Dagur - 10.12.1987, Blaðsíða 1

Dagur - 10.12.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur Akureyri, fimmtudagur 10. desember 1987 236. tölublað Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Heilsugæslustöðin á Húsavík: „Vona að niður- staðan verði jákvæð“ - segir Guðmundur Bjarnason ráðherra „Ég á von á því að niðurstaða fjárveitinganefndar í þessu máli verði jákvæð. Það er þó óvíst hve miklu fé verður veitt til byggingar heilsugæslustöðv- arinnar, en það verður þó hægt að hrinda verkinu af stað,“ sagði Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamála- ráðherra í sambandi við fram- kvæmdir við Heilsugæslustöð- ina á Húsavík. Guðmundur sagði að þetta mál væri ekki nýtt og bréf starfs- manna sjúkrahússins á Húsavík, sem birtist í Degi sl. þriðjudag, Gaffalbitamálið: Fyrirtæki stofnað á næstu dögum - „Gróf móðgun“, segja 3 bæjarfulitrúar um bréf 15 atvinnurekenda hefði í sjálfu sér ekki breytt miklu í þessu sambandi. Miklar framkvæmdir hefðu staðið yfir í heilsugæslumálum landshlutans og benti ráðherra á heilsugæslu- stöðvarnar á Þórshöfn, í Ólafs- firði og á Dalvík. Það væri fullur hugur hjá þingmönnum Norður- lands eystra að sjá til þess að Heilsugæslustöðin á Húsavík væri næst á dagskránni. „Ég vil þó benda á að þetta verkefni hefur fengið fjármagn sem nægt hefur til þess að byggja spennistöð og bílskúr. Þær bygg- ingar voru forsenda þess að hægt væri að halda áfram framkvæmd- um,“ sagði Guðmundur Bjarna- son ráðherra að lokum. Dagur hafði samband við Árna Gunnarsson þingmann og spurði hann út í þetta mál. Hann sagði að þingmenn kjördæmisins hefðu komið saman í fyrradag og þá hefði bréfið frá starfsmönnunum verið eitt af þeim málum sem rætt var. Ekki vildi Árni tjá sig mikið um málið og sagði að málið væri á viðkvæmu stigi hjá fjárveitinga- nefnd. Fullur hugur væri þó hjá þingmönnum að veita þessu máli brautargengi. AP Jólatörn póstmanna er nú að fara í hönd. A myndinni er Arnhildur Arna- dóttir starfsmaður Póststofunnar á Akureyri að lesa í sundur bréf úr fyrsta skammtinum. Mynd: tlv Utgeröarfélag Akureyringa hf.: Verður keyptur ísfisk- togari eða fiystitogari? - áhugi á smíðinni kannaður hjá „gömlum kunningjum“ frá 1983 og fleimm Bæjarráð Siglufjarðar og niðursuðufyrirtæki K. Jóns- sonar á Akureyri hafa gert með sér drög að stofnsamningi fyrirtækis um rekstur gaffal- bitaverksmiðju á Siglufirði. K. Jónsson mun, ef af verður, eiga a.m.k. 51% í hinu nýja fyrirtæki en ætlunin er síðan að einstaklingar og fyrirtæki á Siglufírði kaupi minnihlutann. Atvinnurekendur þar í bæ hafa þó aðrar hugmyndir. Bæjarstjórn mun fjalla um málið á fundi sínum í dag og að sögn Hafþórs Rósmundssonar bæjarfulltrúa og formanns atvinnumálanefndar, verður fyrirtækið stofnað fyrir eða um helgina. Þar næst verður sótt um aðild að Sölustofnun lagmetis og reynt að ná samkomulagi við Fiskimjölsverksmiðju Horna- fjarðar um að hið nýja fyrirtæki gangi inn í gerðan samning um kaup á tækjum Sigló hf. fyrir 21 milljón. Skömmu fyrir fund bæjarráðs Siglufjarðar í gær barst bréf frá 15 atvinnurekendum á staðnum þar sent þeir skoruðu á bæjarráð að veita bæjarfulltrúunum Skarp- héðni Guðmundssyni, Hafþóri Rósmundssyni og Kristjáni Möller ábyrgð fyrir 10 milljón króna láni svo þeir gætu keypt tækin og rekið, og þannig staðið við fullyrðingar sínar um að slíkt væri vel hægt. Tveir fimmtán- menninganna eiga sæti í atvinnu- málanefnd. Á fundinum í gær létu þeir þre- menningar bóka að þeir álíti