Dagur - 02.12.1986, Síða 9
2. desember 1986 - DAGUR - 9
Laufabrauðið skorið.
ristrún, Helga og Inga. Sitjandi: Jónasína og Katrín.
[ cldhúsinu.
Kristrún Karlsdóttir formaður
félagsins við að steikja brauð.
ferð, hún er mjög vinsæl og í
sumar voru um hundrað manns
sem tóku þátt í ferðinni. Petta er
orðið svo kostnaðarsamt að
undanfarin tvö ár hefur tóm-
stundaráð gengið til liðs við
okkur.
f sumar héldum við útimarkað
og fjármunir sem við öflum
ganga yfirleitt til einhverra líkn-
armála, sjúkrahúsið hefur notið
góðs af okkar starfi og við erum
með hugann við kirkjuna þegar á
þarf að halda og verkefnin eru
þannig að við ráðum við þau. Á
síðustu árum höfum við fyrst og
fremst haft hugann við sjúkra-
húsið og tekið þátt í söfnunum,
t.d. gekst kvenfélagasambandið
fyrir söfnun í sýslunni til kaupa á
Jónasína smakkar hvort laufabrauðið sé ekki boðlegt.
'> Katrín Eymundsdóttir raðar tilbúnum kökum.
en núna finnst mér það mjög
gott.“
- Ertu farin að gera laufabrauð
fyrir þitt heimili?
„Já, fljótlega eftir að ég fluttist
hingað kynntist ég laufabrauðs-
gerð hjá Helenu Hannesdóttur
og hef búið til laufabrauð síðan.
Börnunum mínum finnst þetta
ómissandi þáttur í jólahaldinu og
nú er ég að senda syni mínum í
Kanada nokkrar kökur svo hann
geti fengið að smakka það um
jólin.
Mér finnst laufabrauð orðið
ómissandi og mamma mín dvald-
ist hér ein jólin, henni fannst
ekkert varið í þetta laufabrauð til
að byrja með, en svo fór hún að
smakka það og allt í einu var hún
komin með delluna.
Þetta verður della en þetta er
líka list, sumar konurnar eru
stórkostlegar listakonur við
útskurðinn. Ég hef ekki náð því
ennþá að skera svona fallega út
með hníf en ætla að reyna það
núna fyrir jólin.“ IM
Helga gefur tíkinni Hrefnu að
smakka á laufabrauðinu.
æðabrennara og það var gaman
að því að þegar brennarinn var
afhentur formlega, viðurkenndi
yfirlæknirinn að hann hefði þegar
tekið tækið í notkun, þörfin var
það brýn að ekki var hægt að
bíða eftir hinni formlegu afhend-
ingu.
Skrúðgarðurinn er óskabarnið
okkar. í tilefni af 80 ára afmæli
félagsins keyptum við fyrstu
plönturnar í garðinn og höfum
unnið að uppbyggingu hans þó
þar sé einnig fastur starfsmaður á
sumrin. Þegar félagið varð 90 ára
keyptum við listaverk unnið úr
sedrusviði og komum fyrir í garð-
inum, það nefnist „Dans“, og er
eftir Sigrúnu Guðmundsdóttur.
Þetta var mikil fjárfesting fyrir
lítið félag.
Við hófum og sáum um rekstur
barnadagheimilis, þar til verkefn-
ið varð okkur ofviða og bærinn
tók við.
Júlíus Hafsteen stofnaði sjóð til
minningar um konu sína, Þór-
unni Hafsteen, þessi sjóður fór
illa í verðbólgunni eins og fleira,
en fyrir nokkrum árum gáfu börn
Júlíusar peninga til sjóðsins
þannig að við fórum að geta veitt
úr honum aftur. Sjóðurinn erætl-
aður til styrktar börnum á Húsa-
vík sem eiga við veikindi að
stríða. í tilefni af 100 ára afmæli
Júlíusar Hafsteen síðastliðið
sumar hugsuðu börn hans enn til
sjóðsins og komu færandi hendi
með stóra fjárhæð frá sér og dótt-
urdætrum Júlíusar, Wathnesystr-
um. Þetta lyftir sjóðnum geysi-
lega upp, við erum ekki með
neina sérstaka fjáröflun fyrir
hann en höfum látið eitthvað til
hans á hverju ári.
Það er alltaf mikið vandamál
hvernig eigi að afla fjár til félags-
ins og fyrir nokkrum árum tókum
við upp á því að búa til laufa-
brauð og selja það fyrir jólin. Við
höfum haft það fyrir sið að fimm
eða sex konur hittast heima hjá
einni og hver hópur gerir 100-120
kökur. Þetta er orðin okkar
öruggasta fjáröflunarleið því hún
bregst aldrei. Til að byrja með
urðu dálitlar umræður um hvort
þetta yrði ekki til þess að
laufabrauðsgerð legðist af í
heimahúsum en þetta hefur haft
þveröfug áhrif, t.d. kunni ég ekki
að búa til laufabrauð þegar ég
fluttist hingað en ég lærði það hjá
kvenfélaginu og veit að sömu
sögu má segja um fleiri konur.
Það er gaman að koma svona
saman og konurnar kynnast vel,
ég vona að þessi siður leggist ekki
niður. Laufabrauðið er alltaf selt
fyrsta laugardag í desember,
undanfarin ár hafa Lionsmenn
verið með kökubasar og jóla-
kortasölu um leið og við seljum
laufabrauðið en nú verður það
handknattleiksdeild Völsungs
sem verður með kökubasarinn.
Nokkrum sinnum höfum við
selt föndurvörur um leið og
laufabrauðið og það verður
einnig að þessu sinni, þetta eru
ýmsir litlir munir sem konurnar
hafa búið til sjálfar, ekki allir
tengdir jólum en þá er hægt að
kaupa til jólagjafa ef fólk vill.“
IM