Dagur - 11.11.1987, Qupperneq 3
11. nóvember 1987 - DAGUR - 3
Hvað heldurðu?
Húnvetningar og Skag-
firðingar næstir
Spurningakcppni Ríkissjón-
varpsins, „Hvað heldurðu?“
hefur þegar skapað sér tölu-
verðir vinsældir. A fimmtu-
daginn kemur verður tekinn
upp þriðji þáttur á Blönduósi
þar sem keppa Húnvetningar
og Skagfírðingar. Að sögn
Tage Ammendrup hjá Sjón-
varpinu, hefur sjónvarps-
mönnum verið ákaflega vel
tekið og alls staðar verið fullt
hús á meðan upptökur fara
fram.
Lið Skagfirðinga í næsta þætti
verður skipað þeim Ólafi Páls-
syni, Sauðárkróki, Páli Dag-
bjartssyni skólastjóra í Varma-
hlíð í Skagafirði og Benedikt Sig-
urðssyni frá Siglufirði.
Húnvetningarnir sem mæta til
leiks eru þeir Sveinbjörn Atli
Magnússon Blönduósi, Rúnar
Kristjánsson Skagaströnd og
Ólafur Ólafsson Víðidalstungu.
Enn sem komið er, er aðeins vit-
að fyrir víst um einn hagyrðing
sem mun mæta frá Húnvetning-
um en það er sr. Hjálmar Jóns-
son prófastur. Hann er af ætt
Bólu-Hjálmars.
í fjórða þætti keppa svo
Eyfirðingar og Þingeyingar en sá
þáttur verður tekinn upp á Húsa-
vík. Það er Samver á Akureyri
sem sjá mun um upptökur á þess-
um tveim þáttum.
Tage sagði að forkeppninni
yrði lokið 21. janúar á næsta ári
og verður þá hafist handa við
töku á sex þáttum í undanúrslit-
um, þar næst þrem og að lokum
verður einn úrslitaþáttur.
„Þessi keppni hefur verið jöfn
og skemmtileg t.d. þurfti bráða-
bana til að skera úr um úrslit í
einum þáttanna. Þetta hefur ver-
ið ánægjulegt en ég sakna kven-
þátttakendanna," sagði Tage að
lokum.
VG
Við bjóðum
allt á góðu
Baðsloppar herra frá kl. 1.200
Greiðslusloppar (velúr)
Sængurföt og stök lök.
Handklæði á mjög góðu verði
Sængur og koddar.
Dúkar í ótal gerðum.
Að ógleymdu okkar
barnafataúrvali.
Hótel Höfn Siglufirði:
Greiðir læ
orkugjö
Síguttar GubmttuLsstímrhf.
HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI
A fundi veitunefndar Siglu-
fjaröarkaupstaðar í síðasta
mánuði var tekið fyrir bréf frá
Viðari Ottesen, hótelstjóra á
Hótel Höfn þar sem hann segir
sig greiða hærra orkuverð en
sambærilegur atvinnurekstur í
Reykjavík og nágrannasveitar-
félögum.
„Ég byggi mitt mál á því, að á
þessum stöðum hafa félagar í
Sambandi veitinga- og gistihúsa-
eigenda gert samning við rafveit-
ur um að stóru veitingahúsin sem
nota mikla orku fengju lækkun á
kostnaði. Ég er með stærsta
hótelið hér á Siglufirði og tel mig
geta farið fram á sama hlut.
Erindi mitt var samþykkt en
ekki hefur endanlega verið geng-
ið frá hversu mikil lækkunin
verður, því fvrst þarf að mæla
nákvæmlega hvað hótelið notar
mikið rafmagn.
Málið er tilkomið vegna þess
að margir voru farnir að snúa sér
að gasnotkun sem reyndist ódýr-
ara en rafmagnið. Ég er afskap-
lega ánægður með skilning bæjar-
stjórnar á þessu máli,“ sagði Við-
ar að lokum. VG
Herraleðurjakkar
3 gerðir. Verð frá kr. 9.995.-
Dömuleðurjakkar
2 gerðir. Verð kr. 15.330.-
Leðurhanskar
á dömur og herra
Verð kr. 995.-
Opið iaugardaga 9-12.
