Dagur - 18.12.1987, Side 2
2 - DAGUR - 18. desember 1987
Uppsagnir hjá Iðnaðardeildinni:
Góður árangur af starfi
vinnumiðlunarinnar
„Um helmingur þeirra starfs-
manna sem sagt var upp er
búinn að fá aðra vinnu, en 35
starfsmenn eru ennþá á skrá
hjá okkur. Ég sé ekki fram á
annað en hægt verði að bjóða
öllu þessu fólki vinnu við ýmis
störf hérna eftir áramótin."
sagði Birgir Marinósson hjá
vinnumiðlun Alafoss og Sam-
bandsins.
Vinnumiðlunin var sett á lagg-
irnar til að leysa vanda þeirra
sem óhjákvæmilega hlutu að
missa störf sín við samruna Ála-
foss og ullariðnaðar Iðnaðar-
Sorpeyðing á Króknum:
Golfarar með
sviða í augum
og ógleöi
„Oft er slæm lykt og reykur,
sem berst frá sorpbrennslu-
svæðinu, á golfvelli félagsins.
Hefur það valdið mönnum
sviða í augum og ógleði. Er
þessi mengun sem stafar af því
að ríkjandi vindátt stendur af
haugunum og yfir golfvöllinn
með öllu óviðunandi.“
Svo segir í umsögn Golfklúbbs
Sauðárkróks uin starfsleyfi fyrir
Sauðárkróksbæ varðandi sorp-
brennslu í landi Skarðs þar sem
sorphaugar bæjarins hafa veriö
mörg undanfarin ár. Umsögn
golfklúbbsins er sú eina sem
Hollustuvernd ríkisins barst, en
skilafrestur var auglýstur til 20.
nóv. sl.
Vegna umsagnar golfklúbbsins
ítrekaði heilbrigðisnefnd Skaga-
fjarðar á fundi sínum nýlega fyrri
afstöðu sína, að sorpbrennsla í
þró á núverandi sorphaugasvæði
sé bráðabirgðalausn og haga beri
gildistíma starfsleyfis eftir því. t>á
benti fundurinn á að umræða og
áhugi sé nú í þjóðtelaginu um
nýtingu úrgangs. Því verði að
leggja aukna áherslu á samvinnu
þéttbýlisstaða í kjördæminu um
sorpeyðingu. Slík samvinna auki
möguleika og hagkvæmni við
flokkun og nýtingu sorps. -þá.
deildar SÍS á Akureyri. Með
sameiningunni var verið að forða
íslenskum ullariðnaði frá stór-
felldu tjóni með rekstrarhagræð-
ingu og tilfærslu starfa, en að
sögn forráðamanna fyrirtækj-
anna blasti ekkert við nema lok-
un ef til þessara aðgerða hefði
ekki verið gripið.
„Þeir sem misstu vinnuna geta
fengið ný störf við skinnaiðnað
eða þá hjá Álafossi hf. Við vitum
að vísu ekki hvort allir vilja þau
störf sem í boði eru en það er
hægt að bjóða öllum vinnu. Okk-
ur vantar t.d. fólk í saumaskap
hjá Álafossi en ekki myndrnema
tiltölulega lítill hópur fa'ra í hann.
Þá detta alltaf inn störf við og við
þegar menn hætta auk þeirra
starfa sem laus eru við skinnaiðn-
aðinn.
Ég er bjartsýnn á framtíðina
hvað varðar útvegun starfa fyrir
þetta fólk. Fundir hafa verið
haldnir reglulega þar sem farið er
yfir stöðu mála hverju sinni og
almennt eru menn rólegir yfir
þessu,“ sagði Birgir að lokum.
EHB
„Hvar skyldi hún vera á listanum þessi.'
Jólabækurnar:
Mynd: TLV
Halla Linker á toppinn
Gífurleg barátta er um efstu
sætin á bókalistanum okkar að
þessu sinni. Alistair MacLean
verður að víkja af toppnum en
Halla Linker er aðeins sjón-
armun á undan. Guðrún
Helgadóttir fylgir þeim fast á
eftir og Eðvarð Ingólfsson
hækkar sig frá því síðast. En
lítum þá á söluhæstu bækurnar
á Norðurlandi um þessar
mundir:
1. Halla Linker: Uppgjör
konu.
2. Alistair MacLean: Hel-
sprengjan.
3. Guðrún Helgadóttir: Sæng-
inni yfir minni.
4. Eðvarð Ingólfsson: Pottþétt-
ur vinur.
