Dagur - 21.04.1987, Blaðsíða 12

Dagur - 21.04.1987, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - 21. apríl 1987 Nú er tækifærið að koma línunum í lag fyrir sumarið Jazzdans mgL - frá 7 ára aldrilj|j| byrjendur og framhald. Vi Jazzleikfimi m -fyrirkonur * \ byrjendur og framhaldm ’ Styrkjandi æfingar, VVk teygjur og þrek. Róleg leikfimi - fyrir konur á V öllum aldri byrjendur og jy framhald. Styrkjandi æfingar og þrek. f# Aerobic Mf - byrjendur og njj framhald. Þrekþjálfun. Nemendasýning verður að loknu námskeiði. Sturtur, sauna, te, kaffi. Sólstofa - séraðstaða með sturtum og sauna. Nýjar perur í lömpum. Mikið úrval af fallegum dans og leikfimifatnaði. Tryggvabraut 22 Akureyri (yhjmsstiidíó Sími 24979---8 ■ Ég kýs styrka stjórn sjávarútvegs - uppistöðu útfIutningstekna Ég kýs Framsókn! Sigurður Bjarnason. Ingunn St. Svavarsdóttir: í átt að aukinni sjálfsvirðingu (Ávarp flutt á sameiginlegum framboösfundi á Þórshöfn 7. apríl sl.) Gott fólk. Það er sagt að: Trúin flytji fjöll! Ég trúi á íslenska dreifbýlis- menn, engu síður en íslenska þéttbýlismenn. Ég lít svo á að við íslendingar séum allir jafn-rétt- háir og tek ekki í mál að skipta þjóðinni upp og stimpla rnann- eskjur sem búa úti á landi sem annars flokks manneskjur. Þjóðarflokkurinn vill færa valdið út til hinna dreifðu byggða og með því að færa valdið í okkar hendur, þá aukum við sjálfsvirð- ingu okkar og drögum úr þeirri auðmýkingarstefnu sem ríkt hef- ur og er hvað bersýnilegust þegar landsbyggðarmenn þurfa að skríða fyrir embættismönnum í Reykjavík til þess að fá peninga úr ríkissjóði til hinna ýmsu nauð- þurfta sem þeir hafa þó fyllilega aflað tekna til. Þessi skrípaleikur gengur þannig til í dag að pening- arnir eru teknir suður og svo þurfum við að fara suður og biðja um að fá peningana til baka og þar syðra láta menn það greini- lega í ljós að hér sé um styrkveit- ingar að ræða, styrki til hinna veiku byggða úti á landi eins og forstjóri Byggðastofnunar kýs að orða það, þó hér sé ekki um að ræða annað en þá peninga, sem við höfum aflað! Finnið þið ekki muninn á þessu tvennu? Að fá sjálf að ráðstafa því sem aflað er eða auðmýktina sem fylgir því að þurfa sínkt og heilagt að biðja um ölmusur sér til handa! Þjóðarflokkurinn vill að í hverjum landshluta eða fylki verði stofnaður banki, lands- hlutabanki, og þar komi inn sá gjaldeyrir, sem landshlutinn aflar. Ef Norðurland yrði t.d. eitt fylki, þá yrðu það Norðlendingar sem yrðu að sjá sér farborða í stóru og smáu, viö yrðum að standa saman og vera ábyrg gerða okkar. Ég er sannfærð um að það verður auðveldara fyrir okkur að korna óskum okkar á framfæri við ráðamenn fylkisins en emb- ættismenn ríkisins, þó ekki sé nema vegna þess að við höfum þá innan seilingar. Dæmi um hversu mikil fjarlægðin getur verið hér á milli norðausturhornsins og suð- vesturhornsins er, að þegar ég hringdi suður í sjávarútvegsmála- ráðuneytið í vonda veðrinu, sent var hér um daginn og bað um að fá að taka mér bíl með bílstjóra á milli staða til námskeiðahalds var mér svarað að bragði: „Heyrðu, en því tekurðu ekki bara flugið?" Þetta sýnir ótrúlega mikla van- þekkingu á staðháttum. Það hefur sjaldan verið talið farsælt, þegar einn eyðir og annar greiðir - svo hvers vegna ekki að færa þetta á sömu hendi! Ég er algjörlega frábitin þeirri trú, sem virðist tröllríða öllu nú - en hún er sú - að magn sé hið sama og gæði, þ.e. að ef þú hafir bara nógu mikið af hinu og þessu þá séu gæðin tryggð. Þetta á ekki síst við um þá umræðu, sem á sér nú stað um litlu flokkana og stóru flokkana, gömlu flokkana og nýju flokkana. Sú villutrú, að stór flokkur sé það sama og gæðaflokkur hefur kannski beðið hvað stærsta skipbrot nú. Nei - ég hef trú á fjölbreytni - það er hún sem gefur lífinu gildi. Það er fjölbreytnin, sem er kryddið í til- verunni. Ósköp yrði t.d. hjóna- lífið snautt, ef við reyndum ekki að krydda það með ýmiss konar uppákomum! Sama má segja um íslenskt þjóðlíf - það yrði harla líflaust og umfram allt leiði- gjarnt, ef allir væru steyptir í sama mótið. Þjóðarflokkurinn vill stuðla að því að sérkenni hvers landshluta fái að njóta sín, - að menn lagi sig að aðstæðum á hverjum stað, búi að sínu og fái notið sín til fullnustu. Fylkjafyrirkomulagið hefur í för með sér stöðugleika, því það eru heimamenn sem stjórna, en ekki utanaðkomandi aðilar, sem hafa framleiðnina eina að leiðar- ljósi. Gott dæmi þar um er síldar- ævintýrið á Raufarhöfn, sem skildi byggðarlagið eftir í sárum, þegar búið var að notfæra sér það. Við búum í einu mesta lýð- ræðisríki heims og því er ég sann- færð um að okkur mun takast að rétta við það misvægi, sem orðið hefur í byggðum landsins, þar sem eitt svæði hefur verið ræktað á kostnað hinna. Til þess að friður ríki með þjóðinni þarf að korna á jafnvægi milli borgar- innar og sveitanna, þannig að jafnt tillit sé tekið til allra þegna þessa lands. Tökum ábyrgðina á því bæði að afla og ráðstafa fjármununum. Aukum virðinguna fyrir okkur sjálfum! Með samstilltu átaki tekst okkur það! Ég kýs Þjóðarflokkinn. Höfundur er heilsugæslusálfræöin|>ur á Knpaskeri; skipar 5. sæti á lista l’jóöar- flokksins í Norðurlandskördænii eystra. Legsteinar 'Umít ó.f. Kársnesbraut 12 Kópavogi - sími 91-641072 Augiýsendur athugið Útgáfudagar á næstunni eru sem hér segir: 22. apríl miðvikudagur síðasti vetrardagur Skilafrestur auglýsinga 21. apríl kl. 12.00. 23. apríl fimmtudagur sumardagurinn fyrsti Skilafrestur auglýsinga 22. apríl kl. 12.00. 24. apríl föstudagur Skilafrestur auglýsinga 22. apríl kl. 12.00. Óskum að ráða verkamenn til bobbingaframleiðslu. Ákvæðisvinna. Mötuneyti á staðnum. Upplýsingar hjá framleiðslustjóra bobb- ingadeildar. Vélsmiðjan Oddi hf., sími 21244.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.