Dagur - 21.09.1987, Page 15
21. september 1987 - DAGUR - 15
n Minnmg:
TKristjana Árnadóttir
Grímshúsum
Fædd 21. sept. 1907 - Dáin 11. sept. 1987
Nú þegar haustlitirnir eru hvað
fegurstir, eða aðfaranótt 11.
sept., andaðist amma mín og
nafna, Kristjana Árnadóttir, á
Borgarspítalanum í Reykjavík,
eftir þriggja mánaða legu.
Hún fæddist í Saltvík í Reykja-
hreppi 21. sept. 1907 og hefði því
orðið 80 ára í dag. Hún var dóttir
hjónanna Sigurbjargar Þorláks-
dottur og Árna Frímanns Krist-
jánssonar. Eina systur átti hún,
Þorbjörgu húsfreyju í Hellu-
líndi, sem einnig er látin.
Þann 15. ágúst 1926 giftist
amma afa mínum, Hallgrími Óla
Guðmundssyni, Grímshúsum.
Hann var fæddur 29. sept. 1897.
Þau bjuggu allan sinn búskap í
Grímshúsum.
Þau eignuðust sex börn sem
börn:
Eysteinn, f. 19.3. 1929, býr í
Grímshúsum. Sigurbjörg, f. 10.7.
1931, býr í Húsabakka. Guð-
mundur, f. 26. 9. 1938, býr í
Grímshúsum. Jónína Þórey, f.
10.8 1941, dó ungbarn. Jónína
Árný, f. 18.1 1943, býr á Húsa-
vík, yngst er Guðrún Helga, f.
29.12 1944, býr í Reykjavík.
Barnabörnin eru 17, og barna-
barnabörnin 10.
Afa missti hún eftir 28 ára
hjónaband þann 14. sept. 1954.
Eflaust hefur það verið þungt
áfall fyrir ömmu með sum börnin
innan við fermingu. Áfram bjó
hún í Grímshúsum með börnum
sínum.
Amma starfaði mikið að fé-
lagsmálum. Hún var í Kvenfélagi
Aðaldæla til dauðadags, einnig
var hún í stjórn Kvenfélagasam-
bands Suður-Þingeyinga. Hún
var í kirkjukórnum og organisti
Grenjaðarstaðarkirkju í mörg ár.
Það var reyndar ekki ætlun
mín að rekja æviferil ömmu hér
eða telja upp allt sem hún starf-
aði, heldur minnast þeirra daga,
íslandsmótið í skák:
Óvænt
úrslit
Óvænt úrslit á Skákþingi
íslands síðdegis í gær gerðu
það að verkum að Margeir Pét-
ursson er nú einn í efsta sæti.
Davíð Ólafsson sigraði Helga
Ólafsson stórmeistara og þar
með varð Margeir einn á
toppnum.
Margeir sigraði Hannes Hífar
Stefánsson, en úrslit annarra
skáka í fjórðu umferð urðu þau
að Þröstur Árnason sigraði
Gunnar Frey Rúnarsson, Jón G.
Viðarsson sigraði Áskel Örn
Kárason. Dan Hansson og Gylfi
Þórhallsson enduðu skák sína
með jafntefli. Skákum Karls Þor-
steins og Sævars Bjarnasonar,
Ólafs Kristjánssonar og Þrastar
Þórhallssonar lauk einnig með
jafntefli.
Margeir er nú með 3 og hálfan
vinning. Karl og Jón Garðar eru í
öðru til þriðja sæti með 3 vinn-
inga.
sem við áttum saman, þegar ég
dvaldi hjá henni í skóla upp við
Staði. Það var góð reynsla fyrir
mig. Eg svaf fyrir ofan hana í
rúminu hennar, því ég var ósköp
lítil í mér. Oft spiluðum við
Ólsen, Ólsen og fleiri spil. Hún
kenndi mér bænir, sem ég bý enn
að, sagði mér sögur. Einnig spil-
aði hún oft á orgelið sitt og við
sungum saman.
Fyrir allar þessar stundir, sem
við áttum saman bæði fyrr og síð-
ar vil ég þakka henni. Ég mun
minnast hennar eins og hún var,
hlý og góð amma. Blessuð sé
minning hennar.
„Ég fel í forsjá þína,
guð faðir sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um Ijósið lát mig dreyma
og Ijúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt. “
Matth. Jochumsson.
Kristjana Helgadóttir og
fjölskylda.
FUNDUR
Eiginkonur meistara í Meistarafélagi byggingar-
manna Norðurlandi!
Áríðandi félagsfundur verður haldinn að Hótel KEA
þriðjudaginn 22/9 ’87.
Rætt verður um undirbúning Iðnþings íslendinga sem
haldið verður í október.
Mætum allar stundvíslega. Stjórnin.
OPUS AKUREYRI
í versluninni Bókval, Kaupvangsstræti 4
þriðjudaginn 22. september
ópUS - mest seldi
bókhaldshugbúnaðurinn
ópus - fyrir öll fyrirtæki
íslensk
forritaþróun sf
Höfðabakka 9-112 Reykjavík
Sími 91-671511
VORUÞROUN
II
ATAK
IÐNTÆKNISTOFNUNAR ISLANDS
Vöruþróunarátaki Iðntæknistofnunar íslands er ætlað að efla
nýsköpun í atvinnulífinu. Unnið verður að afmörkuðu verkefni og er
megináhersla lögð á að þátttakendur markaðsfæri afurð í verkefnislok.
Verkefnið er styrkt af Iðnaðarráðuneytinu og Iðnlánasjóði.
Kynningarfundur um verkefnið verður haldinn 22. september næstkomandi
kl. 15.00 hjá Iðntæknistofnun íslands, Keldnaholti.
Fyrirtækjum og einstaklingum sem óska eftir að gerast þátttakendur
í verkefninu er bent á að hafa samband við stjórnanda þess, Karl Friðriksson,
ísíma (91) 687000.
Umsóknareyðublöð fást hjá Iðntæknistofnun íslands og öðrum aðilum
verkefnisins. Einnig munu þau liggja frammi á kynningarfundinum.
Umsóknarfrestur rennur út 15. október 1987.
n Iðntæknistofnun íslands
Keldnaholti, 112 Reykjavík. Sími (91) 687000.
í verkefnisstjórn sitja fulltrúar
Félags íslenskra iðnrekenda,
Landssambands iðnaðarmanna,
Iðnlánasjóðs,
Alþýðusambands íslands og
Iðntæknistofnunar íslands.