Dagur - 02.09.1987, Qupperneq 7
vŒUg6mnérSIMk--?7
Aðeins þriðji hver nýliði
snýr sér að kennslu
Um miðjan ágúst var enn
óráðið í á þriðja hundrað
kennarastöður við grunnskóla
eða sem næst í tíundu hverja
kennararstöðu. Þá höfðu að-
eins 32 af 88 kennurum sem
útskrifuðust í ár úr KHÍ verið
settir í kennarastöður. Undan-
þágunefnd grunnskóla hafði þá
borist 248 umsóknir um
undanþágur fyrir leiðbeinend-
ur og hafði veitt 198 undanþág-
ur. Nefndin hafði hafnað
þremur undanþágum, ágrein-
ingur var um ellefu og 34
umsóknir til voru í „biðstöðu“
vegna endurauglýsinga á við-
komandi stöðum. Nú sem fyrr
er kennaraskorturinn mismun-
andi eftir landshlutum.
Reykjavík er eina fræðslu-
umdæmi landsins þar sem tek-
ist hefur að ráða grunnskóla-
kennara í nær allar lausar
kennarastöður. Þó vantaði enn
tónmennta- og raungreina-
kennara í nokkrar stöður.
Þess eru mörg dæmi að ekki er
einu sinni spurst fyrir um auglýst-
ar kennarastöður hvorki frá
kennurum né leiðbeinendum.
Skólastjórum viðkomandi skóla
ber saman um að ástandið í
kennararáðningum sé með allra
versta móti og eru þó margir
hverjir ýmsu vanir. Athyglisvert
er að á Blönduósi sitja grunn-
skólakennarar nær allar kennara-
stöður, en þar greiðir sveitarfé-
lagið 20 yfirvinnustundir á mán-
uði hverjum kennara í fullri
stöðu og hlutfallslega fyrir hluta-
stöður. Sem dæmi um kennara-
skortinn má nefna að um miðjan
ágúst var óráðið í 4-5 kennara-
stöður á Akrarnesi, tíu á Siglu-
firði, fimm á Þórshöfn, sex á Fá-
skrúðsfirði og fimm á ísafirði.
Svo virðist, sem betur gangi að
ráða kennara að framhaldsskólum
en að grunnskólum. Á Reykja-
víkursvæðinu hefur gengið erfið-
lega að fá framhaldsskólakenn-
ara í stærðfræði, raungreinar,
viðskiptagreinar og tölvukennslu.
Utan Reykjavíkur vantar enn
framhaldsskólakennara í ýmsar
greinar. Spenna á vinnumarkaði,
einkum í byggingariðnaði, veldur
verkgreinaskólunum erfiðleikum
að fá iðngreinakennara. Þeirsem
best þekkja til ráðninga að fram-
haldsskólunum segja að mikið sé
spurt um kennslu í tungumálum
og félagsvísindagreinum og mun
fleiri kennarar á „markaði" í
þeim greinum en verið hefur.
Margir leiðbeinendur og stunda-
kennarar hafa verið ráðnir að
framhaldsskólum.
Tilboð óskast
í neðangreindar bifreiðar sem umferðaróhöpp: eru skemmdar eftir
Toyota Corolla ... árg. 1986
Fiat Uno 60 S ... árg. 1986
Lada Samara ... árg. 1986
MMC Tredia 1600 ... árg. 1983
BMW320 ... árg. 1982
Bifreiðarnar eru til sýnis á BSA verkstæðinu, Skála við Kald-
baksgötu.
Tilboðum skal skila til Svanlaugs á BSA á sérstökum eyðu- blöðum sem þar fást, fyrir kl. 15.00 föstudaginn 4. sept. 1987.
ALMENNAR TRYGGINGAR.
Ritstjórn • Afgreiðsla • Auglýsingar
Strandgötu 31 - Sími 24222.
Innflutningsskjöl:
Ekki þarf lengur
að stimpla í banka
Frá 1. september var fellt nið-
ur skilyrði um bankastimplun
innflutningsskjala til þess að
tollafgreiðsla geti farið fram.
Hækkun á
fargjöldum í
millilandaflugi
Fargjöld Flugleiða í milli-
landaflugi hækkuðu þann 1.
september. Normal- og 6-30
daga fargjöld hækka um 9%
en önnur fargjöld um 7,5%.
Þessi fargjaldabreyting stafar
af stórhækkun ýmissa kostnað-
arliða hér innanlands, auk þess
sem ýmis gjöld erlendis hafa
stórhækkað, svo sem yfirflugs-,
lendingar- og afgreiðslugjöld.
Benda má á að fargjöldin hafa
ekki hækkað síðustu ár til sam-
ræmis við aðrar hækkanir
sem orðið hafa á vörum og
þjónustu.
Sem dæmi um fargjaldabreyt-
ingarnar má nefna, að normal
fargjald til London fram og til
baka var 37.920.00 krónur en
verður 41.340.00 krónur eftir 1.
september. Ódýrasta fargjald til
London hækkar úr 15.450.00
krónum í 16.600.00 krónur.
Normal fargjald til Kaupmanna-
hafnar fram og til baka úr
40.560.00 krónum í 44.220.00
krónur. Normal fargjald til New
York fram og til baka hækkar úr
29.770.00 krónum í 31.990.00
krónur og lægsta fargjald úr
23.840.00 krónum í 25.610.00
krónur.
Jón Baldvin fær
aðstoðarmann
Björn Björnsson, hagfræðingur,
hefur verið ráðinn aðstoðarmað-
ur Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar, fjármálaráðherra.
Björn hefur starfað sem hag-
fræðingur hjá Alþýðusambandi
íslands. Hann tók til starfa hjá
fjármálaráðuneytinu 1. septem-
ber sl.
Var þetta ákveðið með breyt-
ingu á lögum um skipan gjald-
eyris- og viðskiptamála í
tengslum við samþykkt nýrra
tollalaga.
Vakin er athygli á því að regl-
um um greiðslufrest erlendis var í
engu breytt þótt bankastimplun
væri afnumin þannig að fara þarf
eftir þeim hér eftir sem hingað
til. Gjaldeyrisyfirvöld halda uppi
nauðsynlegu eftirliti með því við
sölu gjaldeyris að farið sé eftir
settum reglum um greiðslufrest-
inn.
Um heimild til setningar skil-
yrða um innflutning og gjald-
eyrissölu og viðurlög, ef út af
þeim er brugðið, vísast að öðru
leyti til laga nr. 63/1979 um skip-
an gjaldeyris- og viðskiptamála.
Blöndukarlinn
f
a
Iðnsýningu
Blöndukarlinn kemur á staðinn:
fimmtud.
föstud.
laugard.
sunnud.
3. sept.
4. sept.
5. sept.
6. sept.
kl. 20-22
kl. 20-22
kl. 17-18
kl. 17-18
Mætum ö//.
Mjólkursamlag KEA
Akureyri Simi 96-21400
Herrabúðin
auglýsir: *
0t$úl*
hefst fimmtudaginn 3. september.
Allt að 50% afsláttur
Karbnannaföt frá kr. 6.000.-
Stakir jakkar frá kr. 3.000.-
Stakar buxur frá kr. 1.000.-
Skyrtur frá kr. 600.-
Bolir frá kr. 500.-
Peysur frá kr. 500.-
Ath.
s
Utsalan stendur
aðeins fáerna daga.
Komið og gerið
góð kaup.
Klæðskeraþjónusta.
eprabadin
Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708