WEyfjörö
Htatteyrvgotu 4 ■ simi 22275
Domaramál í 1. deild:
Leikurinn í kvöld
hefel á rétlum tíma
-dómarar verða sendir með leiguvél ÍR-inga
Dómaramál í handknattleik
hafa verið nokkuð til umræðu í
framhaldi af endurteknum töf-
um sem orðið hafa á leikjum í
Iþróttahöllinni á Akureyri á
miðvikudagskvöldum. Tvíveg-
is hefur orðið að fresta leikjum
KA um 20-30 mínútur vegna
þess að dómarar voru ekki
mættir á réttum tínia. Þetta
hefur valdið talsverðri reiði hjá
áhorfendum en ekki síður
óþægindum hjá leikmönnum
við undirbúning fyrir leik.
Hér er ekki um einfalt mál að
ræða. Vegna þess hvernig stend-
ur á flugi til Akureyrar hafa dóm-
arar ekki viljað taka vél fyrr en
klukkan 19.00 úr Reykjavík og
eru því ekki lentir á Akureyri
fyrr en um áttaleytið, á sama
tíma og leikir eiga að hefjast.
Með þessu móti sleppa dómar-
arnir við að taka sér frí síðdegis
daginn sem leikirnir fara fram
enda spurning til hvers hægt er að
ætlast í þeim efnum. Síðasta vél
til Reykjavíkur á miðvikudags-
kvöldum fer klukkan 20.20 og og
því eru dómararnir ekki komnir
til síns heima fyrr en um klukkan
10.30 daginn eftir leik. Ef þessir
menn ætluðu að komast í leik á
réttum tíma þyrftu þeir að fara af
stað úr Reykjavík klukkan 14.00
og misstu þannig nær heilan dag
úr vinnu. Vinnutap sem þeir
þurfa sjálfir að borga.
Stefán Arnaldsson og Ólafur
Haraldsson dómarar frá Akur-
eyri hafa þegar þannig hefur
staðið á farið suður um miðjan
dag til að ná leik og misst hálfan
dag úr vinnu. Þeir eru hins vegar
komnir norður strax klukkan níu
morguninn eftir.
Ljóst þykir að eitthvað þarf að
gera því hvað sem öðru líður er
ekki hægt að bjóða áhorfendum
upp á að svona hlutir endurtaki
sig. Nærtækasta lausnin virðist
vera að fresta miðvikudagsleikj-
um til klukkan 20.30 nema hægt
sé að leysa málið eins og gert
verður í kvöld. Þá koma ÍR-ingar
til leiks við KA með leiguvél frá
FN og leggja í loftið klukkan
fimm. Dómarar leiksins verða að
sögn Guðjóns Guðmundssonar
starfsmanns HSÍ sendir með
þessari vél og því mun leikurinn
hefjast á tilsettum tíma, klukkan
20.00. ET
15 búning-
ar keyptir
- fyrir Slökkvilið
Húsavíkur
Á fundi Bæjarstjórnar Húsa-
víkur í síðustu viku var sam-
þykkt heimild til kaupa á 15
búningum fyrir slökkviliðs-
menn og er kaupverð þeirra
samtals 244 þúsund krónur.
í Slökkviliði Húsavíkur eru 25
menn en þessir sérstöku slökkvi-
liðsbúningar eru aðeins til fyrir
10 þeirra. Nú hafa mörg slökkvi-
lið á landinu tekið sig saman um
kaup á alls 200 búningum, þar af
15 fyrir Slökkvilið Húsavíkur.
Fjárveiting til þessa verkefnis
verður á fjárhagsáætlun Húsavík-
urkaupstaðar fyrir árið 1988. IM
Handhæg merkibyssa
Vekjum athygli á
DAGMERKINGUM A ÍSAÐAN FISK
Merkimiöarnir eru sjálflímandi.
• Sérþróaö lím, sem límist á blauta fiskkassana.
• Viö þvott losna miöarnir auöveldlega af meö heitu vatni.
• Handhæg og létt merkibyssa er þægileg til að líma miðana á fiskkassana.
i Athugiö vel aö okkar
vörumerki sé
prentað á
undirboröa
miöanna.
Dagmerklmiðar
Ríkismat sjávarafuröa
MINNIR A OAGMERKINGAR
A íslensku sjávarútvegssýnlngunni í Reykjavík dagana 19. - 23. sept. sl. vakti pessi
aðferð til að dagmerkja ísaðan fisk mikla athygli. DACFlSK--merklkerfið er nú pegar
um borð í stórum hluta íslenska fiskiflotans, elnnig í Færeyjum, crænlandi og Noregi.
börumirhínc hf*
DALSHRAUNI 14, PÓSTHÓLF 283, HAFNARFIRÐI, ^SÍMI 5 3588