Dagur - 02.09.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 2. september 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 55 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON .
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Ueiðari.
Góð afmælisgjöf
Það kom fram í Degi sl. mánudag að á hátíð-
arfundi bæjarstjórnar hefði verið samþykkt
einróma tillaga þess efnis að hús Amtsbóka-
safnins við Brekkugötu verði stækkað á
næstu árum. í tilefni 125 ára afmælis Akureyr-
arkaupstaðar samþykkti bæjarstjórnin að
veita tveimur milljónum króna til þess að
hefjast handa við hönnun byggingarinnar.
Bæjarstjórn Akureyrar átti úr vöndu að
ráða þegar ákveða þurfti hvað bæjarbúar
gæfu sjálfum sér í afmælisgjöf. Segja má að
góðar hugmyndir hafi verið á hverju strái en
hæst bar stækkuh Amtsbókasafnsins. Ætlun-
in er að byggja nýtt hús norðan við Amts-
bókasafnið. Þetta; hús á ekki aðeins að taka
við bóka- og skjalasafni heldur og til að nota
undir lista- og menningarstarfsemi í bænum.
Gunnar Ragnárs, forseti bæjarstjórnar
Akureyrar mælti fyrir tillögunni og sagði með-
al annars: „Nú þégar 25 ár eru liðin síðan
ákvörðun var tekin að byggja þessa bygg-
ingu, þá er safnið orðið allt of lítið. Það er búið
að sprengja utan af sér starfsemina sem hef-
ur aukist mikið á þessum árum. Safnið hefur
fengið það hlutverk að þjóna sem prentskila-
safn og þar með að taka við öllu því sem
prentað er á íslandi og til þess þarf mikið
pláss.
Það þótti vel við hæfi, að núna á þessum
tímamótum okkar réðumst við í að taka
ákvörðun um að stækka þessa byggingu og
efla og auka safnið og skapa því betra starfs-
umhverfi. Skemmtilegasta lausnin er að
byggja annað hús. Það komi norðan núver-
andi bókhlöðu. Það er hús sem félli vel inn í
myndina og húsin yrðu síðan tengd saman
með tengibyggingu eða gangi.
Þarna mundi verða vinnuaðstaða fyrir
Amtsbóksafnið og héraðsskjalasafnið. Hugs-
anlega höfuðstöðvar listasafns bæjarins með
sýningarsal sem einnig mætti nýta fyrir tón-
leika og fundi svo eitthvað sé nefnt af þeim
möguleikum sem slíkt hús gæti boðið upp á.
Tillagan gerir að sjálfsögðu fyrir því að að-
staða safnsins vérði fyrst og fremst bætt en
það er vel til fundið að slá fleiri flugur í einu
höggi og bæta úr brýnni þörf í sambandi við
ýmiss konar menningarstarfsemi sem við
viljum halda áfram að hafa hér í þessum bæ. “
Þannig mæltist forseta bæjarstjórnar á há-
tíðarfundinum. Nú þarf bæjarstjórn að láta
hendur standa fram úr ermum og sjá til þess
að nýja húsið rísi á sem skemmstum tíma.
ÁÞ.
Barnadeild FSA býr við afar þröngan kost. Deildin er raunar á stigagangi og ætti svo sannarlega skilið að komast í
citthvað stærra og betra. En það var góða veðrið sem kom læknum, hjúkrunarliði og sjúklingum út á veröndina einn
sólskinsdag í ágúst þegar Ijósmyndari Dags átti leið um sjúkrahúsið.
Grunnskólar Akureyrar:
Enn vantar kennara í
nokkra skóla
- ástandið best í Oddeyrarskóla og Lundarskóla
Um miðja næstu viku má
reikna með að skólastarf í
grunnskólum Akureyrar verði
komið á fullt skrið. Alls munu
liðlega 3000 nemendur stunda
nám í þeim sex grunnskólum
sem á Akureyri eru. Dagur
hafði samband við skólastjóra
þessara skóla, og grennslaðist
fyrir um hvort tekist hafi að
ráða kennara í þær stöður sem
vantaði.
