Dagur - 01.06.1987, Síða 11
1. júní 1987 - DAGUR - 11
Fjölbrautaskólanum á Sauöár-
króki var slitið við hátíðlega
athöfn í íþróttahúsinu laugar-
daginn 23. maí sl. Frá skólan-
um brautskráðust nú 30 ný-
stúdentar og 9 nemendur af iðn-
fræðslubrautum. Nám við
skólann í vetur stunduðu 400
einstaklingar, 302 í dagskóla,
68 í öldungadeild og 30 í kvöld-
skóla. Á síðasta hausti var haf-
in kennsla á sjúkraliðabraut í
samvinnu við Sjúkrahús Skag-
firðinga. Þá stóð skólinn í vet-
ur fyrir námskeiðum fyrir véla-
verði og skipstjórnendur og
útskrifuöust af þeim 11 véla-
verðir og 9 skipstjórnarmenn.
Lokaorð Jóns Hjartarsonar við
skólaslitin voru á þessa leið.
„Sagt er að Hannes Hafstein
hafi borið kvíðboga fyrir að
menntun hans sem lögfræðingur
mundi ekki nýtast honum heim-
komnum frá Kaupmannahafnar-
háskóla því óvíst var hvaða störf
honum byðust. Matthías Joch-
umsson orti þá til Hannesar:
Eitt ergott við ungan mann
alis staðar þar sem kemur hann
hittir hann fyrir háskólann
- á Hornströndum sem í Kína.
Ég vona að gæfa fylgi ykkur
öllum hvert sem leiðir ykkar
liggja og að þið hittið fyrir
háskólann í hverju því sem þið
takið ykkur fyrir hendur."
Skólastjórinn vék í ræðu sinni
að skólahaldinu í vetur, félags-
starfi nemenda og framkvæmd-
um sem miðuðu að frekari upp-
byggingu skólans. í því sambandi
benti hann m.a. á það, að 1982
lauk samkeppni um hönnun
bóknámshúss, en þrátt fyrir það
eru framkvæmdir enn ekki
hafnar. Pá kvað hann nauðsyn-
legt að nemendur fengju betri
aðstöðu til félagsstarfemi innan
skólans og vék að skýrslu Efna-
hags- og samvinnustofnunar Evr-
ópu sem telur þörf fyrir góða
aðstöðu til félagsstarfa mun
brýnni í heimavistarskólum en
öðrum skólum. Einnig þakkaði
skólastjórinn 3 kennurum sem nú
hætta kennslu við skólann, þeim
hjónunum Knúti Hafsteinssyni
og Eygló Eiðsdóttur íslensku-
kennurum og Erni Ólafssyni
kennara á tréiðnabrautum, gott
starf og Anna E. Sæmundsdóttir
færði þeim blómvendi sem þakk-
lætisvott frá skólanum og
nemendum. Eitt stúdentsefna,
Jón Egill Bragason, sem útskrif-
aðist bæði af Náttúrufræðibraut
og tónlistarbraut flutti 2 stutt
klassísk verk á píanó og eftir að
skólastjóri hafði lokið við að
afhenda nemendum einkunnir
sínar flutti Ingi V. Jónasson
þakkir frá nemendum.
Vegleg bókaverðlaun voru
afhent fyrir góðan námsárangur í
13 greinum. Þar af hlaut Tryggvi
Þór Ágústsson verðlaun fyrir
ágætan alhliða námsárangur og
Jón Egill Bragason fyrir góðan
alhliða námsárangur, Linda
Leifsdóttir fyrir ágætan náms-
árangur í viðskiptagreinum, Ingi
V. Jónasson fyrir árangur í sam-
félagsgreinum og íslensku,
Ásgrímur G. Ásgrímsson í
málmiðnaðargreinum, Ásgeir V.
Arnljótsson í rafvirkjun, Guð-
mundur G. Guðmundsson í raf-
iðnaðargreinum og Jóhanna Karls-
dóttir í dönsku,'en hún er lang-
elst nýstúdentanna, 44 ára og
lauk hún prófum með glæsibrag.
Þá hlaut Jóna Bryndís Guð-
brandsdóttir verðlaun fyrir ágæt-
an námsárangur í dönsku og í
ensku ásamt Tryggva Þór Ágústs-
syni. -þá
Svart á hvítu:
Ný Regnbogabók
Regnbogabækur senda nú frá sér
bók númer tvö í kiljuútgáfunni
sem hófst með útkomu Brjóst-
sviða eftir Noru Ephron. Þessi
bók nefnist Gikkur og er eftir
blaðamanninn Nicholas Pileggi.
