Dagur - 10.12.1987, Blaðsíða 2

Dagur - 10.12.1987, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 10. desember 1987 Farsóttir. Hlaupabóla sting- ur sér niður Samkvæmt farsóttaskýrslu frá Heilsugæslustöðinni á Akur- eyri, hefur nú orðið vart við að hlaupahóla hafi stungið sér niður nokkuð víða. AIls eru 40 tilfelli skráð í nóvember en voru aðeins 7 í október. Samkvæmt handbók um skyndihjálp er tíminn frá því að barn smitast af hlaupabólu, þar til einkenni koma í ljós u.þ.b. 3 vikur og eru byrjunareinkenni vanlíðan, höfuðverkur og lágur hiti. Síðan koma útbrot sem flest- ir kannast við með tilheyrandi kláða. Barnið smitár þar til síð- asta hrúður fellur af en meðferð sjúkdómsins er, rúmlega þar til það hefur verið hitalaust einn dag. I október varð nokkuð áber- andi aukning tilfella með kvef og hálsbólgu. Með streptókokka- hálsbólgu eru skráð 24 tilfelli, 10 með lungnabólgu, 81 með niður- gang, 15 með kláðamaur, 4 lúsa- tilfelli eru skráð, 1 með rauða hunda og 1 þvagrásarbólgu. Upplýsingum þessum ber að taka með þeim fyrir vara, að það er matsatriði einstakra lækna hvenær og hvort eigi að skrá ýms- ar vægari sýkingar. VG Mikið úrval verkfæra er í nýju deildinni. Dalvík: Ný byggingavörudeild UKE Skömmu fyrir síðustu mánaða- mót var opnuð ný deild í útibúi Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík. I þessa deild var flutt öll starfsemi byggingavöru- deildar svo og rafmagnsvörur og búsáhöld sem áður voru í Svarfdælabúð. Með þessari nýju deild er verslunarhúsnæð- ið f husi kaúþfélagsins á Dalvík orðið um 1400 fermetrar að gólfdeti á einni hæð. Rögnvaldur Skíði Friðbjörns- son, útibússtjóri á Dalvík sagði að í nýju byggingavörudeildinni hafi verið bætt við nokkrum vöruflokkum t.d. hljómtækjum, sjónvörpum og vinnufatnaði. Ymis heimilistæki eru seld í versluninni svo sem eldavélar, kæliskápar o.fl. Þá er einnig seld- ur sportfatnaður og ýmis viðlegu- útbúnaður í nýju deildinni. Árið 1983 var byrjað á bygg- ingu Svarfdælabúðar og var hún opnuð í mars 1985. Þá fluttust vefnaðarvö.rudeild og matvöru- deild í nýja húsnæöið og hafist var síðan handa í sumar við að innrétta fyrra pláss þessara deilda og hefur nú býgingavörudeildin verið flutt í það sem fyrr segir. Við þetta stækkar húsnæði bygg- ingavörudeildar um meira en helming. JÓH Húsavík: Ný bæjarmála- samþykkt Ný bæjarmálasamþykkt fyrir Húsavíkurkaupstað tekur gildi um áramótin. Félagsmálaráðu- neytið á eftir að staðfesta sam- þykktina sem var endanlega afgreidd á síðasta fundi Bæjar- stjórnar Húsavíkur. Miklar breytingar voru gerðar á bæjarmálasamþykktinni í sambandi við ný sveitarstjórnar- lög. Samkvæmt nýju samþykkt- inni skulu bæjarráðsfundir vera haldnir á fimmtudögum en bæjarstjörnarfundir á þriðjudög- um. Að undanförnu hafa bæjar- stjórnarfundir verið haldnir á fimmtudögum kí. 16. Rætt hefur verið um að halda bæjarstjórnar- fundina á þriðjudagskvöldum til að auðvelda fólki að fylgjast með því sem þar fer fram. IM Bárðardalur: Unnið að fjölbreytt- ara atirinnulífi Munir eftir Geir G. Þormar Húsavík: Innheimta gengur verr en í fyrra Innheimta útsvara og aðstöðu- gjalda hjá Húsavíkurkaupstað gengur heldur verr en á undan- förnum árum. í fyrra var búið að greiða 73,65% gjaldanna 30. nóvember, en á sama tíma í ár var búið að greiða 71,15%. „Þetta er mjög bagalegt, bæði fyrir greiðslustöðu bæjarsjóðs og ekkert síður fyrir þá sem skulda gjöldin sín,“ sagði Bjarni Þór Einarsson í samtali við Dag. „Um áramótin kemur staðgreiðslu-! kerfi skatta til framkvæmda, þá verður innheimt af mönnum strax við fyrstu útborgun. Það er enginn skattlaus janúar framund- an eins og var eftir gamla kerf- inu.