Dagur - 10.12.1987, Side 20
Æ Jólatré og
greinar
Sala í Göngugötu kl. 13-18, í Kjarnaskógi kl. 9-18.
Opið á sunnudögum frá kl. 13-18 í Kjarna.
Styrkið
skógræktarstarfíð.
Skógræktarfélag
Eyfírðinga.
Ný slökkvistöð
á Akureyri:
Líklega á
fjárlögum
næsta árs
„Bygging nýrrar slökkvistöðv-
ar er orðið mjög aðkallandi
verkefni og ég geri ráð fyrir því
að sett verði fjármagn í þetta á
næsta ári og byggingunni jafn-
vel lokið á næstu tveimur
árum,“ sagði Sigurður Jóhann-
esson bæjarfulltrúi í samtali
við Dag.
Ljóst er að tillögum stjórn-
skipulagsnefndar bæjarins, sem
Sigurður á sæti í, verður ekki
hrint í framkvæmd án þess að
slökkvistöðin víki úr núverandi
húsnæði sínu á neðstu hæð húss-
ins við Geislagötu. „Þó svo að
auðvitað eigi ekki að blanda sam-
an þessum tveimur verkefnum,
að byggja upp stjórnkerfi og að
skaffa því húsnæði, þá er ljóst að
þessar breytingar ganga ekki
saman nema slökkvistöðin verði
flutt," sagði Sigurður. Hann
sagði að þessi mál hefðu talsvert
verið rædd í nefndinni en ekki
formlega í bæjarráði eða bæjar-
stjórn. í nefnd þessari sitja fjórir
bæjarráðsmenn.
En hvar á hin nýja slökkvistöð
að vera? Fyrir liggur samþykkt
síðustu bæjarstjórnar um að
stefna skuli að byggingu hennar
við Dalsbraut, en svo á fyrirhug-
aður vegur vestur úr Glerárgötu
og upp með Glerá, að heita. Gróf
kostnaðaráætlun sem á sínum
tíma var gerð fyrir slökkvistöð á
þessum stað hljóðar upp á 40-45
milljónir.
Fleiri hugmyndir hafa komið
fram síðan, um staðsetningu
slökkvistöðvar og þá helst sú
hugmynd Sigfúsar Jónssonar
bæjarstjóra að byggja sameigin-
lega slökkvistöð fyrir Akureyrar-
bæ og flugvöllinn. Úr þeirri hug-
mynd eða öðrum hefur þó ekkert
verið unnið og meðan svo er
stendur samþykkt fyrrverandi
bæjarstjórnar óhögguð. ET
Sauðárkrókshöfn:
Innlegg í jólaskreytingakapphlaupid?
Mynd: TLV
Kannaður möguleiki
á dýpkun í krikanum
- Kominn vísir að Suðurgarði
í síðustu viku voru staddir á
Sauðárkróki menn frá Vita- og
hafnamálastofnun í þeim til-
gangi að kanna botnlög í krik-
anum innst í höfninni. Þessa
dagana er svo verið að keyra út
efni í Suðurgarð. Gerður verð-
ur 20-30 metra stubbur til að
hindra sandburð inn í höfnina
að sunnanverðu.
Botnlagskönnunin er gerð til
að komast að raun um hvort
dýpkun innst í krikanum, sem
komið hefur til tals, er fram-
kvæmanleg. Að sögn Harðar
Ingimarssonar formanns hafnar-
stjórnar bendir allt til að svo sé.
Að þarna sé móhella og grjót, en
ekki klöpp eins og margir hafi
álitið. Dýpkun á þessum stað
mun skapa viðlegurými fyrir eitt
skip í viðbót og aðstaða við að ísa
skipin gjörbreytast. En Fiskiðjan
hefur í huga kaup á nýjum og
betri vélum til ísframleiðslu og
Neytendafélag Akureyrar og nágrennis:
Gerir nýjan og betri samning
við verkalýðsfélögin
Nýlega var undirritaður nýr
samningur milli Neytendafélags
Akureyrar og nágrennis og
verkalýðsfélaga á svæðinu.
Samningur þessi er að því leyti
frábrugðinn fyrri samningum
að hann er ótímabundinn en
uppsegjanlegur með 6 mánaða
fyrirvara af hálfu beggja aðila.
Sigfríður Þorsteinsdóttir hjá
neytendafélaginu sagði í samtali
við Dag að í samningnum væri
ákvæði um að vcrkalýðsfélögin
borgi laun starfsmanns í hálfu
starfi auk helming húsaleigu.
Áður var styrkurinn föst upphæð
á ári sem vildi rýrna á verðbólgu-
tímum og samningurinn gilti eitt
ár í senn, „svo við eru öruggari
nú,“ sagði hún. Neytendafélagið
nýtur líka styrks frá Akureyrar-
bæ og er eina neytendafélagið á
landinu sem nýtur styrks sveitar-
félags.
