Dagur - 10.08.1987, Qupperneq 5
10. ágúst 1987 - DAGUR - 5
George Harrison átti engin börn í fyrra hjónabandi sínu og aðeins eitt barn,
Dhani, með seinni konu sinni, Oliviu.
um gert börnunum okkar grein
fyrir því að þau geta ekki reiknað
með að lifa á okkar peningum,“
segir Linda. „Ef þú legðir háar
peningaupphæðir til hliðar fyrir
börnin þá mundu þau óska að þú
værir dauð og það vil ég ekki.“
George Harrison er nú giftur
mexíkanskri konu, Olivia Trini-
dad Arias og á með henni soninn
Dhani. Þau búa nánast í höll, það
er gotneskt hús með 30 herbergj-
um og stendur í Friar Park við
Henley-on-Thames. Allt í kring-
um húsið eru skilti þar sem
ókunnugir eru beðnir að hypja
sig burt því fjölskyldan vill fá að
vera í friði. Þau eru oft á ferða-
lögum, eiga m.a. hús á Hawaii og
í New South Wales í Ástralíu
eiga þau búgarð í fullum rekstri,
auk eyju í Kyrrahafinu.
Ringo Starr og kona hans Bar-
bara Bach búa í húsi í Berkshire
sem byggt var á 18. öld. Þar býr
einnig elsti sonur hans, Zak
ásamt eiginkonu og dóttur á öðru
ári, Tatia Jane og það er því
fyrsta Bítla barnabarnið. Þarna
búa einnig tvö börn Barböru,
Francesca og Gianni. Ringo á tvö
önnur börn, Jason og Lee sem
búa hjá móður sinni í London.
Af þessu má sjá að Bítlarnir
hafa reynt að láta börn sín fá eins
eðlilegt uppeldi og kostur er á.
Ekkert barnanna hefur verið sent
í einkaskóla og ekki hafa þau
verið ofdekruð þrátt fyrir ríki-
dæmi foreldranna.
Ringo Starr er giftur leikkonunni Barböru Bach. Hann á þrjú börn frá fyrra
hjónabandi. Barbara á tvö börn sem búa hjá þeim.
Hofsós:
Vantar húsnæði
en enginn byggir
„Það hefur enginn einstaklingur
sótt um lóð undir íbúðarhús í
ár. Það hefur ekki gerst dapr-
ara frá því að ég kom hingað
árið 1982,“ sagði Ófeigur Gests-
son sveitarstjóri á Hofsósi í
samtali við Dag. „Menn hafa
alltaf eitthvað verið að nudda.“
„Skýringin á þessu er ákaflega
einföld og augjós. Ef menn ætla
að byggja sér hús upp á 5 milljón-
ir og kannski fá lán upp á 3,5, þá
standa þeir kannski frammi fyrir
því þegar búið er að þurrka rykið
af einu sinni fyrir jólin að lánið er
komið upp fyrir byggingakostnað
hússins. Og söluverðið á frjálsum
markaði er komið niður í 3,5
milljónir," sagði Ófeigur.
Á Hofsósi vantar hins vegar
húsnæði og sagði Ófeigur að þeg-
ar hús losnuðu seldust þau strax
og oft væru margir um þau. Næg
atvinna er á Hofsósi og hefur
enginn verið á atvinnuleysisskrá
síðustu þrjá mánuði. Trillukarlar
hafa veitt vel að undanförnu og
eru menn að koma að landi með
2,5 tonn eftir daginn.
Nú búa 270 manns í
hreppnum, en í fyrra fluttu 20
manns í burtu. „En þær eru frjó-
samar hjá mér konurnar í ár og
við eigum von á töluverðri
fjölgun,“ sagði Ófeigur. mþþ
Hreppsnefnd Hvalfjarðarstrandarhrepps:
Lýsir yfir stuðningi við Hval h.f.
- Hreppsnefndin átelur „hlutdræga afstöðu Sjónvarpsins“
Hreppsnefnd Hvalfjarðarstrand-
arhrepps ítrekar ályktun sína frá
Málnefndir
Norðurlanda
koma saman
á Akureyri
Norræna málnefndaþingið
1987 verður haldið á Hótel
KEA á Akureyri dagana 16.-
18. ágúst. Þetta er 34. ársþing
norrænu málnefndanna.
