Dagur - 30.03.1987, Qupperneq 10
10 - DAGUR - 30. niars 1987
Málmfríður Sigurðardóttir:
Konur rata rétta leið
Nú standa kosningar til Alþingis
fyrir dyrum og samtök um
Kvennalista bjóöa fram í annað
sinn.
Síðastliðið kjörtímabil hafa 3
fulltrúar^ Kvennalistans setið á
Alþingi Islendinga og unnið þar
ötullega að þeim markmiðum
sem samtökin í upphafi settu sér.
- Að berjast fyrir réttindum
kvenna.
- Að vinna að bættum hag
kvenna og barna.
- Að konta skoðunum kvenna
inn í þjóðmálaumræðuna.
- Að kynna og reka pólitík
sem grundvallast á verð-
mætamati og lífssýn kvenna.
- Hvað er kvennapólitík?
Það er kvennapólitík. f>á
pólitík geta ekki aðrir rekið
en konur.
Konur eiga hagsmuna að gæta
á öllum sviðum íslensks samfé-
lags. Öll mál sem samfélagið
varða, hljóta því að koma konum
við. Konur Iíta þau tíðum af öðr-
um sjónarhóli en karlar. Sú lífs-
sýn á engu síður rétt á að mið sé
tekið af henni í ákvörðunum sem
varða alla þegna þjóðfélagsins en
viðtekin viðhorf karla.
Menning og reynsla kvenna
byggir að miklu leyti á hefð-
bundnum störfum við heimilis-
hald og umönnun barna. Konur
vilja halda tengslum við þau störf
sem hafa mótað þær og lagt þeim
til lífsgildi þeirra. Þær sætta sig
ekki við þá lítilsvirðingu sem
húsmóðurstörfum er sýnd og þær
viðurkenna ekki það verðmæta-
mat sem lagt er til grundvallar,
þegar laun kvenna eru ákveðin.
Því hafa þingkonur Kvennalist-
ans lagt fram á þingi tillögur til
úrbóta í þeim efnum:
a) Þingsályktunartillögu um
að húsmóðurstörf verði
metin til starfsreynslu á
vinnumarkaði.
b) Þingsályktunartillögu um
endurmat á öllum kvenna-
störfum.
c) Frumvarp um lífeyrisrétt-
indi til handa heimavinn-
andi húsmæðrum.
Staða húsmæðra í þjóð-
félaginu
Heimavinnandi húsmæður er
réttindalítill hópur í samfélaginu.
í skýrslum um þjóðarframleiðslu
eru þær ekki nefndar - hlutur
þeirra einskis metinn. í skýrslum
frá Þjóðhagsstofnun er þó vikið
að því að framlag þeirra muni
sennilega nema fjórðungi til
þriðjungi af þjóðarframleiðslu,
þ.e. 25-30 milljörðum á ári. Um
þetta er þó þagað þunnu hljóði.
Kvennalistinn vill að húsmóður-
störfum sé sýnd sú virðing sem
þeim ber og þau störf séu metin
þannig að það verði konum til
hagsbóta.
Kvennalistinn telur einnig að
hlutur bændakvenna við land-
búnaðarstörf sé stórlega vanmet-
inn. Mikill hluti svokallaðra
heimilisstarfa er bein þjónusta
við búið en eru ekki talin með
t.d. þegar reiknaður er út réttur
bændakvenna til fæðingarorlofs.
Þetta krefst endurskoðunar.
Kjör kvenna
Á undanförnum áratugum hafa
kröfur kvenna um hærri laun orð-
ið æ háværari. Framan af fengu
konur þau svör, að þær yrðu að
afla sér menntunar og sérþekk-
ingar, þá væri hægt að tala um
betri laun. Hver hefur svo reynd-
in orðið? Konur hafa sótt fram til
menntunar. Þær hafa einkunt
menntast til þeirra starfa sem
Iöngum hafa verið á höndum
kvenna, og þær vilja vinna að -
uppeldis- og umönnunarstarfa.
Heilar stéttir eru mestmegnis
skipaðar konum, kennarar,
fóstrur, sjúkraliðar, hjúkrunar-
fræðingar. Þetta eru stéttirnar
sem nú boða verkföll vegna lágra
launa. Menntunin hefur ekki
skilað bættum kjörum þeim til
handa í þeim mæli sem vænst var.