5. Hulda Á. Stefánsdóttir:
Húsfreyja í Húnaþingi.
6. Míkhail Gorbatsjov: Peres-
trojka.
7. Hrafnhildur Valgarðsdóttir:
Leðurjakkar og spariskór.
8. Atli Magnússon: Ásta grasa-
læknir.
9. Jóhannes Snorrason: Skrifað
í skýin.
10-12. Stefán Jónsson: Að
breyta fjalli.
10-12. Erlingur Davíðsson:
Aldnir hafa orðið.
10-12. Victoria Holt: Arfur for-
tíðar.
Þessi listi er byggður á upplýs-
ingum frá Bókabúð Jónasar,
Bókvali, Bókabúð Brynjars á
Sauðárkróki og Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar á Húsavík.
Yfirleitt eru þetta sömu bækurn-
Blönduós:
Kirkjan tilbúin að utan
Ný kirkja er risin á Blönduósi
og er um þessar mundir verið
að Ijúka frágangi utanhúss.
Kirkjan er svo til fullfrágengin
að utan og lóðaframkvæmdum
að mestu lokið. Byggingin
þykir hið veglegasta hús og
verður án efa til mikillar prýði.
Gamla kirkjan sem byggð var
fyrir tæpum 100 árum er að
sjálfsögðu fyrir löngu orðin
allt of lítil. Engar ákvarð-
anir hafa verið teknar í sam-
bandi við áframhaldandi
byggingarframkvæmdir. Við
tókum tali Torfa Jónsson
formann byggingarnefndar og
spurðum hann hvenær bygging
nýju kirkjunnar hefði hafist og
í leiöinni hver stefnan væri
með áframhaldið.
„Það var vorið 1982 að bygging
nýju kirkjunnar hófst og allar
götur síðan hefur verið haldið
áfram framkvæmdum eftir því
sem efni hafa leyft. Kirkjan var
steypt upp á síðastliðnu ári og er
i dag að mestu fullfrágengin
utan. Lóðin og þá líka kirkjuhóll-
inn eru svo til frágengin, það á
eftir að ganga frá bílastæðum og
Blönduóskirkja er nú að mestu leyti frágengin að utan.
taka lítillega til næst kirkjunni,“
sagði Torfi.
Aðspurður um það hvenær
menn gerðu sér vonir um að
kirkjan yrði tekin í notkun sagði
Torfi að það væri alveg óákveðið.
Haldið yrði áfram smíði kirkj-
unnar eftir því sem efni og
aðstæður leyfðu. Hingað til hefur
byggingarkostnaði svo til ein-
göngu verið mætt með innheimt-
um sóknargjöldum og frjálsum
framlögum velunnara kirkjunn-
ar. Ekki sagðist Torfi ýkja bjart-
sýnn með áframhaldið. sagði að
sér sýndist að þær föstu tekjur
sem kirkjum væru ætlaðar, sam-
kvæmt nýjum lögum um sóknar-
gjöld, gerðu varla meira en að
standa undir afborgunum af lán-
um sem tekin hefðu verið. Um
leið og Torfi vildi koma á fram-
færi þakklæti til hinna mörgu sem
hafa í verki sýnt velvilja sinn, þá
vildi hann vinsamlega minna fólk
á gíróseðlana sem sendir voru
út nýlega, en þeir eru óútfylltir
og fólki því í sjálfsvald sett hvort
það styður kirkjuna sína eða
ekki. pbv
ar sem eru söluhæstar í bókabúð-
unum en hvergi er þó sama bókin
efst á blaði. I Bókabúð Jónasar
er Halla Linker efst, Eðvarð Ing-
ólfsson í Bókvali, Alistair
MacLean er söluhæstur í Bóka-
búð Brynjars en Stefán Jónsson
er efstur í Bókaverslun Þórarins
Stefánssonar. SS
íbúar fjölbýlishúsa
á Sauöárkróki:
Óánægðir
með að þurfa
hver sinn
myndlykil
Stöð 2 sást í fyrsta skipti á
Sauðárkróki fimmtudags-
kvöldið í síöustu viku og sam-
kvæmt aðsókn að myndbanda-
leigum er svo að sjá að mcnn
hafi verið límdir við skjáinn
yfir dagskrá stöðvarinnar sem
var órugluð þetta kvöld. En
íbúar í fjölbýlishúsum í bænum
eru ekki ánægðir með að þurfa
hver sinn myndlykil og telja sig
margir hverjir ekki sitja við
sama borð og aðrir áskrifendur
Stöðvar 2.