Gikkur er í senn hrífandi og
hrikaleg frásögn af heimi skipu-
lagðra glæpasamtaka. Hún segir
raunverulega sögu mafíu-
glæpamannsins Henrys Hill, allt
frá barnæsku til þess er hann er
handtekinn fyrir þátttöku í
stærsta peningaráni sem um getur
í sögu Bandaríkjanna. Bókin er
einstaklega nákvæm og lifandi
frásögn af daglegu lífi í mafíunni,
sem dregur upp ótrúlega mynd af
hugsunarhætti og eigin siðferðis-
heimi þeirra sem starfa innan
vébanda hennar.
Þegar Henry Hill var handtek-
inn fyrir nokkrum árum, þá átti
hann ekki annarra kosta völ en
að ljóstra upp um nánustu sam-
starfsmenn sína. Hann var dauð-
ans matur að öðrum kosti og er
það reyndar enn vegna þess sem
lýst er í bókinni. En Henry Hill
er ekki lengur til. Hann fyrir-
finnst ekki á spjöldum banda-
rísks samfélags, því mafían leitar
hans enn þar sem hann lifir undir
verndarvæng lögreglunnar.
Gikkur dregur upp raunveru-
legri og hrikalegri mynd af heimi
mafíunnar, en tekist hefur í
nokkurri skáldsögu eða kvik-
mynd hingað til af þeirri einföldu
ástæðu að hún er sönn.
Gikkur hefur notið mikilla
vinsælda bæði í Bandaríkjunum
og Bretlandi, sem og víða um
heim. Bókin var samfellt í rúma
þrjá mánuði á bandaríska met-
sölulistanum þegar hún kom fyrst
út og náði nú síðast fyrsta sætinu
á kiljulistanum í mars.
Strýta flutt í Herðubreiðarlindir:
Bœtir aðstöðu
okkar mjög
- segir Hreinn Skagfjörð Pálsson landvörður,
sem er að fara sitt sjötta sumar á fjöll
Það stendur mikið til hjá
Ferðafélagi Akureyrar. Um
hvítasunnuhelgina ætla félagar
í Ferðafélagi Akureyrar að
flytja húsið Strýtu héðan frá
Akureyri upp í Herðubreiðar-
lindir. Akureyrarbær gaf
ferðafélaginu húsið með því
skiiyrði að það yrði flutt af
þáverandi stað. Húsið stóð við
Gránufélagsgötu, á horninu
norðan og neðan við Sjallann.
„Húsið var fyrir skipulaginu,
þegar Glerárgatan var gerð,“
sagði Hreinn Skagfjörð
Pálsson, er hann hittum við í
Strýtu á dögunum.
Hreinn sem hefur verið land-
vörður í Herðubreiðarlindum
undanfarin sumur, sagði að félag-
ar í ferðafélaginu hefðu í allan
vetur unnið í húsinu. Búið er að
einangra húsið allt, klæða og inn-
rétta upp á nýtt. Geysileg vinna
liggur í vinnu félaganna og hefur
hún öll verið unnin í sjálfboða-
vinnu. Hreinn sagði að á milli 20
og 30 manns hefðu lagt hönd á
plóginn. Og nú er lokasprettur-
inn hafinn, því flytja á húsið upp
í Lindir föstudagskvöldið fyrir
hvítasunnu.
Húsið sem er á tveimur hæðum
verður tii afnota fyrir landverði,
sem í sumar verða þrír þegar
mest verður að gera. Auk Hreins
sem er að fara sitt sjötta sumar á
fjöll, verður Sigrún Björnsdóttir
landvörður í Herðubreiðarlind-
um, en hún hefur áður verið þar í
Hreinn Skagfjörð, landVörður.
tvö sumur. Um háannatimann
verður þriðja landverðinum bætt
við.
Á efri hæð hússins eru tvö her-
bergi og hafa landverðir annað til
afnota, en hitt verður fyrir gesti.
„Það má koma ellefu manns fyrir
í þessu herbergi,“ sagði Hreinn
þegar hann sýndi okkur húsið. Á
neðri hæðinni er rúmgott eldhús
og einhvers konar setustofa.
Einnig verður þar skrifstofa eða
þjónustumiðstöð þar sem frammi
liggja bæklingar, kort og þess
háttar.
í fyrrasumar voru skráðar um
7000 gistinætur, að sögn Hreins
og rúmlega 3000 manns fóru um
svæðið án þess að gista. Hreinn
sagði að umferð um Herðubreið-
arlindir væri sífellt að aukast.
„Þegar þetta hús verður komið
upp í Herðubreiðarlindir, bætir
það mjög aðstöðu okkar land-
varðanna því hún var áður lítil
sem engin. Við vorum í einu her-
bergi sem ekki var stórt. Þetta
verður fínt í sumar,“ sagði
Hreinn.
En hvað er það sem dregur
Hrein á fjöll sumar eftir sumar?
„Utiveran. Umhverfið upp í
Herðubreiðarlindum er alveg
einstakt. Það er sérstaklega
ánægjulegt að dvelja þarna efra.“
mþþ