Dagur - 02.12.1987, Blaðsíða 3

Dagur - 02.12.1987, Blaðsíða 3
2. desember 1987 - DAGUR - 3 Kartöfltrr, kleinur, | laufabrauð, kjöt, j og fiskur. AUt þetta og ýmislegt fíeira getur þú djúpsteikt {feitinni írá okkurl SMJÖRLÍKISGERÐ< SÍMI 96-21400 • AKUREYRI Akureyri: Mannfæð háir starfi karlakóranna Yetrarstarf karlakóranna á Akureyri, Geysis og Karlakórs Akureyrar, verður með svip- uðu sniði og undanfarin ár. Karlakór Akureyrar heldur hina árvissu Lúsíuhátíð í Akur- eyrarkirkju um miðjan des- ember og Karlakórinn Geysir fagnar 65 ára afmæli sínu 1. desember. hefðu ákveðið að reyna að starfa sjálfstætt í vetur. „Við ætlum okkur að æfa fyrir konsert næsta vor og byrja á fullu eftir áramót- in. Takist ekki að fá mannskap í það þá kemur samstarf við Karla- kór Akureyrar til greina. Mannfæð í kórunum gerði það að verkum að þeir störfuðu saman um tíma sl. vetur," sagði Freyr. „Vendiþunkturinn var með septembergreiðslunni og ef við fáum ekki leiðréttingu get ég ekki betur séð en hallinn verði svipaður og undanfarin ár, alls ekki minni. En það þýðir ekkert annað en vera bjartsýnn og ég hef trú á að leiðrétting verði gerð með desembergreiðslunni,“ sagði Egill Olgeirsson formaður stjórn- ar Sjúkrahúss Húsavíkur. Eins og staðan er í dag bendir allt til þess að hallinn á sjúkra- húsunum verði allt að 10% um áramót. Fram eftir ári reyndist nýja kerfið vel og útlit fyrir sára- lítinn halla. En í september gerð- ist það svo að ráðuneytið skerti stórlega framlag sitt. Forsendan var sögð vera galli í tölvuforriti og launaþátturinn hefði því verið ofreiknaður í nokkra mánuði, frá síðustu kjarasamningum. Pessu hafa stjórnendur sjúkrahúsanna mótmælt, enda hafi framlög til ríkisspítalanna ekki verið skert. Hefur stjórn Landssambands sjúkrahúsa að undanförnu reynt að fá leiðréttingu á þessu. Karlakórarnir eiga að baki langa og merka sögu í tónlistarlífi bæjarins. Undanfarin ár hefur þó dregið nokkurn þrótt úr þeim vegna fækkunar félaga, og að sögn formanna kóranna hefur of lítil endurnýjun átt sér stað. Yngri menn hafa lítið gefið sig að söngnum í stað eldri kórfélaga sem hætta. Þykir mörgum þetta að vonum sorgleg þróun en menn binda þó vonir við að ástandið sé tímabundið. Kórarnir eiga báðir góð húsakynni og kvenfélög þeirra styðja við bakið á starfinu. Að sögn Vignis Jónassonar, formanns Karlakórs Akureyrar, hafa æfingar fyrir Lúsíuhátíðina gengið vel og 28-30 manns mæta á söngæfingar. Svo virðist sem betur gangi að því leyti nú en í fyrra. Nokkrir félagar úr Geysi munu syngja með kórnum á há- tíðinni. Freyr Ófeigsson, formaður Geysis, sagði að Geysisfélagar Formenn kóranna voru sam- mála um að samstarf og/eða sam- eining væri vel hugsanlegt ef ekki fyndust aðrar lausnir á mannfæð kóranna og í raun mætti bæjar- félag eins og Akureyri vel við una að eiga einn góðan og stóran karlakór. EHB Kanínurnar vekja svo sannarlega áhuga barnsins. Það eru starfsmenn í versiun Sigurðar Guðmundssonar sem hafa þessar fallegu skepnur til sýnis í versluninni í jólamánuðinum. Mynd: tlv „Brjótum múrana“: Vilja konur í ábyrgðarstöður á sviði tækni- og skipulagsmála Á vegum samnorræna verkefn- isins „Brjótum múrana“, sem stuðlar að fjölbreyttara náms- og starfsvali kvenna er m.a. reynt að stuðla að því að fá konur meira inn í störf sem lúta að skipulagsmálum. Á Akureyri hefur verið auglýst Sjúkrahús: Stefnir í hallarekstur Allt stefnir nú í að verulegur halli verði um áramótin á sjúkrahúsum um allt land. Þau sjúkrahús sem rekin eru að hluta til af sveitarfélögunum voru um síðustu áramót sett á föst fjárlög og var því fyrir- komulagi ætlað að koma í veg fyrir þann halla sem var á þeim með daggjaldakerfinu áður. Mikill uggur er nú í stjórnend- um sjúkrahúsa og sveitarstjóm- armönnum víða um land vegna þessa. Því með föstu fjárlögun- um var gert ráð fyrir að sveitar- félögin mundu greiða ef um mismun yrði að ræða. „Ég hef miklar áhyggur af þessu, því með þessu kerfi átti allur hallarekstur að vera úr sög- unni,“ sagði Jón Guðmundsson á Óslandi formaður stjórnar Sjúkrahúss Skagfirðinga. Jón sagði að kannað hefði verið með sparnað í rekstri og fækkun á af- leysingafólki yfir sumarið. En ekki reynst möguleiki á því. Það virtist vera þannig, að minna álag á sjúkrahúsum í Reykjavík yfir sumarleyfistímann flyttist á sjúkrahúsin úti á landi. -þá eftir háskólamenntuðum manni til starfa hjá skipulags- stjóra Akureyrarbæjar en áður en það var gert, sendi Valgerð- ur Bjarnadóttir skipulagsdeild bréf þar sem hún bað um að auglýst væri eftir konu í þessa stöðu. Enn hefur ekki verið ráðið í stöðuna. „Ég gerði þetta m.a. í þeirri von að um þetta skapaðist umræða, því hjá Akureyrarbæ er ekki ein kona í ábyrgðarstarfi sem lýtur að tæknisviði. Að vísu eru ekki margar konur menntað- ar á þessu sviði utan tækniteikn- ara og arkitekta." Valgerður sagði ennfremur að talið væri mikilvægt að konur hefðu meira með skipulagsmál að gera því þar væri verið að ákveða umhverfi okkar og nauðsynlegt að fá sjónarmið kvenna fram í því sambandi. Aðspurð um hvort hjá Akur- eyrarbæ væri vart tregðu við ráðningu kvenna í ábyrgðarstöður sagði hún að ekki hefði verulega reynt á það enn. Hún sagðist nú vinna að því í samvinnu við Akureyrarbæ að kanna hvaða atriði hvetja eða letja konur til þess að taka að sér stjórnunar- störf. í Norégi hefur verið unnið markvisst að því að fá konur til starfa við skipulagsmál og m.a. þegar unnið var að skipulagi í Stavanger til ársins 2003 voru , konur fengnar inn í það starf fyrir tilstuðlan „Brjótum múrana“ verkefnisins þar. VG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.