Dagur - 21.04.1987, Síða 1

Dagur - 21.04.1987, Síða 1
70. árgangur Akureyri, þriðjudagur 21. aprfl 1987 74. tölublað Hvern vilja kjósendur sem forsætisráðherra: Steingrímur er langvinsælastur - á Norðurlandi, samkvæmt skoðanakönnun Dags og Félagsvísindastofnunar Samkvæmt niðurstöðum skoð- ana könnunar Félagsvísinda- stofnunar Háskóla íslands, vill yfirgnæfandi mcirihluti kjós- enda á Norðurlandi að Stein- grímur Hermannsson formað- ur Framsóknarflokksins verði •næsti forsætisráðherra. Ef tekið er vegið mcðaltal úr báðum Norðurlandskjördæmunum vilja 59,4% aðspurðra að Stein- grímur verði næsti for- sætisráðherra þjóðarinnar, í öðru sæti er Þorsteinn Pálsson með 9,9% og í þriðja sæti kemur svo Albert Guðmunds- son með 6,8%. Spurt var: „Hver viltu helst að verði næsti forsætisráðherra?“ Valkostir voru formenn allra stjórnmálaflokkanna og loks „einhver annar“. I úrtakinu var eingöngu fólk á kosningaaldri og alls svöruðu 641 úr báðum Norðurlandskjördæmum ofan- greindri spurningu. í Norðurlandskjördæmi vestra neituðu 10 að svara spurningunni og 98 sögðust ekki vita hvern þeir vildu fá sem næsta forsætisráð- herra. Ef eingöngu eru teknir þeir sem afstöðu tóku, vildu 57,4% fá Steingrím í forsætisráð- herrastólinn, 13,9% nefndu Þor- stein Pálsson, 9,1% Albert Guðmundsson, 6,5% Svavar Gestsson, 5,7% Jón Baldvin Hannibalsson, 2,2% Halldór Ásgrímsson, 1,7% Guðrúnu Agnarsdóttur og 3,5% nefndu aðra. í Norðurlandskjördæmi eystra neituðu 12 manns að svara spurn- ingunni og 85 sögðust ekki vita hvern þeir vildu í embættið. Ef eingöngu eru teknir þeir sem afstöðu tóku, vildu 60,2% Steingrím Hermannsson, 8,3% Þorstein Pálsson, 6,8% Svavar Gestsson, 5,8% Albert Guð- mundsson, 4,4% Halldór Ásgrímsson, 3,4% Jón Baldvin Hannibalsson, 1,5% Guðrúnu Agnarsdóttur og 9,6% nefndu aðra. Þessar tölur sýna svo ekki verður um villst að Steingrímur Hermannsson er lang vinsælasti stjórnmálamaður Norðlendinga og nýtur trausts langt út fyrir rað- ir sinna flokksmanna. Sem fyrr segir var það Félags- vísindastofnun Háskólans sem gerði þessa könnun fyrir Dag og var hún unnin dagana 8.-11. apríl sl. BB. Norðurland: Slysalausir páskar - flugumferð gekk vel - Mikill fjöldi fólks í Hlíðarfjalli Páskahelgin og dagarnir þar í kring voru rólegir hjá Iögregl- unni á Norðurlandi. Á Akur- eyri voru fáir árekstrar og eng- in slys á mönnum. Mikil flugumferð var milli Akur- eyrar og Reykjavíkur og frá því á skírdag og þangað til í gær fóru fimm þotur á milli staðanna. Mikil aðsókn var í Hlíðarfjall enda aðstaðan og aðstæður eins og best verður á kosið. Flugumferð gekk að sögn Bergþórs Erlingssonar vaktstjóra hjá Flugleiðum, mjög vel. Á mið- vikudag féll flug niður eftir hádegi vegna veðurs en það var bætt upp með þremur þotu- ferðum á skírdag. Frá þriðjudegi til skírdags lá straumurinn einkum til Akureyrar eins og gjarnan er fyrir páska. Að sögn Bergþórs var mesta „traffíkin“ nokkuð síðar en venja er, sennilega vegna þess að kennsla í framhalds- skólum var framlengd. í gær fóru tvær þotur og fjórir Fokkerar milli Akureyrar og Reykjavíkur og búast má við að mikið álag verði fram á fimmtu- dag, sumardaginn fyrsta. Að sögn ívars Sigmundssonar forstöðumanns Skíðastaða voru þetta „virkilega góðir páskar". Frá föstudegi til mánudags lætur nærri að 1500 manns hafi verið í fjallinu að meðaltali og á páskadag taldi hann að þar hefðu verið um 2000 manns. Ivar sagð- ist hafa orðið var við mjög almenna ánægju með aðstöðuna eftir að lyftunum fjölgaði enda hefðu biðraðir aldrei orðið langar þrátt fyrir fjöldann. ET Rúmlega 200 eldri borgarar á Akureyri og úr nágrannasveitum þáðu kaffiveitingar framsóknarmanna í Norður- landskjördæmi eystra á Hótel KEA á Akureyri í gær. Auk þess að taka þátt í fjöldasöng hlýddu gestir á einsöng, upplestur og stuttar ræður þriggja efstu manna á B-listanum. Þóra Hjaltadóttir stjómaði kafRsamsætinu, sem heppn- aðist mjög vel. Mynd: RPB MONELLÖI Q ---- MADEIN/TALY -' Peysur ítölsk gæði. Fjölbreytt úrval, margir litir. K IM HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Þau voru sigursæl á skíðalandsmótinu á ísafirði nú um páskana, Bryndís Ýr Yiggósdóttir og Guðmundur Sigurjónsson frá Akureyri. Bryndís vann þrenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun og Guðmundur vann ein gullverðlaun, ein silfurverðlaun og varð auk þess bikarmeistari SKÍ. Mynd: kk Kosningabaráttan á lokastigi: „Hæfilega bjartsýnn“ - segir Guðmundur Bjarnason, efsti maður á B-lista „Eg er hæfilega bjartsýnn og mér finnst að flokkurinn hafi meðbyr, enda hafa skoðana- kannanir leitt það í Ijós síðustu dagana. Það ber þó að leggja ríka áherslu á það að skoðana- kannanir jafngilda ekki úrslit- um,“ sagði Guðmundur Bjarnason, alþingismaður og efsti maður á B-lista Fram- sóknarflokksins í Norðurlands- kjördæmi eystra, þegar hann var inntur eftir því hvernig honum fyndist kosningabarátt- unni miða þessa síðustu daga fyrir kosningar. „Ég vil minna sterklega á það, að úrslit þessara kosninga eru mjög óljós vegna þess hversu framboðin eru mörg. Mér finnst andinn í garð Framsóknarflokks- ins mun léttari nú en áður og að fólk sé að gera sér betur og betur grein fyrir mikilvægi þess að við- halda þeirri festu sem verið hefur, og að Framsóknarflokkur- inn sé vænlegastur til þess. Við þurfum hins vegar á öllu okkar að halda, ef við eigum að ná við- unandi árangri,“ sagði Guð- mundur Bjarnason. í kvöld kl. 20 hefst sameigin- legur framboðsfundur í Sjallan- um og kl. 21:30 á sumardaginn fyrsta, fimmtudagskvöld, verður framboðskynning fyrir Norður- land eystra í sjónvarpinu. Tveim tímum áður verður sams konar kynning fyrir Norðurland vestra. í svæðisútvarpi verður bein lína til frambjóðenda þriggja flokka í kvöld og næstu tvö kvöld milli kl. 18 og 19 og til allra sameiginlega daginn fyrir kjördag á sarna tíma. HS Guömundur Bjarnason.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.