Dagur - 01.06.1987, Side 3
1. júní 1987-DAGUR-3
- En námskeiðin sem þú
heldur, hvernig fara þau fram?
„Á þessum 12 tímum, er í byrj-
un miklum tíma eytt í að tala
saman, og þá helst um það sem
fólk óttast mest. Sumir eru
hræddir við illa anda, og miklar
umræður geta spunnist um þetta,
ásamt umræðum um guð, djöful-
inn, samband við framliðna;
nokkurs konar andleg sálfræði.
íslendingar er vel lesnir um þessi
mál, en hafa ákaflega litla
reynslu. Þeir eru feimnir, og ég
hef t.d. tekið eftir því, að ef ég
hef tekið ljósmyndir á námskeið-
inu, biður fólkið mig um að láta
þær ails ekki í dagblöð. Pað vill
ekki láta fréttast hvað það er að
gera.
Pegar lengra er komið á nám-
skeiðunum, og ég segi fólki að nú
ætlum við að vinna með anda,
sem munu koma mjög nærri,
kemur oft ótti í fólk. Ég vil oft
bera saman þessa kennslu við
sundkennslu. Ef þú ert hræddur,
þorir þú ekki að stökkva út í
vatnið. En ef þér hefur verið sagt
hvað þú átt að gera þegar í vatnið
er komið, hverfur hræðslan. Ég
kenni líka að nota líkamann til
þess að „finna“ andana. Pað er
hægt að finna hvað manneskjan
var há, grönn, stutt, eða feit. Á
námskeiðinu lærir fólk líka and-
legar lækningar, og sálfræðilegar
teikningar. Það lærir að taka á
móti skilaboðum frá framliðnum,
og má segja að tilgangur minn
með námskeiðunum sé að kenna
fólki að „stinga í samband"
(plugg-in).
Mannsheilinn er enn svo
ókannaður. Það er meira þar, en
flest fólk trúir ennþá. Ég vil vaxa
meira og læra meira. Ég er ekki
að þessu fyrir sjálfan mig, heldur
fyrir aðra. Svo ég geti gefið af
sjálfum mér til annarra. Ég get
ekki endalaust fyllt á minn bikar,
það þarf að hella úr honum jafnt
og þétt, svo meira komist í
hann.“
- En einkafundirnir, hvernig
fara þeir fram?
„Ég reyni að finna út fyrir fólk,
hver sé að reyna að fá samband
við það. Andar koma alltaf í ein-
hverjum tilgangi. Peir hafa yfir-
leitt skilaboð, eða leiðbeiningar
varðandi lífið, sambönd, vinnu
eða erfiðleika sem viðkomandi er
hugsanlega flæktur í. Fólk sem
kemur til mín er yfirleitt niður-
dregið, hefur ef til vill nýlega
misst ástvin, lent í skilnaði eða
álíka, og þarf á aðstoð að halda.
Stundum teikna ég mynd af hin-
um framliðna, og einnig kemur
fyrir að ég lækna viðkomandi, sé
þess þörf.
Ég hef ferðast töluvert, t.d. til
Ítalíu, Zimbabwe og Möltu. í
Afríku lærði ég að vera galdra-
læknir, og var tekinn í félag hjá
þeim. Það er álíka með galdra-
lækna og miðla, það er mjög auð-
velt að læra til þessara starfa.“
- Að lokum Moich, telur þú
íslendinga áhugasamari en aðra
um andleg málefni?
„Já, svo sannarlega. Ástæðan
er meðal annars sú hversu bjart
er hér. Táknrænt er að segja, því
meira Ijós, því fleiri andar. En
vegna smæðar þjóðfélagsins, þar
sem allir þekkja alla, er fólk svo
hrætt við að gera eitthvað öðru-
vísi. Það er spéhrætt, nágranninn
má ekki vita hvað þú ert að gera.
Þetta þurfið þið að yfirstíga. Ég
kenni fólki að vera það sjálft.
Á eftir þessum orðum Moich
Abrahams verður punkturinn
settur. Við verðum svo að láta
lesendum eftir að draga ályktan-
ir, því það er með þetta málefni
eins og svo mörg önnur, að
skoðanir eru skiptar, og viðhorf-
in mörg.
