Dagur - 30.03.1987, Page 6
6 - DAGUR - 30. mars 1987
„Yamir gegn fikniefiium eru
aðabnál samtakanna í dag“
- Spjallað við Hauk Bjömsson Lionsmann ^
nýja, söfnuðum fyrir sjúkrarúm-
um þangað fyrir 2 millj. króna.
Nú er á döfinni fjárstuðningur
við Sjálfsbjörg og munum við
veita 100 þús. krónum til þeirra
samtaka.“
- Hvað eru margir klúbbar
starfandi á þínu svæði?
Þeir eru 8. Miðað við þær regl-
ur sem alþjóðastjórnin hefur sett
sér varðandi æskilegan lágmarks-
fjölda félaga hefur fjöldi Lions-
manna hér á svæðinu verið í lág-
marki. Við höfum verið að reyna
að bæta þetta í vetur með því að
fjölga í klúbbunum um lágmark
5% og einnig með fjölgun klúbba
á svæðinu. Hefur starfið ein-
kennst af þessu að miklu leyti í
vetur og ekki hægt að segja ann-.
að en mikið hafi verið unnið og
starfið blómlegt. I vetur var
stofnaður Lionessuklúbbur hér á
Sauðárkróki með 39 félögum. Ég
bind miklar vonir við stofnun
þessa klúbbs og sýnist konurnar
ætla að ná vel saman. Þær eru
þegar búnar að gera skemmtilega
hluti sem lofa góðu. í þessum
inánuði verða stofnaðir Lions-
klúbbur í Varmahlíð og
Lionessuklúbbur á Blönduósi.
Og svo er verið að vinna að
endurvakningu á Liönsklúbbnum
á Skagaströnd sem lognaðist út af
um 1980.“
- Hvernig eru tengsl klúbba á
þessu svæði við aðra klúbba í
landinu?
„í alheimssamtökunum er
ísland svæði númer 109. Landinu
er síðan skipt í tvennt a- og b-
svæðið og er markalínan dregin
með línu frá Akranesi að Vopna-
firði. Við erum á b-svæðinu,
ásamt Akranesi og Þórshöfn
nyrst. Stjórn b-svæðisins hefur
þrisvar í vetur komið saman til
fundar og er ég nýkominn af 3ja
fundinum. Ásamt stjórninni sitja
Frá fundi í Lionessuklúbbnuni Björk.
„Fyrsti Lionsklúbburinn var
stofnaður í Chicago í Banda-
ríkjunum árið 1911 af manni
að nafni Melvin Jones. Lions-
hreyfingin er stærstu klúbb-
samtök í heiminum sem vinna
að líknarmálum, með yfir 1,5
milljón félaga í yfir 150
löndum. Lion starfar mikið í
þróunarlöndunum, vinnur að
unglingaskiptum, tekur þátt í
rannsóknum á sviði læknis-
fræði, sér um námskeið á van-
þróuðu svæðunum og fyrir til-
stilli hins alþjóða hjálparsjóðs
samtakanna standa Lions-
klúbbar alls heimsins saman
um bráða neyðarhjálp, t.d. af
völdum jarðskjálfta, eldgosa,
þurrka og hungursneyðar.“
Haukur Björnsson á Sauðár-
króki svæðisstjóri á norðvest-
ursvæði sem nær frá Siglufirði
til Hólmavíkur varð við þeim
tilmælum að segja nokkur
fræðandi orð um Lionshreyf-
inguna og þá starfsemi sem
hún innir af hendi. Haukur
sem hefur tekið þátt í starfsemi
Lions í 15 ár hafði þetta um
markmið samtakanna að
segja:
„Það má segja að markmið
klúbbanna séu; að vekja og efla
anda skilnings meðal þjóða
heims, að efla meginreglur heil-
brigðis, stjórnarfars og borgara-
legra dyggða, að starfa af áhuga
að aukinni velferð átthaganna á
sviði félagsmála, menningar og
aimenns siðgæðis, að tengja
klúbbanna böndum vináttu, góðs
félagsanda og gagnkvæms
skilnings, að skapa vettvang fyrir
frjálsar umræður um öll málefni
sem almenning varðar að því til-
skildu að ekki séu rædd meðal
klúbbfélaga málefni stjórnmála-
flokka né sértrúarhópa, að hvetja
félagslynda menn til að þjóna
byggðarlagi sínu án persónulegs
ávinnings og að hvetja til dugn-
aðar og eflingar siðgæðis í við-
skiptum í hvers konar rekstri."
Stjórn Lionessuklúbbsins Bjarkar á Sauöárkróki. Frá vinstri: Áróra Sigur-
steinsdóttir, Aðalheiður Arnórsdóttir og Kristín Sveinsdóttir.
- Spanna viðfangsefni klúbb-
anna raunverulega svona breitt
svið?