Fyrstu norrænu málnefndirnar
voru stofnaðar í Finnlandi og
Svíþjóð á heimsstyrjaldarárunum
síðari og starfa nú í öllum opin-
berum málsamfélögum á Norður-
löndum. Allt frá 1954 hafa nefnd-
irnar haft með sér sameiginlegan
fund einu sinni á ári.
íslensk málnefnd annast undir-
búning þingsins að þessu sinni.
Síðan hún var stofnuð 1964 hefir
hún ætíð átt fulltrúa á hinum
árlegu fundum nefndanna og
fjórum sinnum áður staðið fyrir
slíkum þingum hér á landi, en
aldrei á Akureyri fyrr en nú.
Aðalefni þingsins í þetta sinn
verður íslensk málrækt. Fram-
sögumenn verða: Baldur Jónsson
prófessor og Jón Hilmar Jónsson
orðabókarri tst j óri.
Búist er við meiri þátttöku en
nokkru sinni fyrr eða um 45
manns af öllum Norðurlöndum,
allt frá Grænlandi til Finnlands.
Stjórnarfundur Norrænnar
málstöðvar, sem tók til starfa í
Ósló 1978, verður að vanda hald-
inn í tengslum við málnefnda-
þingið.
29. júlí 1986 vegna afskipta
Bandaríkjanna af hvalveiðum
íslendinga. Hreppsnefndin mót-
mælir harðlega síendurteknum
afskiptum Bandaríkjanna af
hvalveiðum í vísindaskyni innan
fiskveiðilögsögu íslands. Hrepps-
nefndin telur, að hótanir, yfir-
gangur og óvinveitt afstaða
Bandaríkjamanna í þessu máli
sýni ljóslega, að Bandaríkin eru
ekki sú vinaþjóð íslendinga sem
álitið hefur verið og sem sæmir í
samskiptum bræðraþjóða. Því
telur hreppsnefndin, að nú þegar
beri að taka til athugunar og
endurskoðunar öll samskipti
íslands við Bandaríkin, þar á
meðal varnarsamninginn. Hrepps-
nefndin telur með öllu óþolandi,
að starfsemi og mannvirki hers
Bandaríkjanna og Nató á ísiandi
skuli ekki lúta íslenskum lögum,
en svo er t.d. ekki um mannvirki
og starfsemi þessara aðila í Hval-
firði.
Hreppsnefndin lýsir fyllsta
stuðningi við atvinnustarfsemi
Hvals h.f. og harmar árásir á
fyrirtækið og forystumenn þess.
Hreppsnefndin minnir á, að veið-
ar Hvals h.f. hafa ávallt verið
undir stjórnun og ströngu eftir-
liti. Þess hefur jafnan verið gætt
að nýta þá auðlind sem hvalurinn
er á skynsamlegan hátt, enda
ósannað með öllu, að gengið hafi
verið á hvalastofnana. Sem sjálf-
stæð þjóð hljóta íslendingar einir
að ákveða, hvernig þeir nýta
auðlindir fiskveiðilögsögu sinnar
á sem skynsamlegastan hátt og til
sem mestra hagsbóta fyrir íslend-
inga sjálfa.
Hreppsnefndin þakkar sjávar-
útvegsráðherra ötula og ein-
dregna afstöðu hans í hvalveiði-
málinu og skorar á ríkisstjórnina
að fylgja stefnu hans fast eftir og
láta hvergi undan síga fyrir hót-
unum og yfirgangi. Gefist íslend-
ingar upp fyrir hótunum, er sjálf-
stæði og sjálfsákvörðunarréttur
þjóðarinnar í hættu.
Hreppsnefndin átelur hlut-
dræga afstöðu Sjónvarpsins í
hvalveiðimálinu, en Sjónvarpið
hefur þrásinnis átt viðtöl við
andstæðinga íslands í þessu máli,
jafnvel menn, sem stuðlað hafa
að skemmdar- og ofbeldisverkum
á eignum Hvals h.f.
(Samþykkt einróma 28. júlí 1987.)
Gigtarfélagið
á Norðurlandi eystra
Fundur
á Hótel KEA miðvikudaginn 12. ágúst kl. 20.30.
Ingvar Teitsson sérfræðingur í gigtsjúkdómum talar
um innra starf gigtarfélaga.
Allir velkomnir. Stjórnin.
Hin árlega
okkar
hófst í dag mánudag kl. 9
Þú gerir reyfarakaup
á útsölunni okkar
Sporthú^idhf
Hafnarstræti
24350