Að sögn írisar Erlingsdóttur
hjá áskrifendadeild Stöðvar 2 var
það aðeins fyrstu starfsmánuði
stöðvarinnar sem íbúum í fjölbýl-
ishúsum var leyft að hafa sameig-
inlegan myndlykil og er nokkuð
síðan tekið var fyrir það. Var það
gert einkum vegna þess að fram-
leiðendur myndlyklanna töldu
þetta brot á samningum við sig.
Einnig sagði íris að nokkuð hefði
borið á óeiningu meðal íbúa í
fjölbýlishúsum um sameiginlega
myndlykilinn og nokkuð um að
þeir hafi keypt sér sjálfir lykla.
Bjarni Hafþór Helgason hjá
Sjónvarp Akureyri sagði að þeir
skoðuðu hvert einstakt tilvik
mjög gaumgæfilega og hefðu
ekki enn lokað fyrir að stigagang-
ar gætu haft sameiginlegan
myndlykil. Og nokkrir samningar
þar að lútandi hefðu verið gerðir.
En algjört skilyrði væri að mjög
góð samstaða væri innan hússins
um þessi mál. -þá
Skyndibitastaðir:
„Ekki á okkar línu“
- segir Friðjón Árnason hjá Svartfugli
Síðastliðið sumar, varð skyndi
leg uppsveifla á Akureyri þeg-
ar skyndibitastöðum fjöigaði
og eldri voru teknir og endur-
bættir. Samkeppnin harðnaði
og þeirri spurningu var velt
upp, hvort markaður væri fyrir
þennan fjölda staða. Það sem
einkennir flesta þessara staða,
er að þótt aðstaða sé innandyra
til að snæða máltíðirnar, nýta
sér það fáir því flestir kjósa að
snæða á lærum sér, undir stýri
bifreiða.
Einn af nýju stöðunum, sem
nú hefur hætt rekstri er Tikk Takk
við Skipagötu. Dagur hafði sam-
band við Friðjón Árnason, eig-
anda Svartfugls, og bað hann að
segja okkur ástæðuna fyrir lokun
staðarins.
„Við komumst að því, að staður
eins og Tikk Takk, er ekki á okk-
ar línu. Ég reikna með að við
höfum verið heldur bjartsýnir
þegar staðurinn var opnaður, en
þegar kom í ljós að hann gekk
ekki, viðurkenndum við þessi
markaðslegu mistök.
Tikk Takk gekk vel í sumar, en
3ja mánaða arðbær rekstur, stend-
ur ekki undir taprekstri hina 9 mán-
uðina. Hönnun staðarins virtist
ekki hafa fallið í geð hjá við-
skiptavinum okkar, því hún
reyndist heldur kuldaleg. Rétt
eftir að staðurinn opnaði, spruttu
upp bæði nýir og endurbættir
skyndibitastaðir, samkeppnin var
hörð og við urðum undir. Fjár-
magnið sem við lögðum í staðinn
í upphafi er nokkuð sem við sjá-
um ekki aftur."
Friðjón sagði að gert hafi verið
átak í fjármálum og rekstrarfyr-
irkomulagi og að um áramót yrði
Svartfugl gerður að hlutafélagi.
Svartfuglsmenn ætla að beina
kröftum sínum að rekstri Fiðlar-
ans, sem gengur mjög vel og hef-
ur frá upphafi gengið framar
vonum.
Þingsalur Svartfugls á fjórðu
hæð hefur sömuleiðis verið vel
nýttur og verður áfram til útleigu
til samkomu- og þinghalds hvers
konar. VG
Háskólinn á Akureyri:
Stofnfundur
stúdentafé
ags
Félag stúdenta viö Háskólann
á Akureyri var stofnaö í
íþróttahöllinni við Skólastíg
föstudaginn 11. desember. A
stofnfundinum voru samþykkt-
ar ályktanir þar sem m.a. er
skorað á Alþingi að hraða
afgreiðslu frumvarps um
Háskólann á Akureyri þannig
að skólastarf megi færast í eðli-
legt horf sem fyrst og framtíð
skólans verði tryggð.
„Jafnframt skorar fundurinn á
Alþingi, bæjaryfirvöld á Akur-
eyri og aðra hlutaðeigandi að sjá
svo til að skortur á leiguhúsnæði
verði ekki þröskuldur í vegi upp-
byggingar háskólastarfs á Akur-
eyri, t.d. með byggingu stúdenta-
garða við Háskólann á Akur-
eyri.“ SS