Dagur - 21.04.1987, Blaðsíða 11
21. apríl 1987 - DAGUR - 11
Skíðamót Islands:
Spennandi keppni á
skemmtilegu móti
Björn Þór Ólafsson lét sig ekki vanta á skíðalandsmótið sem að þessu sinni
fór frani á Isafiröi. Mynd: KK
„Keppendum hefur
fækkað með
árunum“
- segir Björn Þór Ólafsson sem mætti
í 28. skipti á skíðalandsmót
Skíðamóti Islands 1987 var
slitið á páskadag í veglegu
lokahófi bæjarstjórnar Isa-
fjarðar í menntaskólanum en
Skíðafólk frá Akureyri fjöl-
mennti á Skíðalandsmótið að
venju og lét sem fyrr töluvert
að sér kveða. Blaðamaður
Dags spurði þá Árna Óðinsson
og Hauk Jóhannsson skíða-
þjálfara frá Akureyri hvort
þeir væru ánægðir með fram-
kvæmd landsmótsins á Isafirði.
„Það voru stór göt í fram-
kvæmdinni. Það t.d. að Ólafur
Sigurðsson frá ísafirði sleppir
hliðum í sviginu og kemst upp
með það, hefur það í för með sér
að við missum af tvennum verð-
launum. Valdimar Valdimarsson
hefði annars orðið þriðji í svigi
og annar í alpatvíkeppninni og
þá hefði Rúnar Ingi Kristjánsson
orðið þriðji í alpatvíkeppninni.
Einn af okkar mönnum sleppti
sama hliði og Ólafur og hann
hætti þá keppni. Allar brautir,
vinnsla við þær og tímataka var
mjög góð en þessi mistök í porta-
vörslunni virðast landlæg."
- Er eitthvað sem ykkur finnst
standa upp úr?
„Árangur Jóhannesar Baldurs-
sonar í stórsviginu er frábær en
hann er aðeins 15 ára gamall og
að keppa í fyrsta sinn á lands-
móti. Ungu strákarnir okkar eru
stórefnilegir og eiga eftir að gera
það gott í framtíðinni. Við vor-
um nokkuð öruggir með góðan
þá hafði keppni staðið yfir í
fjóra daga. Mótið tókst vel og
var keppni í flestum greinum
mjög jöfn og skemmtileg.
árangur í kvennaflokknum og
það hefði verið meiri háttar slys
að vinna ekki sigur þar. Árangur
okkar manna á mótinu er þokka-
legur en það má segja að það hafi
komið smá bakslag eftir stór-
svigskeppnina. Það er ekki spurt
um það eftir á hver vann flest
verðlaunin, heldur hver það var
sem vann flesta titlana."
Guðrún H. Kristjánsdóttir bikar-
meistari kvenna. Mynd: kk
Akureyringar voru sigursælir í
alpagreinum en í göngu stóðu
ísfirðingar sig best. Þá var
hlutur Ólafsfirðinga cinnig
góður.
Bryndís Ýr Viggósdóttir gerði
virkilega góða hluti á mótinu og
sigraði í svigi, stórsvigi og alpa-
tvíkeppni og þá varð hún önnur í
samhliða svigi. Hún og Einar
Ólafsson frá ísafirði unnu þrjú
gull og eitt silfur hvort á mótinu.
Einar sigraði í 30 km göngu og 15
km göngu og hann var í sigursveit
ísafjarðar sem sigraði í 3x10 km
boðgöngu. Hann sigraði í göngu-
tvíkeppni og þá varð hann annar
í norrænni tvíkeppni. Þau Rögn-
valdur Ingþórsson og Ósk Eben-
esardóttir frá ísafirði voru einnig
mjög sigursæl í göngu.
Ólafur Björnsson frá Ólafsfirði
fór einnig heim hlaðinn verðlaun-
um. Hann sigraði í stökki og
norrænni tvíkeppni, þ.e. göngu
og stökki. Guðmundur Sigur-
jónsson frá Akureyri sigraði í
stórsvigi, hann varð annar í sam-
hliða svigi og þá er hann bikar-
meistari SKÍ í karlaflokki. Guð-
rún H. Kristjánsdóttir og Anna
María Malmqiust frá Akureyri
urðu að láta í minni pokann fyrir
Bryndísi Ýri en þær þrjár röðuðu
sér í þrjú efstu sætin í svigi, stór-
svigi og alpatvíkeppni og þá varð
Guðrún bikarmeistari SKÍ í
kvennaflokki.
Daníel Hilmarsson frá Dalvík
sigraði í svigi og varð þriðji í
samhliða svigi en hann féll úr
keppni í stórsvigi. Örnólfur
Valdimarsson frá Reykjavík sigr-
aði í samhliða svigi karla annað
árið í röð og í kvennaflokki sigr-
aði hin stórefnilega Ásta Hall-
dórsdóttir frá ísafirði.
