Dagur - 12.12.1986, Qupperneq 21
9SGI 'iedmsaab ,ST - flUÐAQ - OS
12. desember 1986 - DAGUR - 21
Út erkomin plata.
Þaö er góð
plata. Ég er
ekki aö plata.
Meistari Megas
guöfaöirBubb
og þar með
fleiri tónlist-
armanna.
Ég á ekki
þessa plötu
en hef verið
svo lukku
legur aö
heyra flestöll ef ekki öll lög
hennar. Nú er það svo aö í síð-
ustu grein var ég skítlegur við
Eirík svo nú vil ég vera góður
við Megas. Það er að vísu alger
óþarfi því Megas mælir með sér
sjálfur. Platan nefnist: í góðri
trú. Síðasta föstudag var rásin
menningarleg og útvarpaði við-
tali við Megas í beinni útsend-
ingu. Þar var meistarinn spurð-
ur nokkurra spurninga af hinum
og þessum menningarsnápum
í íslensku þjóðlífi. Þess á milli
voru flutt lög af plötunni. Hvert
öðru betra. Fyrstu tvö lögin voru
leikin saman í nokkurs konar
syrpu. „Lóa Lóa“ og „Fríða
Fríða“. Bæði lögin frekar
„rokkuð" og textarnirsvona létt-
sýrðir. Fríða er dulítið þyngri en
Lóa og sú síöarnefnda pínu
„Rokkabillíleg". Megas sjálfur
sagði þennan föstudagsmorg-
un að yrkisefni plötunnar væri
hið dæmigerða umfjöllunarefni
hinnar stílfærðu dægurlagaver-
aldar. Hann minntist einnig á þá
fyrrum áþerandi áráttu sína að
skreyta lög sín löngum máls-
greinum og illskiljanlegum orö-
um sem hann átti til að grafa
upp í orðabók Blöndals. Slíku
er vart fyrir að fara á nýju plöt-
unni. Hún er mjög Ijóðræn og
sem slík tær, hrein og bein.
Eins og Megas sjálfur. Hann er
hættur að reykja og er búinn að
þurrka sig upp. Þessi plata ber
þess glögg merki og hér er á
ferð maður sem á að baki mikla
andlitslyftingu. Röddin er betri,
söngurinn fágaðri og eins og
Megas sagði: „Þegar maður
verður fallegri
í framan,
verða textarnir
líka fallegri í
framan.“ „Undir
rós“ var næsta
lag sem var flutt.
Þar er brugðið
á orðaleik með
smekklegri aðstoð
Bubba Morthens.
„Árstíð“ er
fallegt lag með kántrí yfirbragði
og texta eins og enginn gerir
nema Megas. Gott lag. „Löng
eru þau lík“ er hægt og mjúkt
lag með svolitlu þursarokkbíti.
Eitt besta lag plötunnar að
mínu mati. „Lítill fjólublár
Skódablús" var síðasta lagið
sem hljómaði af rásinni þennan
morgun með Megasi. Léttur
Hestsfílingur og fyndið lag,
samt ekki með því besta sem
Megas hefur gert. Yfir heildina
virðist mér þessi plata mjög
góð. Því stekk ég út í snjóinn
með barnslega tilhlökkun í
brjósti. Eftir 9 ára hlé er loksins
komin stúdíóplata frá Megasi.
Kannski fæ ég hana í jólagjöf.
Gerðu það mamma, fyrst ég
betla svona í þér fyrir allra aug-
um. Ha.
Þannig er nú það. Gulldrengur-
inn með plastnefið og engla-
röddina er búinn að gera bíó-
mynd. Þetta stóra barn hefur
nefnilega allt sem okkur stóru
börnin dreymir um en sjáum
aldrei. Marga, marga peninga
og þræla og ambáttir og dýra-
garð og risahöll og, og, og .. .
Já. Sko, þessi dýrð Mikjáls
kostaði hann litlar 15 milljónir
dollara. Það sem er kannski
undirfurðulegast við þennan
geyþilega kostnað er sú stað-
reynd að myndin er ekki nema
17 mínútna löng. í þrívidd.
Myndin er flokkuð sem vísinda-
skáldsaga með tónlistarívafi.