„Já, en það má segja að fyrst
og fremst séu Lionsklúbbar þjón-
ustuklúbbar sem vinna að líknar-
málum. Til þess söfnum við pen-
ingum með ýmsum hætti: Seljum
ljósaperur og jóladagatöl eins og
margir hafa orðið varir við. Þá
vinnum við félagarnir í klúbbun-
um ýmislegt til fjáröflunar fyrir
hjálparstarf klúbbanna og gefum
andvirði þeirrar vinnu í sjóð. Við
förum í girðingarvinnu, á sjó,
málum togara, rífum hús, í
rækjuvinnslu o.fl. Þetta má segja
að séu helstu fjáröflunarleiðirn-
ar.“
- Hvernig hefur ykkur verið
tekið af fólki þegar fjáröflun hef-
ur staðið yfir?
„Almenningur hefur alltaf tek-
ið okkur vel og verið tilbúinn að
styrkja okkur á allan hátt. Okkar
klúbbur hér á Sauðárkróki hefur
mikið stutt sjúkrahúsið, er búinn
að gefa til þess mörg tæki sem
safnað hefur verið fyrir. Á síð-
asta ári stóðum við t.d. fyrir
mikilli fjársöfnun í sambandi við
hjúkrunar- og dvalarheimilið
Haukur Björnsson.
þessa fundi svæðisstjórarnir á
hverju svæði. Þar gefa svæðis-
stjórarnir skýrslu um hvað sé að
gerast á þeirra svæði og hvernig
málin ganga. Stjórnarmennirnir
gefa einnig skýrslur um gang
mála hjá sér og síðan eru málin
rædd fram og til baka og línur
lagðar.“
- Einhver stór verkefni í gangi
hjá Lionshreyfingunni í dag?
„Segja má að aðalvinnan hjá
Lionssamtökunum í dag sé undir-
búningur fyrir fræðslu um fíkni-
efni og afleiðingar af notkun
þeirra. Verið er að vinna að
svokölluðu kennsluprógrammi í
samvinnu við ríkisstjórnina og
bindum við miklar vonir við þetta
sérstaklega af því að ríkisstjórnin
hefur tekið þessu svo vel. Þegar
er hafin tilraunakennsla eftir
þessu prógrammi í 3 skólum.
Þegar hafa verið sendir kennarar
til Bandaríkjanna til að læra
þessa kennslu. Sumir kalla þetta
kennslukerfi hugþjálfun æskunn-
ar. Það er í því fólgið að þjálfa og
undirbúa börn til að takast á við
þann líkamlega og andlega vanda
sem fylgir því æviskeiði að breyt-
ast úr barni í ungling. Þetta verk-
efni er ágætt dæmi um það hvers
konar málum Lionshreyfingin
beitir sér fyrir.
Fíkniefnamálin voru einnig
aðalmál þessa fundar vegna fimm
ára áætlunar sem í gangi er hjá
okkur og tengist sérstökum fíkni-
efnavarnardegi sem samtökin
héldu í fyrsta skipti í fyrra og er
áformað að halda a.m.k. næstu
árin, fyrsta laugardag í maí. Þá
förum við út á göturnar og kynn-
um starfsemi samtakanna og
hvað þau eru að gera til varnar
fíkniefnavandanum.“
- Unglingaskipti nefndirðu
áðan, hvað er það?
„Þau eru eitt af okkar stóru
málum. Lionshreyfingin rekur í
mörgum þjóðlöndum svokallaðar
unglingabúðir. Við bjóðum ungl-
ingum að fara til einhverra af
þessum löndum sem unglinga-
búðirnar eru starfræktar í. Ungl-
ingarnir dvelja þá í 7-10 daga í
búðunum, en dvelja síðan í svip-
aðan tíma á Lionsheimilum.
Þessi samskipti innan alheims-
hreyfingarinnar eru gagnkvæm
þannig að hingað koma unglingar
frá þeim löndum sem unglingar
héðan fara til.“
- Hvað viltu segja að lokum?
„Ég get sagt það, að þeim tíma
sem ég hef fórnað í starfi fyrir
Lion hef ég aldrei séð eftir. Þetta
gefur mér miklu meira í staðinn,
starfið er svo göfugt. Ég hafði
hugsað mér þegar ég tók að mér
starf svæðisstjóra að reyna að
vinna, en gerði mér ekki grein
fyrir hvað þetta var raunverulega
mikil vinna. Ég held líka að það
sé mikill kostur, að Lionshreyf-
ingin hefur þá reglu að skipta ört
um stjórnendur. Svæðisstjórarnir
eru t. d. aðeins ár í senn og síðan
er skipaður svæðisstjóri úr næsta
klúbbi. Sá sem tekur við af mér
verður frá Siglufirði. Ég held að
þetta tryggi það að maðurinn sýni
þessu áhuga. Hann er bara í
þessu í eitt ár og getur þá beitt
sér af krafti." -þá