Dagur - 11.11.1987, Síða 16
Hafið þiö reynt
okkar þjónustu? TediSmyndir
Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520.
Skagafjörður:
Riðan komin
í Akrahrepp
- sem áður var talinn ósýkt svæði
Svo virðist sem riðuveikin
breiðist stöðugt út í Skagafirði.
Nú hefur riða verið staðfest í
Flatartungu á Kjálka. En
Akrahreppur hefur fram til
þessa verið talið ósýkt svæði
gagnvart riðuveiki.
Að sögn Gunnars bónda í Flat-
artungu varð vart við einkenni í
Heilbrigðiseftirlit
í Þingeyjarsýslum:
Sveitarfélög í
vanskilum við
Húsavíkurbæ
Húsavíkurbær mun hætta að
sjá um fjármál og greiðslur
vegna heilbrigðiseftirlits í
Norðurlandsumdæmi eystra
um áramótin, ef sveitarfélög í
umdæminu hafa ekki gert full
skil á greiðslum vegna eftirlits-
ins fyrir þann tíma.
Sameiginlegt heilbrigðiseftirlit
sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum
var tekió upp á árinu 1985. Heil-
brigðisfulltrúi hefur aðsetur á
Húsavík og fjármagnar bæjar-
sjóður rekstur heilbrigðiseftirlits-
ins en síðan eiga sveitarfélögin að
endurgreiða bæjarsjóði þeirra
hluta miðaö við íbúafjölda.
Sveitarfélög njóta þessarar
þjónustu aö undanskildum þeim
sem eru austast og vestast í sýsl-
unum, nokkur sveitarfélaganna
eru í verulegum vanskilum viö
bæjarsjóö og hafa tvö þeirra
ekkert greitt fyrir þjónustuna frá
upphafi.
„Við erum ckki tilbúnir til að
fjármagna þetta nema að viö
fáum endurgreitt. Svæðisncfnd
hefur verið sent bréf vcgna máls-
ins og vonandi cr þaö nóg til að
þessar greiðslur komi mcð
skilum," sagði Bjarni Þór Einars-
son bæjarstóri á Húsavík í sam-
tali við Dag. IM
tveim 2ja vetra kindum l'yrir um 2
vikum. í Flatartungu eru 400 fjár
og sagði Gunnar viðræður nú
standa yfir hvenær af niðurskurði
verði. Bjóst hann frekar við að
hann færi frarn nú í haust.
Akrahreppurinn hefur hingað
til veriö talið ósýkt svæði. Að
vísu varð fyrir 10 árum vart við
riðutilfelli á Flugumýri og þá
skornir einhverjir árgangar úr
hjörðinni þar. Og enn lengra er
síðan að fé var skorið á Dýr-
finnustöðum ysta bænum í
hreppnum vegna riðu. Annars
hefur riðuveiki ekki orðið varl í
Akrahreppi síðan fyrir fjárskipti.
Nú eru bara 2 ystu hrepparnir
vestan Vatna, Skarðshreppur og
Skefilsstaðahreppur, og Rípur-
hreppur milli Héraðsvatna, sem
ekki hafa fengið að kenna á rið-
unni. -þá
Sigling inn Eyjafjörð með hund í stafni, gleraugu á nefi og hatt á höfði.
Mynd: TLV
Leyfisveitingar viðskiptaráðherra:
„Setja okkur í talsverða klípu“
Sú ákvöröun sem Jón Sigurðs-
son viöskiptaráöherra tók að
veita sex nýjum aðilum leyfi til
útflutnings á frystum fiski til
Bandaríkjanna hefur komið á
óvart og sætt talsverðri gagn-
rýni. Ákvörðun þessi er tekin
án þess að hafa verið rædd í
ríkisstjórninni og er ekki síst
einkennileg með tilliti til þess
að fyrir Alþingi liggur laga-
frumvarp stjórnarflokkanna
þess efnis að viðskipti við
Bandaríkin flytjist frá viðskipta-
ráðuneyti til utanríkisráðu-
neytis.
Strax við myndun núverandi
ríkisstjórnar kom fram sú skoðun
alþýðuflokksmanna að gefa út-
flutning til Bandaríkjanna
frjálsan. Því höfnuðu Sjálfstæðis-
- segir Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra
klípu,“ sagði
flokkur og Framsóknarflokkur en
viðurkenndu að nauðsynlegt væri
að skoða þessi mál. Síðan þetta
hefur viðskiptaráðherra að sögn
Steingríms Hermannssonar utan-
ríkisráðherra oftar en einu sinni
rætt um að veita þessi leyfi.
