Dagur - 02.09.1987, Qupperneq 10
rr •• auoAQ - *;?•(?r .*;■
10 - DAGUR - 2. september 1987
Frá Fjórðungsþingi Norðlendinga
Ályktun um landbúnað:
Varað við samdrætti
í landbúnaði
Fjórðungsþingið samþykkti
ályktun um samdrátt í land-
búnaði og áhrif hans á þéttbýli
og sveitabyggðir. Alyktun
þingsins hljóðar svo:
„Fjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Dalvík 26.-27. ágúst
1987 varar við skipulagslausum
samdrætti í búvöruframleiðslu og
notkun hagræðingarfjár sjóða
landbúnaðarins til að leggja nið-
ur hefðbundinn búskap. Telur
þingið að slíkar einhliða aðgerðir
án tillits til stöðu viðkomandi
jarðar til búreksturs raski um of
eðlilegri samtengingu byggða.
Það er skoðun fjórðungsþings að
aðgerðir sem raska núverandi
búsetu í sveitum séu ekki síður
sveitarstjórnarmálefni, en verk-
efni forustumanna landbúnaðar-
ins, sem oft á tíðum hafa ekki
hliðsjón af búsetuþróun hinna
ýmsu byggðarlaga í landinu.
F*á leggur þingið áherslu á að
hlutaðeigandi sveitarstjórnir
verði umsagnaraðilar um sölu
eða leigu fullvirðisréttar og það
kannað hvernig sveitarfélögin
tryggi best réttarstöðu sína í
þeim efnum.
Fjórðungsþing bendir í þessu
sambandi á úttekt Ræktunar-
félags Norðurlands um búrekstr-
arstöðu lögbýla á Norðurlandi og
þau áhrif sem fyrirsjáanlegur
samdráttur kemur til með að hafa
á sveitabyggðirnar. Auk þess
minnir þingið á óhjákvæmilega
fækkun vinnslustöðva landbún-
aðarins vegna minnkandi
búvöruframleiðslu sem skerða
mun atvinnumöguleika á við-
komandi þéttbýlisstöðum.
Telur þingið að sú fækkun og/
eða sameining vinnslustöðva
landbúnaðarins verði að vinnast í
samráði við hagsmunaaðila en
ekki með valdboði.
Af þessum ástæðum beitir
fjórðungsþing sér fyrir samstarfi
sveitabyggða og þéttbýlis, um
leiðir til að draga úr áhrifum sam-
dráttarins í sveitum á atvinnu-
þróun þess þéttbýlis, þar sem
afurðavinnsla landbúnaðarins og
þjónusta við bændur er veiga-
mikill þáttur í atvinnulífinu.
Samhliða verði unnið mark-
visst að nýrri atvinnuuppbygg-
ingu sveitanna og ráðstafanir
gerðar til að draga úr áhrifum af
óhjákvæmilegum áföllum í
rekstri nýrra búgreina.
Fjórðungsþingið telur að
aðlögunartíma til búháttabreyt-
inga þurfi að lengja allt til næstu
aldamóta.“ JÓH
Ritföng
Námsbækur
Skólavörur
í úrvali.
Bókabúðin Edda
Hafnarstræti 100 Akureyri Sími 243341
Vörukynningar
Miðvikudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
Laugardagur
Sunnudagur
2.9. : Óðalsostur
3.9. : Óðalsostur
4.9. : Óðalsostur
5.9. : Óðalsostur
6.9. : Óðalsostur
Gráðaostur Hnoss/Mysingur
Gráðaostur AB-mjólk
Gráðaostur Drykkjarjógúrt/AB-mjólk
Gráðaostur AB-mjólk
Gráðaostur Hnoss
Alla daga verður gefin „bragðprufa“ af mjólk.
i
ATHUGIÐ:
U.þ.b. 30% afsláttur er á þeim framleiðsluvörum
Mjólkursamlags KEA sem seldar eru á sýningunni.
Mjólkursamlag KEA
j
Akureyri Simi 96-21400
Þingið telur að koma þurfi á samstarfí þéttbýlis og sveitabyggða vegna þeirra
áhrifa sem samdráttur í landbúnaði hefur.