“ IM Næsta vor er áformað að halda sýningu á gripum og munum sem Geir G. Þormar, mynd- skurðarmeistari, smíðaði og skreytti á sínum tíma. Sýningin verður haldin á Akureyri og leitar ÚUa Árdal, dóttir Geirs, eftir upplýsingum um muni eft- ir föður sinn í eigu einstaklinga og félaga. Geir G. Þormar var með afbrigðum listfengur og hug- myndaríkur myndskurðarmaður. Flesta muqjna smíðaöi hann og skar út á árunum 1930-1950, éh hlutirnir voru flestir seldir. Um er að ræða verðlaunagripi og verðlaunabikara til íþróttafélaga, skartgripaskrín, píska, blek- statív, pennastangir og ótal margt fleira. Efniviðurinn er oft- ast tré en einnig hvaltennur og hreindýrshorn. Geir G. Þormar var lengst af handavinnukennari við Gagn- fræðaskóla Akureyrar en hann kenndi einnig teikningu við Iðn- skólann á Akureyri. Hann lést árið 1952. Þeir, sem eiga eða hafa umráð yfir gripum á væntanlega sýn- ingu, eru beðnir að snúa sér til Úllu Árdal í síma 22600 (vinnu- sími) og 23472 (heima). EHB Jóhann Gauti Gestsson, eigandi verslunarinnar (í miðið) ásamt Garðari Skaptasyni og Kolbeini Einarssyni, sölu- mönnum hjá Málningarverksmiðju Slippfélagsins. ' Mynd: tlv Ný verslun með máhiingarvörur Síðastliöinn föstudag var opn- uð ný verslun á Akureyri. Köf- un sf. er verslun með málning- arvörur og ýmsar hreinlætis- og rekstrarvörur. Jóhann Gauti Gestsson er eigandi verslunar- innar ásamt Ægi Björnssyni, sem búsettur er í Svíþjóð. Að sögn Jóhanns Gauta er verslumn umboðsaðili fyrir Hempels málningarvörur frá Málningarverksmiðju Slipp- félagsins í Reykjavík. Um er að ræða málningu jafnt innanhúss- sem utanhússmálningu en einnig verður Köfun sf. með skipamáln- ingu frá Hempels. Verslunin verður einnig með olíuvörur og hreinsivörur frá Aciaco hf. í Reykjavík. Ymis sjófatnaður fæst líka í versluninni svo og björgunarfatnaður. Einnig sagðist Jóhann Gauti koma til með að verða með regn- og hlífð- arfatnað í versluninni þegar frá liði. Vörur verður bæði hægt að kaupa í smásölu og heildsölu. JÓH Rauðafelli Bárðardal, 7. desember. Árferði hefur verið hagstætt til búskapar allt frá því fé var sleppt á fjall vorið 1986. Sam- göngur voru mjög greiðar síð- astliðinn vetur, og hafa verið svo það sem af er þessum vetri. Atvinnulíf í Bárðardal hefur verið mjög einhæft. Fyrst og fremst hefur fólkið haft tekjur af kindum og kúm. Mikið hefur ver- ið rætt um að úr þessu þyrfti að bæta og ögn hefur verið gert til þess. Sumarhótel hefur verið rekið í Barnaskólanum á Stóruvöllum síðastliðin þrjú sumur, seinni tvö sumrin undir nafninu Hótel Kiðagil. Aðsóknin að hótelinu hefur farið vaxandi. Sveitarfélag- ið keypti búnaðinn fyrir hótelið en einstaklingar hafa séð um reksturinn gegn vægri leigu. Á síðastliðnum vetri gekk Bárðdælahreppur í Iðnþróunar- félag Þingeyinga, úr samstarfi þar kom hugmynd um steinflísagerð sem við ætlum að láta verða að veruleika. Fyrsta loðdýrahúsið var byggt í sveitinni í haust, er það á Stóru- völlum og á að rúma 300 minka- læður. í haust var byggður 3,5 km langur vegur milli Kálfborgarár og Arnarstaða, var það síðasti vegar- kaflinn í Bárðardal sem var í raun útvíkkaðar götur eftir hesta og annan búsmala. Barnaskólinn í Bárðardal varð 25 ára á þessu hausti. Þann 1. desember var afmælisins minnst á samkomu sem haldin var í skólanum, m. a. var sögusýning á samkomunni þar sem börnin sýndu kennsluhætti, allt aftur til farkennslu. í sumar var malbikað 2000 fm svæði við skólann, bílastæði, leikvöllur og stígar umhverfis húsið. Var þessi framkvæmd verulegt átak fyrir sveitarfélagið. EG/IM Friðar- dagar Dagana 10.-13. desember gengst 4. bekkur Félagsvísinda- deildar MA fyrir dagskrá og sýningu undir nafninu FRIÐUR. Dagskráin verður flutt í Möðruvallakjallara fimmtu- dagskvöldið 10. desember kl. 20.30. Þar verða flutt ljóð, sög- ur og ávörp. Á veggjum verður margvíslegt lesefni unnið af nemendum og Samtökum eðlis- fræðinga gegn kjarnorkuvá. Þar verður margt sem kemur á óvart. Dagskráin er öllum opin. Um helgina verður líka hægt að skoða sýninguna í Möðru- vallakjallara frá föstudegi til sunnudags, kl. 14-18.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.