Aðspurð sagði Sigfríður að
gríðarlega mikið bærist af
kvörtunum til félagsins. „Þarna
er aðallega um að ræða kvartanir
vegna fatnaðar, svo og vegna
samningsbrota. Skrifstofan okkar
er opin fjóra tíma á dag og einnig
er ákveðinn símatími. Á skrif-
stofunni liggja frammi neytenda-
blöð sem í eru m.a. úttektir á
hinum ýmsu vörum allt frá fjall-
gönguskóm upp í tölvur. Þangað
geta félagsmenn komið, litið í
blöðin og aflað sér hvers kyns
upplýsinga."
Félagsmenn í Neytendafélagi
Akureyrar og nágrennis eru nú
um 300 talsins en Sigríður hvatti
fólk til að gerast félagar því að-
eins þeir fá aðstoð félagsins í
kvörtunarmálum. VG
með viðlegurými innst í höfninni
er hægt um vik að dæla ísnum
beint um borð í skipin.
Að sögn Harðar kæmi þetta til
með að verða dýr framkvæmd.
Skipta þarf um stálþil sem sett
var á sínum tíma og er allt of
stutt. Er reiknað með að dýpkun
og nýtt stálþil á 38 lengdarmetr-
um muni kosta um 20 milljónir.
-þá
Stöð 2:
Ólæst útsend-
ing í kvöld
í tengslum viö jólatilboö
Stöðvar 2 og sem liður í kynn-
ingu Stöövarinnar munu
útsendingar verða ólæstar
fimmtudaginn 10. desember,
frá og með fréttaþættinum
19.19. Með ólæstri útsendingu
vill Stöð 2 gefa þeim sem ekki
eiga myndlykil kost á að kynna
sér dagskrána.
Á dagskrá verður 7. þáttur
grínmyndaflokksins Heilsubælið
í Gervahverfi, sjónvarpsmyndin
Hjákonan með Victoriu Principal
í aðalhlutverki, viðtalsþátturinn
Stjörnur í Hollywood og myndin
Eldur í æðum (Burning Bed) sem
byggð er á sannri sögu konu sem
þola mátti ofbeldi af eiginmanni
sínum og greip til örþrifaráða.
Virkilega mögnuð mynd. Með
aðalhlutverk fara Farah Fawcett
og Paul LeMat. Samnefnd bók
hefur komið út í íslenskri þýð-
ingu.
Hliðstæð kynning verður
endurtekin þann 17. desember,
útsendingar verða ólæstar.
Nánari upplýsingar um dag-
skrána verða í dagblöðum,
útvarpi og einnig má finna þær í
Sjónvarpsvísi Stöðvar 2. SS
Áramótaflugeldarnir:
Tvö tonn fyrir
fjóra vélsleða?
í gær barst Hjálparsvcit skáta
á Akureyri sending sem með
réttu má kalla lífsviðurværi
sveitarinnar fyrir næsta ár. Hér
er auðvitað átt við púðrið sem
ætlunin er að selja bæjarbúum
fyrir áramótin þegar árið verð-
ur kvatt og nýju fagnað með
tilheyrandi húllumhæi og
sprengingum.
Alls er um að ræða um það bil
1,5 tonn af blysum, flugeldum,
sprengjum og öðru og er þetta
svipað magn og keypt hefur verið
undanfarin ár. Auk þess eiga
skátarnir 3-400 kíló á lager frá
síðasta ári þannig að ef salan
gengur vel þeyta Akureyringar
nálægt tveimur tonnum upp í loft
um áramótin.
„Við vonum að fólk eyði ekki
öllum peningunum í einhverja
vitleysu fyrir jólin og eigi eitt-
hvað eftir handa okkur,“ sagði
Gunnar Gíslason sveitarforingi í
samtali við Dag. Gunnarsagði að
ilugeldar hefðu lítið hækkað í
verði frá í fyrra, hækkunin yrði á
bilinu 12-15%. Um næstu áramót
má svo vænta lækkunar í fram-
haldi af hagstæðum viðskipta-
samböndum sem nýlega tókst að
afla.
Sala flugelda hefst á Akureyri
sunnudaginn 27. desember og
vonandi veröa bæjarbúar dugleg-
ir við kaupin. Flugeldasalan er
aðal tekjulind Hjálparsveitar
skáta og sagði Gunnar að mjög
brýnt væri að endurnýja vél-
sleðakost sveitarinnar. „Draum-
urinn er að við getum keypt fjóra
sleða,“ sagði Gunnar. ET
Ingimar Eydal, Örn Arnarson og Hrcinn Skagfjörð félagar í Hjálparsveit skáta á Akureyri glaðbeittir á svip með
kínverskt áramótapúður í fanginu. MY|ld; tlv