Sverrir Pálsson skólastjóri
Gagnfræðaskóla Akureyrar sagði
að þar vantaði kennara í 70 tíma
á viku. Alvarlegast væri að þarna
á meðal vantar kennara í dönsku,
en einnig vantar í vélritun og líf-
fræði. Sverrir var spurður hvort
hann vænti þess að úr rættist og
sagði hann:„Það eru mörg net í
sjó, og aldrei að vita hvort veið-
ist.“
í Glerárskóla, sagði Vilberg
Alexandersson skólastjóri að
vantaði enn í tvær stöður, en
hreinasta afbragð yrði að fá í
eina. Helst vantar í bekkjar'-
kennslu yngri barna, í forskóla-
deild og starfsfræðslu og jafnrétt-
iskennslu níunda bekkjar. „Ég er
búinn að reyna mikið að fá þessa
kennara, og ef ekki gerist krafta-
verk, er ég úrkula vonar.“
Skólastjóri Lundarskóla.,
Hörður Ölafsson sagði að þar
væri búið að fá kennara í nánast
allar stöður nema myndmennta-
kennslu og myndi það ráðast
fljótlega. Hörður sagði að skól-
inn væri nær eingöngu skipaður
réttindakennurum og þeir sem
ekki hafi þau, væru nú að hefja
nám í uppeldis- og kennslufræði
sem kennt verður á Akureyri í
námskeiðsformi á næstu tveim
árum.
Indriði Úlfsson, skólastjóri
Oddeyrarskóla sagði að þar væri
eingöngu einn leiðbeinandi í
smíðum og annað væri réttinda-
fólk. Að öðru leyti væri búið að
ganga frá ráðningu í allar stöður,
svo þeir væru vel settir.
í Barnaskóla Akureyrar er, að
sögn Benedikts Sigurðarsonar
skólastjóra, ekki ennþá séð fyrir
endann á kennararáðningum. Það
vantar kennara í eina stöðu í for-
skólakennslu, en væntanlega gætu
þeir bjargað því fyrir horn innan-
húss. Það þyrfti því sennilega ekki
að fella niður kennslu. Þeir leið-
beinendur sem hjá þeim starfa
hafa allir góða reynslu sem kenn-
arar, og hefur ekki verið um
neinar nýráðningar að ræða.
Jón Baldvin Hannesson skóla-
stjóri Síðuskóla sagði, að þar
vantaði í um það bil tvær stöður.
Þarna væri um að ræða smíðar og
heimilisfræði, hálfa stöðu í
hvoru, og eina stöðu í bekkjar-
kennslu. Ekki sagði Jón að liti út
fyrir að tækist að ráða í þessar
stöður, eins og útlitið væri nú.
VG
• Fleiri
banka!
í hinu ágæta blaði Víkurblað-
inu á Húsavík má oft finna
góða punkta. Þar sem rit-
stjórinn Jóhannes fjallar um
Útvegsbankamálið í leiðara í
síðasta blaði segir m.a.:
„Stórundarleg er þessi uppá-
koma í augum víxiiþurfandi
múgmanna. Og klókir voru
SÍS menn þegar þeir lýstu
kaupum sínum á stórum
hluta bankarústanna, sem
síðan varð til þess að allt fór
i háaloft í Sjálfstæðisflokkn-
um, sprungur mynduðust í
tiltölulega ný- og heilsteyptri
ríkisstjórn og allir bankar
landsins fóru umsvifalaust á
sölulista.
Hingað til hafa flestir máis-
metandi menn talið skynsam-
legt að fækka bönkum í landi
hér. En i Ijósi siðustu atburða
er Ijóst að slíkt yrði hin mesta
ósvinna. Það þarf að fjölga
bönkum mjög þannig að allir
sem vilja geti eignast banka
svo komið verði f veg fyrir þá
óánægju og upplausnar-
ástand sem nú ríkir þegar
útlit er fyrir að ekki fái allir
banka sem vilja.“
# Á uppleiö
Nú Ifður senn að lokum knatt-
spyrnuvertíðarinnar hér á
landi. Ekki er hægt að segja
annað en að þetta sumar hafi
verið hagstætt norðlenskri
knattspyrnu og liðunum að
norðan i efri deildunum yfir-
leitt gengið vel. Þegar 2
umferðum er ólokið bæði í
fyrstu og annarri deild, á Þór
enn góða möguleika á sæti í
Evrópukeppni, KA virðist
vera öruggt með að halda
sínu sæti og Völsungar frá
Húsavfk eiga góða mögu-
leika á að hatda sér í deild-
inni. í annarri deildinni á
Leiftur, sem verið hefur á
toppi deildarinnar lengst allra
liða seinni hluta sumars, enn
góða möguleika á fyrstu-
deiidarsæti og Siglfirðingar
sem mátt hafa munað sinn
fífil fegri í sumar í baráttunni
í knattspyrnunni og verið i
fallbaráttunni, virðast vera að
bjarga sér frá falli. Það gæti
þvf allt eins farið svo að 4
norðlensk lið verði í fyrstu
deild næsta ár og 2 í annarri
deild, en eitt norðlenskt lið
kemur upp úr 3ju deildinni.
Ekki er hægt að segja annað
en að norðlensk knattspyrna
sé á mikilli uppleíð.