Dagur - 12.12.1986, Qupperneq 14
1,41- DAQU-R i--1 ^'.^esember; :-198€ r
Verklega námið er skemmtilegt
- tveir nemendur í starfsfræðslu tæknir tali
í vetur er náms- og starfs-
fræðsla í fyrsta sinn skyldufag í
grunnskólum Akureyrar. Þessi
starfsfræðsla er í því fólgin að
nemendur heimsækja hina
ýmsu vinnustaði bæjarins,
(fara þrisvar sinnum á hvern
stað) og fá að kynnast að eigin
raun sem flestum störfum í
fyrirtækinu. Mér datt í hug að
forvitnast um hvernig
krökkunum fyndist þetta. Ég
tók því tvo nemendur í 9. bekk
Gagnfræðaskóla Akureyrar
tali, þau Kristján Jakobsson og
Kristjönu Þórisdóttur.
Ég byrjaði á að spyrja Kristján
hvert hann hefði farið í starfs-
kynningu.
„Ég fór í Matvörumarkaðinn í
Kaupangi og mér hefur fundist
ágætt að vera þar. Starfið er í því
fólgið að afgreiða við kassann,
raða í hillur og aðstoða við kjöt-
vinnsluna.“
- Gætir þú hugsað þér að
leggja þetta starf fyrir þig?
„Já, ég gæti vel hugsað mér
það.“
- Þú ert ekki eingöngu í verk-
legri starfsfræðslu, eða hvað?
„Nei, við erum í einum bókleg-
um tíma í viku og þar svarar
maður alls konar spurningum um
sjálfan sig og fleira."
- Hvað gætir þú hugsað þér að
verða, þegar þú hættir námi?
„Ég myndi helst vilja verða
kokkur eða bakari. Ég veit að
þarf u.þ.b. fjögurra ára nám til
að verða annað hvort. Ég hef
mikinn áhuga á þessum störfum
en hef svo sem ekki velt fyrir mér
laununum."
Kristján Jakobsson.
- Þér finnst sem sagt gaman í
starfsfræðslu?
„Já, það er mjög gaman að
kynnast hinum ýmsu fyrirtækjum
á þennan hátt og þeim margvís-
legu störfum sem þar eru unnin.“
Næst sneri ég mér að Kristjönu
og spurði hana hvar hún væri í
starfsfræðslu.
„Ég hef verið í Kristjánsbak-
aríi og finnst það alveg ágætt. Ég
hef verið látin setja krem á kökur
og baka ýmis brauð en ég verð að
segja eins og er að ég hef engan
áhuga á að gerast bakari að
atvinnu.“
- Hvað gætir þú þá hugsað þér
að verða?
„Ég væri alveg til í að vinna við
hjúkrun og jafnvel að gerast
hjúkrunarfræðingur. Ég hef mik-
inn áhuga á því starfi en ég veit
reyndar að til þess að verða
hjúkrunarfræðingur þarf maður
að læra í ein 8 eða 9 ár eftir
grunnskólann. Hins vegar veit ég
lítið um launakjörin.“
- Að lokum, finnst þér gaman
í starfsfræðslu?
„Já, í þessu verklega en bók-
legu tímarnir eru leiðinlegir.“
Unnið af Hjalta Finnssyni í starfskynningu.
VÖNDUÐ SÍMTÆKI
MEÐ TÓNVALI
STEREÓ ÚTVART
VHS MYNDBAND
3 KLUKKUSTUNDIR
LEITIN AÐ
ENDAR HJÁ ESSO
Á bensmstöðvum ESSO fast ódýrar en vandaðar
vörtir af ýmsu tagí, sem eru tílvaldar í jólapakkann.
Þar fæst Iíka jólapappír ásamt merkíspjöldum og
margs konar vamíngí til jólaundirbúníngs s.s. Iítaðar
perur í útíseríuna, framlengíngarsnúrur og öryggí,
að ógleymdum reykskynjurum og slökkvítækjum.
TVEIR KERTASTJAKAR
MEÐ KERTUM.
ESSOI
JÓIA-
aoffi
Komdti við á næstu bensínstöð ESSO og gerðu góð kaup.
Athugaðu að það er opíð bæðí á kvöldín og um helgar.
nestin,
Olíufélagið hf