„Ég hef oftar en einu sinni gert
athugasemdir við þetta og þegar
Jón hringdi í mig á föstudaginn
þá gerði ég við þetta athuga-
semdir. Það er hins vegar erfitt
við þetta að eiga því valdið er
ennþá hjá viðskiptaráðherra.
Það er ljóst að þeir aðilar sem
fara í þennan útflutning leggja
þar í talsverðar fjárfestingar og
það kann að reynasl erfitt fyrir
mitt ráðuneyti að valda þeim
fjárhagslegum skaða með svipt-
ingu leyfanna. Þetta setur okkur
því í talsverða
Steingrímur.
Hann sagðist hafa verið búinn
að ákveða að halda fund með
hagsmunaaðilum í útflutningi til
að skoða þessi mál og athuga
hvort hægt væri innan einhverra
almennra reglna að rýmka fyrir
útflutningi til Bandaríkjanna.
Eftir leyfisveitingarnar væri slíkt
augljóslega mun erfiðara. ET
„Nýjar hugmyndir
koma með nýju fólki“
- segir Svanfríður Jónasdóttir
á ný,“ sagði Svanfríður Jónas-
dóttir á Dalvík, nýkjörinn
varaformaður Alþýðubanda-
lagsins.
„Mér líst vel á framtíð flokks-
ins eftir þessar breytingar og
vænti þess að erfiðum kafla í
sögu hans sé að Ijúka. Við
munum taka höndum saman
um að efla Alþýðubandalagið
Kjarasamningaviðræðurnar:
„Ljóst að rekstur frysti-
húsanna er erfiður“
- segir Þórarinn V. Þórarinsson hjá VSÍ
„Það voru ekki stigin nein stór
skref á fundinum í gær,“ sagði
Þórarinn V. Þórarinsson hjá
VSI í samtali við Dag um
fyrsta samningafund Verka-
mannasambandsins og vinnu-
veitenda. Á fundinum var
skipuð nefnd beggja aðila sem
kanna á afkomu og horfur í
fiskvinnslugreininni.
„Megináhersluatriði fulltrúa
VMSÍ snúa að launamálum fisk-
vinnslufólks og voru allir sam-
mála um, að þá væri afkoma
útflutningsgreinanna mál sem
ekki er komist hjá að skoða.
Það er Ijóst að rekstur frysti-
húsa er nú mjög erfiður. Við höf-
um þurft að horfa upp á miklar
verðlagshækkanir innanlands
bæði hvað varöar laun, hráefnis-
kostnað og hvað annað. Á sama
tíma hafa afurðir hækkað en þó
minna cn sem svarar kostnaðar-
hækkunum innanlands.
Við bendunt okkar viðsemj-
endum á, að það er mjög glæsi-
legur árangur að kaupmáttur hér
á landi hafi aukist um þriðjung á
síðustu misserum.“
- En nú fullyrða þeir að þessi
kaupmáttur hafi ekki náð jafnt til
allra.
„Já, þcir segja að þetta sé
meðaltal og hafi deilst út með
misjöfnum hætti. En svo er það
með öll meðaltöl, þau eru byggð
upp af háum og lágum tölum.
Það má vel vera fiskvinnslufólk
hafi ekki fylgt meðaltalinu að
fullu en þó held ég að ljóst sé, að
ekki er þarna sá munur á senr
fólk vill vera að láta." sagði Þór-
arinn að lokunr. VG
Þegar Svanfríður hlaut kosn-
ingu varð ljóst að þetta er í fyrsta
sinn sem varaformaður flokksins
er af landsbyggðinni. Þegar hún
var spurð álits á því hvort hún
teldi áframhaldandi ágreining
verða milli stuðningsmanna Ólafs
Ragnars Grímssonar annars veg-
ar og stuðningsmanna Sigríðar
Stefánsdóttur hins vegar sagði
Svanfríður: „Nei, ég held að fólk
hafi verið á einu máli um að það
yröi að sætta sig við þau úrslit
sem urðu og ekki væri annað að
gera en hefjast handa.
Ég geri ráð fyrir því að starf-
semi flokksins breytist og nýjar
hugmyndir komi með nýju fólki,
jafnt stjórn sem framkvæmda-
stjórn og miðstjórn. Þetta mun
setja ákveðinn svip á flokkinn og
stefnumótun hans. Við væntum
þess sannarlega að allir taki á og
að flokksmenn hafi þann félags-
lega þroska að þeir snúi nú bök-
um saman. Staða flokksins hefur
verið erfið undanfarið en við ætl-
unt okkur að gera hann að því
baráttutæki sem honurn er ætlað í
tslenskum stjórnmálum.“ EHB