Dagur - 02.12.1987, Page 9
8 - DAGUR - 2. desember 1987
2. desember 1987 - DAGUR - 9
Mjólkursamlag Kaupfélags
Þingeyinga á Húsavík hóf
starfsemi sína 10. október
1947. Samlagsstjóri var Har-
aldur Gíslason mjólkur-
fræðingur og gegndi hann
stöðunni þar til hann féll frá
síðla árs 1984. Þann 20.
nóvember sl. þáði fjöldi manns
boð um að heimsækja mjólk-
ursamlagið og þiggja veitingar
í tilefni af 40 ára afmæli þess.
Dagur mætti í afmælisveisluna
og tók þá myndirnar sem birt-
ast hér í opnunni. Einnig var
rætt við fjóra starfsmenn sam-
lagsins, fyrst við Hlífar Karls-
son sem tók við starfi samlags-
stjóra 1. mars 1985.
Hlífar er fæddur og uppalinn á
Húsavík og hefur lengst af búið
hér, 18 ára hóf hann störf í
mjólkursamlaginu. „Til að byrja
með vann ég hérna og kynntist
þessu en svo var mér boðinn
samningur. Það var ekkert sem
vakii áhuga minn frekar, ég hafði
aðeins komið við í pylsugerðinni,
ég vissi að ég var ekki góður
smiður og langaði ekki til að
verða múrari en þetta var það
helsta sem manni stóð til boða að
læra hér á þessum tíma.
Ég sló því til og skellti mér í
mjólkurfræðina og mér hefur
alltaf fundist gaman að vinna við
þetta. Það má segja að þetta sé
lifandi starf, hér er unnið með líf-
ræn efni.“
Hlífar fór til Danmerkur vorið
1967 og lauk þar námi ári síðar,
1976 hélt hann til framhaldsnáms
í Danmörku og lauk mjólkur-
tækninámi, eftir það kom hann
heim aftur og tók við ostagerð
samlagsins.
- Mjólkursamlagið hefur hlot-
ið verðlaun og viðurkenningar
fyrir osta, varst þú ekki heilmikill
ostameistari?
„Jú, alveg rosalegur ostameist-
ari. Nei, nei, en mér fannst þetta
skemmtilegasta vinnan, var
búinn að vinna við alla þætti
framleiðslunnar. Það er ekki einn
maður sem gerir osta heldur er
þetta hópvinna en það er rétt að
við höfum fengið verðlaun á
þeim ostasýningum sem við höf-
um tekið þátt í. Á ostasýningu í
Danmörku fengum við viður-
kenningarskjal en ekki verðlaun
enda voruin við ekki formlegir
þátttakendur þótt við fengjum að
vera með. Einnig tókum við þátt
í alheimsostasýningu fyrir tveim
KAUPFELAGS ÞINGEYINGA
en við gætum tekið á móti meiri
mjólk en við gerum í dag.
Það sem gildir nú er að halda
sér alltaf í takt við tímann, að
vera með í því sem er að gerast
og láta vita að við séum til. Hér
vinna 24 starfsmenn þar af 6
m j ólkurfræðingar. “
- Ertu heppinn með starfslið-
ið?
„Já, hér er ekki mikið um
breytingar á starfsliði. Það er
ákveðinn kjarni sem hér hefur
unnið saman og endurnýjast á
eðlilegan hátt, þetta finnst mér
benda til þess að vinnustaðurinn
sé góður, mórallinn góður og
starfsvettvangurinn góður.“
- Varstu ánægður með daginn
sem haldið var upp á 40 ára
afmælið?
„Afmælið var stórkostlegt, ég
held að við höfum fengið rúm-
lega 1000 gesti. Hingað kom fólk
bæði úr bænum og sveitunum. Ég
hefði gjarnan viljað sjá meira af
bændafólkinu en við erum svo
miklir bæjarbúar að afmælið var
auglýst heldur seint og grunur
leikur á að sumir hafi ekki frétt af
þessu fyrr en sama dag og þá hafi
verið of seint fyrir þá að gera ráð-
stafanir til að komast í veisluna.
En við munum bæta úr þessu og
auglýsa næsta afmæli tímanlega
svo enginn missi af því. Við höf-
um ekki áður haft svona opið hús
en þetta þarf að gera oftar, þetta
mæltist vel fyrir og svona sam-
band við neytendur er ómetan-
legt.“
- Fannst þér mörgum koma á
óvart það sem hér fer fram?