Einnig mun hún vera svo raun-
veruleg að sá er situr bergnum-
inn í salnum hefur það á tilfinn-
ingunni að Mikki og dýrin hans
standi Ijóslifandi fyrir framan
hann. Það er geðslegt eða hittó.
Myndin ber nafn. Það er,
Captain Eo. Michael leikur
Kapteininn, hetjuna sjálfa. Erki-
óvinur Eós er leikinn af Angel-
icu Huston. Hún er þannig í
hlutverki kvendjöfuls sem ræð-
ur örlögum lítillar plánetu og
níðist á íbúum hennar sem
mest hún getur. Allt þartil Mikki
mús, nei frændi hans kemur og
reddar málunum. „Using the
power of music, dance and
light“ til að skapa úr drungalegri
dauðastjörnu hamingjuríka ver-
öld Ijóss, lita og tónlistar. (Sbr.
Ég hef gengið hinn breiða veg
til glötunar, en síðan ég kynntist
. .. hefur líf mitt tekið stakka-
skiptum).
Leikstjóri er Francis Ford
Coppola. Nú, svo skreppið þið
bara til vesturstrandar Sáms
frænda, því annars staðar er
hún ekki sýnd.
Luciuhátíð
12. og 13. desember
í frétt um Luciuhátíð sem fram
fer um helgina kom fram að
söngurinn yrði í kirkjunni
þann 13. og 14. desember.
Þetta mun vera rangt sam-
kvæmt fréttatilkynningu og verð-
ur Luciusöngurinn föstudaginn
12. og laugardaginn 13. desem-
ber. Hefst söngurinn klukkan
20.30 báða dagana.
Það er hún „Diddú“ eða Sig-
rún Hjálmtýsdóttir sem fer með
hlutverk Luciu og syngur með
Karlakór Akureyrar, Barnakór
Akureyrar og Lúðrasveit Akur-
eyrar.
Raðhúsíbuð
Til sölu mjög góö raðhúsíbúð á tveimur
hæðum, með bílskúr, við Steinahlíð.
Fasteignasalan
Brekkugötu 4, sími 21744.
Sölustjóri: Sævar Jónatansson.
Jólabækurnar
komnar í Fróða
Birkir + Anna Ást.
Blátt og rautt.
Drekinn með rauðu augun.
Kóngar í ríki sínu.
Kvæðabók Jóns Helgasonar.
Ljóri sálar minnar.
Matur og drykkur.
Með stjörnur í augum.
Meiri stælar. Engir stælar.
Ritsafn Sverrir Kristjáns-
son l-lll.
Skilaboðaskjóðan.
Uppreisn á Isafirði.
Úr snöru fuglarans.
Ástin á tímum kólerunnar
Fjölbreytt úrval af bókum.
Félagsmenn munið afsláttinn.
Opið laugardag 10-18.
Opið í desember frá kl. 10-18. Sendum í póstkröfu.
Mál og
Menning
Fróði,
Kaupvangsstræti 19
Sími 26345.
Iðnráðgjafi
Starf iðnráðgjafa á Norðurlandi vestra með
aðsetri á Blönduósi er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur um starfið er til 20. desember og
skal umsóknum skilað til Knúts Aadnegard Raftahlíð
22, 550 Sauðárkróki, en hann gefur jafnframt allar
nánari upplýsingar um starfið í síma 95-5669 eftir kl.
20. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra.
Náttúrufræðistofnun Norðurlands
Forstöðumaður
Hinn 1. júní 1987 verða Náttúrugripasafnið og
Lystigarðurinn á Akureyri sameinuð í eina
stofnun, Náttúrufræðistofnun Norðurlands. Auk
núverandi starfsemi verður stefnt að því í fram-
tíðinni að stofnunin taki að sér rannsóknir á sviði
orkumála, fiskeldis, vatnsöflunar og náttúru-
verndar.
Laust er starf forstöðumanns stofnunarinnar frá
1. júní 1987 og er umsóknarfrestur til 1. febrúar
nk.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í
náttúruvísindum, helst grasafræði, auk þess sem
krafist er starfsreynslu við vísindastörf og
stjórnun.
Umsóknir berist undirrituðum, sem veitir nánari
upplýsingar í síma 96-21000 alla virka daga kl.
10-12.
Akureyri, 11. desember 1986.
Bæjarstjórinn á AkoreyrL