Reikningar fjórðungssambandsins:
Hallarekstur
á síöasta ári
Á fjóröungsþinginu var fjallað
uni reikninga sambandsins fyr-
ir síðasta ár svo og afgreidd
fjárhagsáætlun fyrir árið 1988.
Kostnaður við rekstur fjórð-
ungssambandsins á síðasta ári
nam tæpum 7 milljónum króna.
Tekjur sambandsins af árgjöld-
um voru 4.424.523 kr. og framlag
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaganna til
sambandsins var 1.705.187 kr.
Vaxtatekjur voru 84.891,25 kr.
en samanlagðar tekjur sam-
bandsins voru rúmlega 6,5 millj-
ónir króna og rekstrarhalli sam-
bandsins á árinu því um 400.000
kr.
Nokkrar umræður spunnust á
þinginu varðandi rekstur sam-
bandsins og kom fram tillaga sem
kvað á um að minni hækkun
verði á árgjöldum en stjórn sam-
bandsins hafði lagt til í fjárhags-
áætlun fyrir árið 1988. Tillagan
var felld en hins vegar var fjár-
hagsáætlun samþykkt með þeirri
breytingu að árgjöld skuli verða
0,358% af árgjaldsstofni sveitar-
félags í stað 0,4% í fjárhagsáætl-
un og hefur þetta í för með sér
lækkun á tekjum sambandsins.
í fjárhagsáætlun er gert ráð
fyrir að rekstrarkostnaður verði
10.491.300 kr sem er nokkru
hærra en rekstrarkostnaður þessa
árs. Stærsti útgjaldaliðurinn er
laun og launatengd gjöld en gert
er ráð fyrir að rúmar 5,5 milljónir
króna fari í þennan lið. Helstu
tekjuliðir eru árgjöld og í fjár-
hagsáætlun er gert ráð fyrir að
þær tekjur nemi tæpum 7,5 millj-
ónum en þessi tala mun lækka
þar sem þingið samþykkti áður-
nefnda tillögu þar að lútandi.
Gert er ráð fyrir að framlag úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga verði
rúmar 2,2 milljónir. JÓH
Ályktun fjórðungsþings:
Ákvörðun verði tekin
um fjárhags- og
verkefnaskil ríkis
og sveitarfélaga
Nokkuð var rætt á þinginu um
fjármál sveitarfélaganna og þá
ekki síst þá tekjuskerðingu
sem sveitarfélögin hafa mátt
þola á síðustu misserum. Einnig
var mikið rætt um þriðja
stjórnsýslustigið og virtust
menn ekki vera á eitt sáttir um
kosti þess að taka slíkt stjórn-
sýslustig upp. Verkefna- og
fjárhagsskil ríkis og sveitar-
félaga voru einnig rædd sem og
hugmyndir um byggðasamlög
og héraðsnefndir en þar sem
ekki hafa enn verið samdar
reglur varðandi sýslufélög,
beindi þingið þeim tilmælum
til þingmanna fjórðungsins að
þeir beittu sér fyrir að sýslu-
nefndir fái að starfa til 1990 en
samkvæmt sveitarstjórnarlög-
um eiga þær að hætta störfum
á næsta ári.
Mál þessi voru rædd í nefnd
sem skilaði svohljóðandi tillögu
að ályktun er þingið samþykkti
samhljóða:
„Fjórðungsþingið bendir á, að
hin nýju sveitarstjórnarlög geri
ekki ráð fyrir áframhaldandi
starfi sýslunefnda og minnir í því
sambandi á álitsgerð samstarfs-
nefnda landshlutasamtakanna og
Sambands ísl. sveitarfélaga um
héraðsnefndir og byggðasamlög.
Þingið beinir því til samtaka
sveitarfélaga að látin verði í té
aðstoð við stofnun héraðsnefnda
og beinir því jafnframt til sveitar-
félaga að þau kanni hvort haga
eigi uppbyggingu nefndanna
þannig að þær stuðli að eða ann-