„Já, mér fannst það. Segja má
að margir sem vinna hérna sjái
ekki mjólkina fyrr en þeir opna
fernuna heima á eldhúsborði, hér
er allt orðið svo tæknivætt en það
eru ekki allir sem gera sér grein
fyrir því. Dagurinn var dýrlegur
og ég hallast að því að við mun-
um taka upp þann sið að hafa
einhvers konar mjólkurdag í
framtíðinni. Þá getum við sýnt
fólki hvað við erum að gera, ekki
síst yngstu kynslóðinni. Fjöldi
ungra sveina lýsti því yfir að hér
ætluðu þeir að vinna þegar þeir
yrðu stórir. Ég sagði að það væri
gott og blessað en að hér ynni
enginn sem ekki drykki mjólk og
þá voru þeir komnir með mjólk-
urfernur í hendurnar alveg um
leið. Ég á ekki von á að hér verði
neinn hörgull á starfsmönnum í
framtíðinni, enda er yfirleitt
langur biðlisti með umsóknum
um vinnu hjá okkur.“ IM
im
ARA
Hermann Jóhannsson ostameistari:
„Okknr vantar eina
miDjón mimna“
Hermann Jóhannsson mjólk-
urfræðingur er ostameistari
Mjólkursamlags KÞ. Hann hóf
störf hjá samlaginu 1972 og fór
á samning sama ár. 1976 hélt
hann til Danmerkur og var þar
við nám í eitt ár, 1983 fór hann
aftur til Danmerkur og lauk þá
námi við mjólkurtækniskóla.
„Það hefur alltaf verið svolítið
sérstakt að vinna hérna, það sýn-
ir sig á því að fjölda margir menn
hér eru komnir á þriðja tuginn
með starfsaldur og einn er kom-
inn á fimmta tuginn. Þó nokkrir
hafa unnið hér nánast frá því að
þeir byrjuðu að vinna, þannig að
það híýtur að vera eitthvað sem
heldur í menn. Mér finnst vinnu-
tíminn hérna góður og þegar
maður er búinri að læra er visst
öryggi við að vera í þessu, ekki
svo auðvelt að hlaupa í eitthvað
annað sem er kannski ekki eins
öruggt."
- Er gaman að búa til ost?
„Maður fær hálfgerða leið á
þessu svona tíma og tíma, það
hlýtur að gerast í öllum störfum.
Þetta er dálítið krefjandi og mað-
ur er nánast með lifandi vöru,
hún þarf sinn tíma til að þroskast
og ekki er vitað um niðurstöðuna
af framleiðslunni í dag fyrr en
eftir þrjá mánuði. Það er erfitt
eftir á að leiðrétta mistökin svo
maður verður að reyna að vanda
sig í upphafi, en í þessu, eins og
öðru, má alltaf búast við ein-
hverjum áföllum. Númer eitt, tvö
uaiiigciimi.
Hermann Jóhannsson.
og þrjú er að hafa góðan mann-
skap með sér við ostageröina."
- Þú hefur gert osta sem þið
hafið fengið viðurkenningar
fyrir.
„Samlagið hefur fengið viður-
kenningar, ég er vel upp alinn í
þessu þannig, að mestum hluta til
hef ég unnið við ost og er búinn
að vinna við þetta í 12-13 ár
núna. Það er alltaf gaman að ná
árangri og í flestum tilfellum
kemur hann manni jafnvel tölu-
vert á óvart. Mér finnst við í
þessu samlagi ekki vera alveg
samkeppnisfærir við stærstu
búin, við höfum hreinlega ekki
það góðan tækjabúnað. Ef við
náum uppundir það sem þeir á
Sauðarkróki og Akureyri ná þá er
maður ánægður. í ostadæmingu
ræður líka heppni að töluverðum
hluta. Þú veist að þú átt góða lög-
un og 100 ostar eru eftir af henni
en þú mátt bara pikka út einn og
hann fer í dæmingu. Fyrirfram
veist þú ekkert um hvernig þessi
einstaki eini er, hann getur alltaf
verið með einhverjum smágöll-
um þó að hinir séu góðir.“
- Hver er þinn uppáhaldsost-
ur?
„Goudaosturinn 26% er sá ost-
ur sem mest snýst í kringum
hérna og það er sá ostur sem ég
borða mest af.“
Mjólkursamlagið.
MJÓLKURSAMLAG
Hlífar Karlsson með vinkonu sinni Jónu Kristínu Gunnarsdóttur.
Sigurjón Benediktsson, Hlífar Karlsson og Kristbjörn Árnason.
- Hefurðu áhuga á einhverj-
um nýjungum?
„Já, maður hefur alltaf áhuga á
nýjungum en spurningin er hvað
hægt er að gera því flestar
nýjungar krefjast töluvert mikilla
fjárfestinga. Við erum ekki nema
um 240 þúsund og okkur vantar
eina milljón munna í viðbót til að
borða afurðirnar svo hægt sé með
góðri samvisku að fara út í fjár-
festingar á tækjum og tólum til að
byrja á einhverju alveg nýju og
verulega spennandi.“ IM
árum í Bandaríkjunum, þar feng-
um við 97,6 stig af 100 möguleg-
um, það fengu Sauðkrækingar
líka og Mjólkursamlagið á Sel-
fossi fékk 98 stig fyrir smurost.“
- Hvaða ostur finnst þér best-
ur af þeim sem þið framleiðið?