Og þá þarf varla að spyrja að
hvernig aðrar konur séu settar
sem eru ófaglærðar, sem vinna
við verslunar- og afgreiðslustörf,
almenn skrifstofustörf og fisk-
vinnslu, enda eru kjör margra
þeirra fyrir neðan allar hellur.
Því hefur Kvennalistinn lagt fram
á þingi frumvarp þess efnis að
lágmarkslaun séu aldrei undir
framfærslukostnaði einstaklings.
Lofsöngur ráðamanna
Talsmenn stjórnarflokkanna tala
nú fjálglega um nauðsyn þess að
hlúa að fjölskyldunni -grunnein-
ingu og hornsteini þjóðfélagsins
og satt er að það hefur aldrei ver-
ið brýnna en nú. En láglauna-
stefna ríkisstjórnarinnar sýnir að
þetta tal þeirra er aðeins mark-
laust þvaður. Láglaunastefnan
veldur því að meðal almennings
duga laun einnar fyrirvinnu ekki
til að framfleyta heimili. Lág laun
- langur vinnutími, sem orsakar
fjarvistir foreldra frá heimilum,
og skortur á dagvistarrými, veld-
ur streitu og álagi á fjölskylduna.
Það sýnir skilning ríicisvaldsins á
þörfinni fyrir dagvistir, að á fyrra
ári var allt framlag til bygginga
dagvistunarheimila á fjárlögum
40 milljónir, en til húsnæðis fyrir
áfengisútsölu 55 milljónir.
Efndir ráðamanna -
vinnuþrælkun
Ein aðalástæða vinnuþrælkunar
hér á landi er sú, hve fólki reynist
erfitt að eignast þak yfir höfuðið.
Lág laun og háir vextir valda því
að launafólk hefur varla efni á að
komast yfir lágmarkshúsnæði.
Húsnæðislöggjöfin tekur ekkert
tillit til fjölskylduaðstæðna. Allir
fá jafnhá lán, hvort sem þeir eru
jafnhá lán, hvort sem þeir eru
með stóra fjölskyldu eða litla.
Samkvæmt nýju skattalögunum
fá allir sama skattafslátt vegna
öflunar íbúðarhúsnæðis, en að-i
eins í fyrsta sinn. Barnafjöldi og
þar með þörf fyrir stærra húsnæði
hefur engin áhrif. Þeir sem
hvorki geta né vilja leggja á sig
þá vinnuþrælkun sem húsnæðis-
baslinu er samfara, eða geta ekki
- þrátt fyrir vinnu myrkra á milli
- náð endum saman, eiga ekki í
neitt hús að venda. Framboð á
leiguhúsnæði er langt frá að full-
nægja eftirspurn. Framlög til fé-
lagsíegra íbúðabygginga og leigu-
íbúða fara stöðugt lækkandi. Við
mörgum fjölskyldum blasir ekki
annað en upplausn.
Fjármálaráðherra lofsyngur
hárri raust þá öryggistilfinningu
sem falli ungu fólki í skaut við
það að eignast þak yl'ir höfuðið.
Ja - sér er nú hvert öryggið!
Hvað er að eiga þak yfir höfuðið?
Blasir það ekki við ungu fólki í
dag - sem er að koma sér upp
þessu margrómaða þaki - að það
verður alla ævina að greiða það,
rjieð tilheyrandi vinnuþrælkun og
streitu.
Er þjóðfélagið börnum
fjandsamlegt?
Hvað geri ég ef barnið mitt verð-
ur veikt og ég kemst ekki í vinn-
una? Hvað gerist ef við sjálf
I \LI*Y»LJHIJSIM
Bandaríski trompetleikarinn Leo Smith og
hljómsveit hans halda jazz-tónleika í Alþýðu-
húsinu þriðjudaginn 31. mars kl. 21.00.
Jazz-geggjarar, missum ekki af þessari uppákomu.
Jazzklúbbur Akureyrar.
H'ÍZZÍPr'
^^.rsveitamenn
Akureyringar ^ og Lára boða t.i
>óhan(na'dará Hóteí KEA 30. mars W.
stórfund Lind Vilhjálmsdóttir
Málefni fatlaðra: Anna, Und Árnadótt.r
M Húsnæðismá in: Helg^ öskarsdóu.r
DvesöctrnAliLt. 3 r.unncirsson
ByF8undarstjóri: Arn. Gunn ^ velkomn-r.