ófáan-
legt um mörg ár. En árið 1983
hóf Skjaldborg endurútgáfu rit-
safnsins í umsjá Braga, sem raðar
efninu upp á ný, greinir frá breyt-
Súpujurtirnar
frá Flóru gera
gæfumuninn
Kotárgerði og
Stekkjargerði
Efri hluta
Oddeyrar.
Hluta af Gerða-
hverfi II
frá næstu
mánaðamótum.
ingum á gangnatilhögun á helstu
gangnaslóðum og bætir ýmsu efni
við, sem aflast hefir.
í þessu fjórða bindi Gangna og
rétta segir af göngum og réttum í
Skagafjarðarsýslu, Eyjafjarðar-
sýslu, og Suður-Þingeyjarsýslu að
Mývatnssveit og Aðaldal.
Þá er fróðlegur formáli um
fráfærur og ýmsar fráfærnavenj-
ur, og í bókarauka eru frásagnir
af ýmsum eftirminnilegum leitum
síðari ára, þar á meðal snjó-
göngunum 1963 á Eyvindarstaða-
heiði.
Þó að hart sé nú sótt að sauð-
kindinni og sauðfjárbændum
fækki, eiga göngur og réttir enn
sinn sérstæða hugblæ og
aðdráttarafl, og í ritsafn Braga,
sem nu er að koma út öðru sinni,
er mikinn fróðleik að sækja og
mikla skemmtan.
Útgefandi er Skjaldborg.
11
,,
Dreifar af
dagsláttu
Ljóðabók eftir Kristján skáld frá
Djúpalæk. Bókin var gefin út í
tilefni af sjötugsafmæli skáldsins í
júlí í sumar. Hér er að finna úr-
val úr fimm síðustu ljóðabókum
höfundar og óprentuðu handriti
nýrra ljóða. - Gísli Jónsson
menntaskólakennari ritar ítarleg-
an formála um skáldið, og segir
þar m.a.: „Hann hefur verið
varðstöðumaður íslensks þjóð-
ernis, fagurra hugsjóna og fornra
dyggða. Hann er þjóðskáld í öll-
um skilningi, lesinn, numinn og
sunginn á sjó og landi. En
umfram allt er hann bara
skáld...“
Útgefandi er Skjaldborg.
Kreppu-
árin á
Islandi
1930-1939
- eftir Kjartan Jónasson
Út er komið hjá Erni og Örlygi
fyrsta bindi af þremur eftir Kjart-
an Jónasson sagnfræðing og nefn-
ist það Kreppuárin á íslandi
1930-1939. Þessi bók fjallar um
viðburðaríkt tímabil í ís-
landssögunni. Hún fjallar aðal-
lega um árin 1931 og 1932 en
ýmsir þættir hennar eru raktir frá
árinu 1930 auk þess sem í fyrsta
kafla er atburðarásin sett í víðara
samhengi við þróun mála á
alþj óðavettvangi.
Islendingar vöknuðu upp við
vondan draum eftir veisluglaum
Alþingishátíðarinnar síðla árs
1930. í hönd fóru hörð stétta-
átök. Kommúnistaflokkur ís-
lands var stofnaður og á þeim bæ
töluðu menn opinskátt um að
„tími hefndarinnar fyrir allar
þrengingar og kúgun undanfar-
inna alda“ væri kominn. í stjórn-
málunum skapaðist undarlegt
ástand þegar slitnaði upp úr
óformlegu stjórnarsamstarfi
Framsóknar- og Alþýðuflokks.
Tryggvi Þórhallsson rauf þingið
en það leiddi til hernaðarástands
á götum Reykjavíkur og lá við
stjórnarbyltingu þar sem í her-
búðum sjálfstæðismanna og
alþýðuflokksmanna var rætt um
að hafa þingrof Tryggva og kon-
ungs að engu, jafnvel slíta stjórn-
arsambandinu við konung og
Dani og stofna þegar íslenskt lýð-
veldi.
^.íslenskur fiskiðnaður
Höldum í trausta
markaði
Ljóst er að árið 1986 er mikið
breytingaár í íslenskum fiskiðn-
aði og sjávarútvegi. Nú er svo
komið að íslenski fiskurinn er svo
eftirsóttur á erlendum mörkuð-
um að hvergi er hægt að anna
eftirspurn.
Stærstan þátt í þessu á sú gífur-
lega eftirspurn á ferskum fiski í
Evrópu og það háa verð sem þar
fæst fyrir fiskinn. Þessi ferskfisk-
útflutningur hefur gert það að
verkum að við höfum átt í veru-
legum erfiðleikum með að standa
við gerða samninga á saltfisk- og
freðfiskmörkuðum okkar.
Þessi svokallaði gámafiskur
gefur sjómönnum og útgerð mik-
inn tekjuauka, en fyrir vinnslu-
stöðvar í landi aukna óvissu og
oft á tíðum aukna rekstrarerfið-
leika.
Undirritaður fór nýverið til
Bandaríkjanna til að skoða Cold-
water Seafood Corporation, sem
er í eigu Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna. Coldwater sér um
sölu og vinnslu á framleiðslu
frystihúsa innan S.H. í Banda-
ríkjunum.
Arið 1983 voru starfræktar
tvær verksmiðjur þar við
úrvinnslu á íslenskum fiski, aðal-
lega blokk, en nú er búið að loka
annarri og hin er starfrækt 8
stundir á dag.
Þegar talað var við dreifinear-
aðila á íslenska fiskinum kom í
ljós, að okkar stærsta vandamál á
Bandaríkjamarkaði er að á okk-
ur íslendinga er ekki hægt að
stóla, við erum ekki áreiðanlegir.
Aðalatriðið hjá okkar viðskipta-
vinum er að stöðugt framboð sé á
fiski, að þeir geti fengið vöruna
þegar þeim hentar, en á þessu er
mikill misbrestur í dag. Ljóst er,
að ef ekki tekst betur til en í dag,