En Moich Abrahams þökkum
við kærlega fyrir viðtalið, og
kveðjum hann með óskum um
velgengni í sínu starfi. VG
Jón Pétursson
hættur hjá Ú.A.
Jón Pétursson, togaraskip-
stjóri, hefur nú látið af störfum
hjá Utgerðarfélagi Akureyr-
inga hf., en Jón á að baki
þrjátíu og fimm ára farsælan
starfsferil hjá félaginu.
Jón Pétursson var síðast skip-
stjóri á Sléttbak, og hafði verið
með skipið um tveggja ára skeið.
Jón var fyrsti stýrimaður og skip-
stjóri hjá Útgerðarfélaginu um
tuttugu og fjögurra ára skeið,
fyrst með Áka Stefánssyni á
gamla Sléttbak, síðar á gamla
Harðbak og Sólbak.
Nú er verið að breyta Sléttbak
í frystitogara, og verður Kristján
Halldórsson skipstjóri á honum.
EHB
Maxim Gorki sem kemur í sína fyrstu ferð til Akureyrar þetta sumarið, hinn 23. júní.
Eins og undanfarin sumur,
mega Akureyringar eiga von á
að fjöldi skemmtiferðaskipa
heimsæki þá í sumar. Hið
fyrsta Kazakhstan, kemur 11.
júní en Maxim Gorki kemur
sína fyrstu ferð 23. júní.
Kazakhstan mun koma alls
þrisvar sinnum í sumar, 11. og
27. júní, og 13. júlí. Maxim
Gorki kemur einu sinni aftur
þann 12. júlí, Estonia kemur
tvisvar, en fjögur önnur, World
Discover, Funchal, Odessa og
Arkona koma eingöngu einu
sinni. Þetta mun í fyrsta sinn sem
Arkona kemur hingað, hin hafa
áður heimsótt landið. Alls eru
þetta tólf skipti, svo áhugamenn
um skip sem þessi ættu ekki að
þurfa að láta sér leiðast í sumar.
SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS
FRAMLEIÐIR:
Portlandsement í venjulega steinsteypu.
Hraðsement í steypu sem verður að harðna
hratt.
Blöndusement í steypu sem má harðna hægt
en verður að vera þétt og endingargóð. (Sér-
staklega ætlað í stíflur, brýr og hafnarmann-
virki, en einnig í múrhúð).
STYRKLEIKI:
Portlandsementið er framleitt í samræmi við
íslenskan sementsstaðal IST9. Styrkleiki sem-
ents er aðaleiginleiki þess.
Styrkleiki íslensks Portlandsements:
Styrkleiki kg/sm2 eftir
Portlandsement
Lágmarkskrafa IST9
3 daga 7daga 28 daga
250 350 500
175 250 350
GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR FYRIR
HÚSBYGGJENDUR:
- Það er ekki alltaf hægt að treysta því að
steinsteypa sé gallalaus. Látið því kunnáttu-
menn framleiða og meðhöndla steypuna.
- íslenska sementið er blandað varnarefnum
gegn alkalíhvörfum, sölt steypuefni eða salt
steypuvatn getur ónýtt þessa vörn. Hvers
konar önnur óhreinindi, svo sem sýrur og
fínefni í steypuefnum, geta valdið skemmd-
um í steinsteypunni.
- Sparið vatnið í steypuna. Hver lítri vatns
fram yfir það sem nauðsynlegt er, rýrir end-
ingu hennar.
- Gerið steypuna þjála, þannig að hún þjappist
vel í mótin. Varist þó að nota meira vatn en
steypuframleiðandinn gefur upp.
- Hlífið nýrri steypu við örri kólnun og útþurrk-
un. Sláið ekki frá mótum of snemma og ein-
angrið opna fleti. Annars getur steypan enst
verr vegna sprungumyndana.
- Leitið ávallt ráðgjafar hjá sérfræðingum ef
þið ætlið að byggja hús eða önnur mannvirki
úr steinsteypu. Betri ending bætir fljótt þann
kostnað.
®SEMENTSVERKSMIÐJA
RÍKISINS
Pegar við leggjum grunn að
framtíóinni notum við aóeins
bestu byggingarefni
Sjö skip koma alls
12 sinnum í sumar