áskorunina „grófa móðgun við bæjarstjórn og atvinnumála- nefnd," enda séu atvinnumál á Siglufirði ekki til að hafa í flimt- ingum. ET Forráðamenn Útgerðarfélags Akureyringa huga nú að smíði nýs togara fyrir félagið. Til að kaupa nýtt skip þarf að úrelda togarann sem fyrirtækið keypti fyrir skömmu og heitir nú Sól- bakur. Til þess var hann líka keyptur. Jón B. Hafsteinsson skipa- verkfræðingur vinnur að athugun þessara mála fyrir ÚA. Haft hef- ur verið samband við þær skipa- smíðastöðvar sem gerðu tilboð í smíði togara fyrir ÚA árið 1983 og nokkrar til viðbótar. Þá bárust yfir 20 tilboð cn vegna nýrra reglna sem þá gengu í gildi um endurnýjun fiskiskipa varð ekkert af smíðinni. Fyrirtækin sern um ræðir eru í Þýskalandi, Dait- mörku, Noregi, Póllandi, Hol- landi, Spáni, Englandi og á íslandi. Spurt er um áhuga stöðv- anna á verkefninu með þeim skil- málum að Sólbakur sé tekinn upp í kaupverðið. Næsta skref er gerð útboðsgagna og síðan útboð. Samkvæmt reglum unt endur- nýjun skipa má margfeldi lengdar, breiddar og dýptar hins nýja skips vera 33% hærra en sama margfeldi hjá því skipi sem úrelt er í staðinn. Ekkert liefur enn verið ákveðið um stærð hins nýja skips í rúmlestum talið en hún ræðst af hlutföllunum milli áðurnefndra stærða. Að sögn Jóns ræðst ákvöröun unt þetta m.a. af því hvort úm verður að ræða ísfisktogara eða frysti- togara. Hugntyndir eru komnar upp um skip sem yrði 58 metrar á lengd, 13 á breidd og um 5,2 metrar á dýpt. Skip af þeirri stærð má ætla að sé einhvers staöar á bilinu 5-800 lcstir, allt eltir því hvaða mælingakúnstir eru viðhafðar. Sólbakur er skrao- ur 743 lestir. Jón sagðist ekkert geta um það sagt hvort skipið yrði srníðað heima eða erlendis, það færi m.a. eftir þeim tímamörkum sem sett yrðu í útboði. ET Fiskmarkaður Norðurlands hf.: Hagnaður af rekstri í fyrsta skipti Eftir rólega byrjun virðist sem starfsemi Fiskmarkaðar Norðurlands sé nú loksins að glæðast. í síðustu viku voru í fyrsta skipti haldin uppboð alla daga vikunnar og það sem meira er, þá stóð reksturinn í fyrsta skipti undir sér. Heildar- rekstrarkostnaður fyrirtækis- ins frá upphafí er nú orðinn um 4 milljónir að meðtöldum stofnkostnaði en tekjur á tíma- bilinu eru um 250 þúsund krónur. Llpphaflegt hlutafé fyrirtækisins var 2,8 milljónir en fyrirhuguð er hlutafjár- aukning og aukin umsvif í starfsemi. Nýiega var rúmlega 20 aðilum boðið að gerast hluthafar í fyrir- tækinu auk þess sem helstu hlut- höfum var boðið að auka hlut siun. í upphafi var gert ráð fyrir því að til að tryggja reksturinn fyrsta árið þyrfti hlutafé að vera um 5 milljónir. „Viö höfum ekki orðið áhyggjur af peningamálun- um enda ekki ástæða til," sagði Sigurður P. Sigmundsson fram- kvæindastjóri FNOR. Auk þess sem nauðsynlegt er að afla markaðinum rekstrarfjár meðan hann er að komast af stað sagði Sigurður að markmiðið með aukningu hlutafjár væri aö styrkja og efla starfsemina til dæmis með fjölgun útstöðva og aukinni upplýsingaöflun. Þá er nú mjög fariö að ræða þann möguleika að markaðurinn hefji starfsemi á nýjum sviðum, til dæmis í útflutningi. Hugmynd- in er að um verði að ræða útflutn- ing á afurðum frystiskipa, skreið, fiskimjöli og fleiru. Til þessa hef- ur öll útflutningsstarfsemi farið frani í gegnum Reykjavík og þykir mörgum mál að linni. „Bæjarstjóri er þessu mjög fylgj- andi og við höfum hug á að láta af þessu verða mjög fljótlega," sagði Sigurður. ET

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.