Dagur - 01.06.1987, Page 1
Filman þín
á skiliö þaö
besta1
Nýja-Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 • Sími 27422 • Pósthólf 196
H-Lúx
gæðaframköllun
Hrað-
framköllun
Opiö á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Eggjahvarf úr fálkahreiðri á Tjörnesi:
Nýlega varð Ijóst að tvö egg af
fjórum voru horfin úr fálka-
hreiðri á Tjörnesi í Suður-
Þingeyjarsýslu. Tvö ár eru lið-
in síðan síðast hvarf egg úr
fálkahreiðri á þessu svæði en
eftirlit með hreiðrunum var
aukið til muna vegna tíðra
rána úr þeim hér á Iandi. Þetta
eggjahvarf var tilkynnt til lög-
reglunnar á Húsavík sem nú
rannsakar málið.___________
Aöalfundur Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðar:
Fjölbreytt og
gagnlegt starf
Aðalfundur Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar var haldinn á
föstudaginn. Tap á rekstri
félagsins var á síðasta ári um
280 þúsund krónur. Rekstar-
tekjur voru 2.594 þúsund og
rekstrargjöld 2.849 jiúsund.
Hlutabréfaeign félagsins er nú
1.836 þúsund krónur en félagið á
hlutafé í 8 fyrirtækjum, mest í
Sæplasti hf., 650 þúsund. Hluta-
fjáreign félagsins jókst á árinu
um 305 þúsund krónur. Hlutafé í
IFE er alls um 7.470 þúsund og
jókst um rúmlega 3,5 milljónir á
árinu.
í skýrslu Sigfúsar Jónssonar
bæjarstjóra og stjórnarformanns
félagsins kom meðal annars fram
að IFE hefur átt hlut í stofnun,
rekstri eða hlutafjáraukningu í
nokkrum fyrirtækjum við Eyja-
fjörð en auk þess hefur það unnið
ýmis verkefni fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Má þar nefna
markaðskönnun fyrir Bjarg á
Akureyri og vinnu við undirbún-
ing háskólakennslu á Akureyri
að ógleymdri stofnun hlutafélags
um fiskeldi í Eyjafirði og fóður-
verksmiðjunnar Istess hf.
Meðal þeirra fjölmörgu verk-
efna sem nú er unnið að má
nefna athuganir á kanínurækt og
stofnun matvælaiðngarða á
Akureyri. ET
Enginn eftirlitsmaður er með
fálkahreiðrum á Tjörnesi, eini
fálkaeftirlitsmaður á landinu er
Haukur Hreggviðsson í Mývatns-
sveit. Haukur sagði að á
Mývatnssvæðinu hefði ekkert
horfið af eggjum enda væru
hreiðrin vel vöktuð og fólk vel á
varðbergi gagnvart öllum grun-
samlegum mannaferðum. Það
sem er merkilegt í þessu máli er
að ekki skuli öll eggin vera tekin
úr hreiðrinu og bendir það
kannski til þess að ekki sé um
atvinnumenn að ræða.
Þegar Dagur hafði samband
við Húsavíkurlögreglu sagði
Þröstur Brynjólfsson lögreglu-
maður að rannsókn stæði yfir á
þessu hvarfi en engar vísbending-
ar hefðu fengist í málinu. Þar
sem nokkuð er síðan þetta skeði
er ekki ólíklegt að eggjaræningj-
um hafi tekist að komast úr landi
þ.e.a.s. ef um stuld er að ræða og
ef um útlendinga er að ræða.
Þröstur sagði að lögreglunni væri
ekki kunnugt um ferðir neinna
grunsamlegra manna á þessum
slóðum nýlega en það útilokar
samt ekki að um rán hafi verið að
ræða
Karl Jóhannsson hjá Útiend-
ingaeftirlitinu sagði að ekki hefði
verið haft samband við þá vegna
þessa máls og sagðist hann strax
hafa samband við eftirlitið á
Keflavíkurflugvelli. Hann sagði
ekki víst að hægt væri að herða
eftirlit með einstaklingum meira
en verið hefur en lögreglan hefur
upplýsingar um alla fálkaeggja-
þjófa á skrá hjá alþjóðalögreglu.
Karl sagði að þessi tvö egg gætu
selst á um 20.000 dollara erlendis
og því legðu menn talsvert á sig
til að komast yfir eggin. Njósnir
hafa borist af því að 10 til 20 egg
berist héðan á ári. Fálkar seljast
einnig háu verði á fæti, t.d. selst
hvítur kvenfálki á um 100.000
dollara. í þessum máli sagði Karl
að vel hugsanlegt að um heima-
menn væri að ræða sem ráðnir
væru til aðstoðar erlendum aðil-
um gegn vænum fjárgreiðslum.
JÓH
Æðarkolla með unga sína og það síðasta dag niaímánaðar. Ætli blessaður fuglinn hafi ruglast í veðurblíðunni undan-
farið og haldið að lengra væri liðið á sumarið? Mynd: rþb
Iðnaðardeild SÍS:
200 milljóna kr.
sölusamningar
- „Erum ánægðir með samningana við Sovétmenn
þó verðið sé lágt,“ segir Aðalsteinn Helgason
Þessa dagana er verið að
leggja lokahönd á sölusamn-
inga milli Iðnaðardeildar SÍS á
Akureyri og Sovétmanna.