„Við framleiðum náttúrlega
ekkert nema góðan ost. Þó er
einn ostur sem við framleiðum
sem mér finnst fólk ekki gera sér
grein fyrir hvað er góð vara en
það er tilsitterosturinn. Mér
finnst hann mjög vanmetinn í
ostaflóru íslendinga. Eins er það
með mysuostinn því það er sér-
staklega hollur ostur.“
- Var ekki erfitt að taka við
þessari stöðu eftir Harald sem í
augum margra var nokkurs konar
faðir fyrirtækisins?
„Jú, hann var að mörgu leyti
ákaflega sérstæður maður og setti
mjög persónulegan svip á fyrir-
tækið sem hann var búinn að
byggja upp frá grunni og hann
gerði hér ómetanlega hluti. Þar
fyrir utan var hann einstaklega
skemmtilegur maður og öllum
ógleymanlegur sem honum
kynntust.“
- Hvernig gengur rekstur sam-
lagsins í dag?
„Hann hefur gengið mjög vel
Hlífar Karlsson samlagsstjóri:
Hlifar Karlsson sanilagsstjóri.
þessi tvö ár. Framtíðin er alltaf
óviss en maður vonar hið besta
og reynir að gera sitt besta. Að
undanförnu höfum við verið að
Ijúka við uppbyggingu, hér vant-
aði hús fyrir mjólkurmóttöku,
kyndistöð var inni í miðju húsi og
var alltaf á undanþágu. Bæði frá
heilbrigðis- og öryggissjónarmiði
mátti hún ekki vera staðsett
þarna og nú erum við búnir að
byggja mjólkurmóttöku og
kyndistöð. Ég sé ekki að við
komum til með að byggja meira í
náinni framtíð, mjólkurmagn er
frekar á niðurleið heldur en hitt
Hlífar Karlsson og Sigtryggur Árnason Litlu-Reykjum.
,,Að halda sér afltaf
í takt við tímann“
Jóhannes Guðmundsson á fullu spani.
Við vélina sem pakkar súrmjólkinni.
Þorkell Bjömsson
mjólkurfræðingur:
„Súrmjólk besta maga-
meðal sem til er“
„Ég byrjaði að vinna hérna í
tilefni af frostavetrinum mikla
1968, en sem stráklingur vann
ég hér á sumrin, það var 1964-
5,“ sagði Þorkell Björnsson
mjólkurfæðingur. Hann fór á
samning hjá samlaginu en lauk
síðan námi í Danmörku.
- Er gaman að vinna við
mjólk?
„Aðvitað er það gaman, þetta
er lifandi efni og það skiptir máli
hvernig það er meðhöndlað. í
gamla daga voru menn með
mjólk í hinum og þessum ílátum
og skildu ekkert í því að hún var
ekki góð, þá voru þeir ekkert að
pæla neitt sérstaklega í hreinlæt-
inu. Auðvitað er það fyrst og
fremst hreinlætið sem skiptir
máli, það sést á þeirri vöru sem
við erum að framleiða í dag,
þetta er allt önnur vara en sú sem
við vorum að framleiða fyrir 15-
20 árum.“
Þorkell Björnsson mjólkurfræð-
ingur.
- Hvað finnst þér mest gaman
að vinna við?
„Það er gaman að vinna við
framleiðslu sem líkar vel. Eins og
hina heimsfrægu Húsavíkurjóg-
úrt, það er gaman að framleiða
þannig vöru sem fólk vill borða.“
- Er þetta góður vinnustaður?
„Þegar menn eru búnir að vera
hér eins lengi og ég þá stafar það
annað hvort af því að vinnustað-
urinn er góður eða maður er svo
djöfull latur að maður nennir
ekki öðru en að vera á þeim stað
sem maður er búinn að koma sér
fyrir á. Það er nú sennilega rétt
að segja að staðurinn sé
skemmtilegur, menn sem eru
orðnir eins og mublur hér inni
hljóta að vera hér vegna þess að
þeir fá einhverja útrás fyrir sínar
félagslegu þarfir á staðnum.
Auðvitað er stórhættulegt að
vinna svona lengi á sama stað og
það ætti enginn að gera en þetta
er nú einu sinni svona.“
- Drekkurðu mikla mjólk?
„Ég drekk ekki mjög mikla
mjólk en ét heil kynstur af súrum
mjólkurvörum. Það er hlutur
sem ég held að menn ættu að gefa
miklu meiri gaum, þessar súru
mjólkurvörur eru svo heilnæmar,
það er svo auðvelt fyrir melting-
arvegi líkamans að taka upp vöru
þegar fitan og próteinið er búið
að breytast eins og það gerir við
sýringuna. Þetta róar magann
mjög mikið og þeir sem þola að
drekka súra mjólk ættu að
gera það því hún er besta maga-
meðal sem til er í heiminum. Mér
verður aldrei misdægurt, einfald-
lega vegna þess að ég borða
svona mikið af súrum vörum.
Eitt árið tók ég mér frí hérna og
vann við annað, þá drakk ég lítið
af jógúrt og súrmjólk og það var
ekkert líkt hvað mér leið miklu
verr.“ IM
Sjá næstu síðu