- Munuð þið félagar sjá áfram
um skíðaþjálfunina á Akureyri?
„Það mál er allt óljóst á þessu
stigi. Við höfum haft mjög gam-
an af þessu en þetta er miklu
meiri vinna en við áttum von á,“
sögðu þeir félagar Árni og Hauk-
Á lokahófi landsmótsins á ísa-
firði var auk þess sem veitt
voru öll verðlaun fyrir sigra á
mótinu, veitt verðlaun fyrir
sigur einstökum greinum og
flokkum í bikarkeppni SKI
1987. Visa-bikarmeistarar SKÍ
1987 urðu þessir:
Norrænar greinar
konur 16 ára og cldri stig
1. Ósk Ebenenesardóttir í 100
2. Eyrún Ingólfsdóttir í 75
3. Auður Yngvadóttir í 31
4. Ester Ingólfsdóttir S 20
piltar 17-19 ára
1. Rögnvaldur Ingþórsson í 100
2. Baldur Hermannsson S 80
Björn Þór Ólafsson frá Ólafs-
firði mætti að sjálfsögðu á
Skíðamót Islands á Isafirði um
páskana og keppti þar bæði í
göngu og stökki. Þetta var í 28.
skiptið sem Björn Þór mætir á
landsmót og jafnframt hans 25.
í röð. Hann var aldursforseti
keppenda en sýndi það og
sannaði enn einu sinni hversu
snjall íþróttamaður hann er.
Björn Þór var spurður um mót-
ið á Isafirði:
„Þetta mót hefur verið mjög
gott og vel að málum staðið,
a.m.k. í norrænu greinunum þar
sem ég þekki best til.“
- Sérðu einhvern mun á mót-
um milli ára?
„Nei þetta er allt mjög svipað
3. Sigurgeir Svavarsson Ó 75
karlar 20 ára og eldri
1. Magnús Eiríksson S 85
2. Þröstur Jóhannesson í 76
3. Haukur Eiríksson A 55
4. Ingþór Eiríksson A 55
Alpagreinar
karlar:
1. Guðmundur Sigurj.ss. A 125
2. Daníel Hilmarsson D 95
3. Guðmundur Jóhannsson í 60
konur
1. Guðrún Kristjánsd. A 150
2. Bryndís Ýr Viggósd. A 130
3. Anna M. Malmquist A 110
en þó hefur keppendum fækkað
mikið frá því sem áður var. í dag
rnæta aðeins þeir bestu en áður
fóru menn á landsmót án þess að
ætla sér sigur."
- Áhugi á stökki virðist alltaf
vera að minnka. Hver er ástæðan
fyrir því?
„Já það er hálf sorglegt með
stökkið. í dag er boðið upp á svo
margt og einhvern veginn hefur
því stökkið lent út undan. Ég er
hræddur um að þetta leggist af og
það á einnig við um gönguna.
Það er alls engin endurnýjun og
núna eru t.d aðeins 3 piltar í
göngu í flokki 17-19 ára. Það er
því ekki bjart framundan. Það
hefur líka mikið að segja að
aðstaðan til æfinga sé góð. Þetta
er fjórði veturinn í röð sem er
mjög snjólítið í Ólafsfirði. Nú og
svo þeir ungu keppendur sem við
byggjum upp hætta yfirleitt þegar
þeir fara í nám í annað byggðar-
lag.
Umfjöllun fjölmiðla hefur líka
sitt að segja. Sjónvarpið er hvað
sterkastur fjölmiðla en hjá þeirri
stofnun er skíðaíþróttinni mjög
mismunað gagnvart boltaíþrótt-
um.“
- Hvað með skíðalandslið?
„Það er sjálfsagt að hafa
landslið en Skíðasambandið þarf
að leggja meiri rækt við þá ungu
sem eiga að taka við.“
- Má ekki reikna með þér á
næsta landsmót?
„Jú ég held áfram á meðan ég
þori að stökkva fram af. Það er
heldur engin skömm að því að
gefa eftir brautina í göngu-
keppni. Ég hef mjög gaman af
því að vera með þessu unga fólki.
I fjölskyldunni er mikið skíðafólk
og við getum öll verið í þessu
saman og það gerir þetta enn
skemmtilegra,“ sagði Björn Þór.
P'
Einar Ólafsson frá ísafirdi var aö venju sigursæll í göngu. Mynd: kk
„Þokkalega ánægðir"
- sögðu þeir Árni Óðinsson og Haukur Jóhannsson
ur.
Bikarmeistarar
SKÍ1987