Undanfarnar vikur hefur
smám saman verið að ganga
saman í viðræðunum við
Sovétmenn um aukin kaup
þeirra á ullarvörum, og hefur
nú verið samið um sölu á vör-
um fyrir rúmlega fimm inillj-
ónir dollara á þessu ári.
Með þeirri viðbót, sem nú hefur
verið samið um, er Ijóst að Sovét-
menn munu kaupa á þriðja
hundrað þúsund peysur og 720
þúsund trefla af Iðnaðardeild-
inni. Verðmæti þessarar fram-
leiðslu er yfir 200 milljónir
króna, og er það um helmings-
hækkun frá í fyrra. Tvö sovésk
fyrirtæki, samvinnusambandið
Sojus og ríkisfyrirtækið Razno-
export, eru kaupendur varanna.
Fiskeldi Eyjafjarðar hf.:
Þróunarfélagið brást vonum
Eins og komið hefur fram var
síðastliðinn fimmtudag stofnað
hlutafélagið Fiskeldi Eyja-
fjarðar hf. Ráðnir hafa verið
tveir fiskifræðingar sem í byrj-
un júní munu hefja rannsóknir
á möguleikum til lúðueldis í
EyjaFirði.
Hlutafjárlpforð frá heimaaðil-
um eru 4,5 milljónir en auk þess
var reiknað með að Þróunarfélag
Islands, Rannsóknarráð ríkisins
°g Byggðastofnun myndu leggja
leggur aðeins fram 200 þúsund krónur í hlutafé
beðið eftir ákvörðun Byggðastofnunar um framlag
fram annað eins og hlutafé því
verða alls um 9 milljónir.
Nú er hins vegar ljóst að tveir
þessara aðila bregðast. Rann-
sóknarráð ríkisins hefur gefið
neikvætt svar við beiðni um
hlutafé og loforð Þróunarfélags
íslands hljóðar einungis upp á
200 þúsund krónur. Ingi Björns-
son framkvæmdastjóri Iðnþróun-
arfélags Eyjafjarðar sagði í sam-
tali við Dag að þessar undirtektir
hefðu vissulega valdið vonbrigð-
um þar sem hlutverk Þróunar-
félagsins hlyti að vera að leggja
áhættufé í fyrirtæki og rannsókn-
ir af þessu tagi. Ingi sagði hins
vegar að vonir væru bundnar við
talsvert framlag frá Byggðastofn-
un sem sést af því að á stofnfund-
inum var ákveðið að gefa henni
tækifæri til að tilnefna einn full-
trúa af fimm í stjórn fyrirtækis-
ins. Stjórn Byggðastofnunar
furidar um málið á morgun.
Hinir fjórir fulltrúar sem kosn-
ir voru í fyrstu stjórn fyrirtækis-
ins eru Pétur Bjarnason verk-
smiðjustjóri ístess, Ingimar
Brynjólfsson oddviti í Arnarnes-
hreppi, Jóhannes Kristjánsson
bifvélavirki og Vilhelm Þor-
steinsson framkvæmdastjóri ÚA.
Á fundinum var samþykkt að
veita stjórninni umboð til að
auka hlutafé fyrirtækisins í níu
milljónir á þessu ári, þannig að
þeir sem gerast hluthafar áður en
því marki er náð munu eiga for-
kaupsrétt að frekari hlutafjár-
aukningum síðar. ET
eins og undanfarin ár. Ekki var
samið um sölu á teppum að þessu
sinni, og er ástæðan sú að ekki
náðist samkomulag um verð.
„Þessi nýjasta viðbót við samn-
ingana er upp á rúmlega tvær
milljónir dollara, til viðbótar
þeim þrem milljónum, sem þegar
hafði verið samið um, en nýjar
leiðir opnuðust í samningavið-
ræðunum eftir heimsókn Stein-
gríms Hermannssonar til Sovét-
ríkjanna fyrr á árinu. Sovétmenn
flytja mikið inn af fatnaði, en
íslensku ullarvörurnar hafa þar
nokkra sérstöðu, því mikið af
utanríkisverslun Sovétmanna fer
fram í formi vöruskipta milli
Austur-Evrópuríkjanna.
Við erum í sjálfu sér ánægðir
með þessa samninga þó verðið
sé í lágmarki. Við þurfum að
leggja hart að okkur til að ná því
að framleiða þetta mikið af
vörum, og því er ekki að neita að
okkur vantar fleira starfsfólk. Því
miður hefur þróunin orðið sú
undanfarin ár að dollarinn hefur
lækkað jafnt og þétt og kostnað-
arhækkanir orðið miklar innan-
lands, en verðið sem við fáum
fyrir okkar framleiðslu hefur ekki
hækkað til samræmis. Það er
ekkert leyndarmál að ullariðnað-
urinn á í crfiðleikum á íslandi
vegna gengisins," sagði Aðal-
steinn Helgason, framkvæmda-
stjóri ullariðnaðar. EHB
Eru eggjaþjófar
komnir á kreik?