Dagur - 10.12.1987, Page 5

Dagur - 10.12.1987, Page 5
10. desember 1987 - DAGUR - 5 Iðnrekstur: Nýjar reglur í gildi um áramót - er varða öryggisbúnað véla og varnir gegn ioftmengun við málmsuðu Frá Kjörbúðum KEA Xil jólanna! Niöursodnir ávextir: Ananassneiðar, ananasbitar, ananasmauk. Mjög gott verð. Aprikósur Yi dós kr. 93,90 Aprikósur Yi dós kr. 68,40 Blandaðir ávextir Yi dós kr. 86,00 Blandaðir ávextir Yi dós kr. 57,00 Ferskjur Yi dós Ferskjur Yi dós Perur Yi dós Perur Yi dós Jarðarber Yi dós kr. 72,00 kr. 40,50 kr. 77,70 kr. 49,25 kr. 96,00 Kynnið ykkur verðið sem er það hagstæðasta í bænum o?.sv Vélsleðasýning Vélsleðamarkaður n.k. laugardag og sunnudag frá kl. 13-18 í sal Bflasalans við Hvannavelli. Félagsmálaráðherra hefur undirritað og birt í „Stjórnar- tíðindum“ tvenns konar reglur sem varða iðnrekstur. Þær eru samdar á vegum stjórnar Vinnueftirlits ríkisins með heimild í „Lögum um aðbúnaö,, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum“. Reglurnar ganga í gildi um áramót. Reglur og leiðbeiningar um öryggisbúnað véla Alvarleg vinnuslys tengjast oftast vélanotkun. Markmiðið með setningu reglna um öryggisbúnað véla er að draga úr slíkum slysum og bæta vinnuskilyrði og öryggi þeirra sem starfa við vélar. Reglurnar taka til fjölmargra vinnustaða og varða marga aðila: Innflytjendur véla, stjórnendur fyrirtækja, verkstjóra og verka- fólk - og þær auðvelda eftirlits- mönnum Vinnueftirlitsins starf sitt. Ýmsar sérreglur um vélar og vélbúnað eru nú í gildi, s.s. um lyftur, frystikerfi, vatnshitunar- kerfi, naglabyssur og heftibyssur, en það er fyrst nú sem almennar öryggisreglur um vélar ganga í gildi. Sjálfar reglurnar eru fremur ágripskenndar en myndskýringar og leiðbeiningar, sem fylgja, skýra nánar hvað átt er við og auðvelda þeim sem eiga að fara eftir reglunum að ganga rétt frá því sem fjallað er um. Reglurnar skiptast í átta kafla. Kaflinn um gerð véla er efnis- mestur. Þar er m.a. fjallað um öryggisráðstafanir, stjórnbúnað, sjálfvirkar vélar, mæla- og við- vörunarbúnað, neyðarstöðvun, hemlabúnað, rafbúnað og loft- og vökvaþrýstibúnað. Sérstakur kafli fjallar um staðsetningu, uppsetningu og viðhald véla. I hinum nýju reglum er nánari útfærsla á lagaákvæðum um skyldur innflytjenda og framleið- enda véla, m.a. um merkingar og leiðbeiningar á íslensku. Þar eru og ákvæði um að framleiðendur og seljendur véla geta beðið Vinnueftirlit ríkisins um umsögn um vélar enda þótt þær séu ekki viðurkenningarskyldar. Enn- fremur eru stofnuninni ætlað að meta vélar og notkun þeirra frá öryggissjónarmiði og gera kröfur til seljenda og notenda í samræmi við niðurstöðurnar. Reglur um varnir gegn loftmengun við málmsuðu Markmiðið með setningu þessara reglna er að koma í veg fyrir heilsutjón þeirra sem vinna við málmsuðu. Mengun frá suðureyk getur verið varasöm. í sumum til- vikum er hún talin geta valdið krabbameini þegar tímar líða, s.s. mengun sem fylgir suðu í ryð- frítt stál. Meginefnið í „Reglum um varnir gegn loftmengun við málmsuðu“ er um öryggisráðstaf- anir við suðuvinnu, merkingu á rafsuðuvír, loftræstingu og loft- ræstibúnað. í reglunum er fjallað um þrenns konar skyldu: - Skyldu atvinnurekenda til að koma upp fullnægjandi loft- ræstingu þar sem meginreglan er sú að fjarlægja mengað loft áður en það nær vitum starfs- manna. Ennfremur er atvinnu- rekanda gert skylt að láta gera mengunarmælingar í andrúms- lofti suðumanna. - Skyldu innflytjenda til að merkja rafsuðuvír samkvæmt flokkun og skilgreiningu sem sett er fram í reglunum. • - Skyldu starfsmanna til að fara eftir leiðbeiningum um rétta notkun á tilheyrandi suðubún- aði og nota nauðsynlegan öryggisbúnað, þ.ám. öndunar- rímur. umræddum reglum er ákvæði um að með hverju loftræstikerfi skuli fylgja verklýsing á íslensku um notkun, eftirlit og viðhald. Sérprentun á málmsuðureglun- um og reglum og leiðbeiningum um öryggisbúnað véla má fá með því að snúa sér til Vinnueftirlits ríkisins. Stofnunin hvetur þá aðila, sem þessar nýju reglur varða, til að kynna sér þær sem best. . og síðan nokkrir dropar af sósulit frá Flóru EFNAGERÐIN dfypfo V SÍMI96-21400 AKUREYRI J Sjáið allar 1988 árgerðirnar frá Skii-Doo, Polaris, Yamaha og Artic Cat. ★ ★ ★★ Komið og ræðið við umboðsmenn og sölumenn - fáið verð og bæklinga. Landssamband ísl. vélsleðamanna Úrval af notuðum sleðum og hjólum til sýnis og sölu. ★ ★ ★★ Komið með gamla sleðann á markaðinn strax á föstudag og reynið að skipta á nýrri! Sölumenn Höldurs aðstoða. Aftanísleðar, vélsleðakerrur, kuldafatnaður, kuldaskór, hjálmar og allskonar aukabúnaður til sýnis og sölu. ★ ★ ★★ Bílsímar, lórantæki, varahlutir og olíur. Barnaútigallar stærðir 60-80 Verö kr. 1242.- Barnaútigallar stærðir 80-100 Verð kr. 1422.' Barnaútigallasett stærðir 90-110 Verð kr. 1885.' 10% jólaafsláttur Eyfjörð Hjalteyraigötu 4 • sími 22275 vtsa

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.