Dagur - 18.12.1987, Blaðsíða 24

Dagur - 18.12.1987, Blaðsíða 24
Akureyri, föstudagur 18. desember 1987 Tilboð Bautans í desember: í hádeginu: Innkaupadiskurinn: Kaldir kjöt- og fiskréttir ásamt súpu og salatbar kr. 450. í kaffinu: Búðarrápsdiskurinn: Snitta, kökusneið og kaffi kr. 180. ★ jólaglögg. Bæjarstjórn Sauðárkróks: Mælir gegn leyfisveit- ingum til farandsala Bæjarstjórn Sauðárkróks lýsir áhyggjum sínum vegna þeirrar þróunar sem virðist vera í verslunarrekstri í bænum, að verslun færist í auknum mæli úr bænum, til Reykjavíkur og ekki síður til farandsala er hér hafa stutta viðdvöl. í þessu sambandi beinir bæjar- stjórn því til bæjarfógeta að hann sýni mikla íhaldssemi í veitingu leyfa til slíkra sölumanna í bæn- um og raunar öllu héraðinu. Tel- ur bæjarstjórn að leita beri allra tiltækra ráða til eflingar verslun- arrekstri innan héraðs, m.a. með því að leggja há leyfisgjöld á þá aðila, sem óska slíkra skyndi- leyfa. -þá F Akureyri: Oæskilegir skúr- ar fjarlægðir Skúrar og gripahús innan bæjarmarka Akureyrar hafa löngum verið þyrnir í augum þeirra sem unna umhverfis- málum. Skúrum á Akureyri hefur fækkað mikið í áranna rás enda heyrir upprunalegt hlutverk þeirra í mörgum til- vikum sögunni til. Heilbrigðisfulltrúi, bygginga- fulltrúi og garðyrkjustjóri bæjar- ins hafa tekið saman lista yfir þá skúra sem æskilegt þykir að verði fjarlægðir á næsta ári. Þessi listi verður ekki birtur opinberlega því samningaviðræður standa í Fiskeldi Eyjafjaröar hf.: Hlutafjár- aukning fyrirhuguð Fyrirhuguð er hlutafjáraukn- ing hjá Fiskeldi Eyjafjarðar hf. Upphafleg heimiíd er fyrir 9 milíjón króna hlutafé og að sögn Inga Björnssonar fram- kvæmdastjóra er hlutafé nú nálægt þeirri upphæð. Reynt verður að auka hlutafé um 50% eða um að minnsta kosti 4 milljónir. Ingi sagði að ástæður þessarar aukningar væru einkum þrjár. Stofnkostnaður stöðvarinnar á Hjalteyri var meiri en upphaflega var gert ráð fyrir þar sem meira var vandað til alls búnaðar henn- ar en til stóð. í öðru lagi hafa ýmsar kostnaðarhækkanir orðið sem leitt hafa til dýrari rekstrar. Til þess að halda út eitt ár eins og áætlanir miðast við þarf aukið rekstrarfé. Þriðja ástæðan er sú að verk- efni þetta hefur ekki notið þeirr- ar opinberu fyrirgreiðslu sem vonast hafði verið eftir en búist var við að til að mynda Rann- sóknarráð ríkisins og sjávarút- vegsráðuneytið myndu leggja fram einhverja styrki. Atvinnumálanefnd Akureyrar hefur lagt til við bæjarstjórn að bærinn auki hlutafé sitt um allt að eina milljón en hverjar undirtekt- ir annarra hluthafa verða ræðst ekki fyrr en á hluthafafundi sem boðaður hefur verið af þessu tilefni 9. janúar. ET sumum tilvikum yfir við eigendur skúranna en í öðrum tilvikum eru þær ekki hafnar. Heilbrigðis- nefnd hefur lýst sig samþykka áætlun þessari og skorar á bæjar- stjórn að veita fé til þessa máls á næstu fjárhagsáætlun. Arni Steinar Jóhannsson, garðyrkjustjóri, sagði það ekkert nýtt að bæjaryfirvöld leituðust við að fjarlægja skúra og gripa- hús í bæjarlandinu. Það sem skipti máli nú væri að embætti heilbrigðisfulltrúa, byggingafull- trúa og garðyrkjustjóra hefðu ákveðið að samræma krafta sína í þessum efnum. Hvað sitt embætti varðaði væri um að ræða skúra sem væru á svonefndum grænum svæðum. „Það er alltaf verið að rífa skúra í bæjarlandinu af og til og við erum að samræma okkur innan kerfisins. Á aðalskipulagi er t.d. Glerársvæðið grænt svæði og á framkvæmdaáætlun. Hvað okkur varðar þá höfum við áhuga á að taka þar til hendinni," sagði Árni Steinar að lokum. EHB „Sérdu! Þarna býr jólasveinninn/' Mynd: TLV Mikil eftirspurn eftir raöhúsum á einni hæð: Staóreynd eða tilbún- ingur verktaka? - engar lausar lóðir fyrir slík hús á Akureyri Á Akureyri er nú komin upp sú staða að lóðir vantar fyrir ákveðnar húsgerðir. Áður hef- ur verið sagt frá því að í bæn- um eru engar lausar lóðir fyrir fjölbýlishús en sömu sögu er að segja um lóðir fyrir einnar hæðar raðhús. Trésmíðaverkstæði Sveins H. Jónssonar sótti til byggingar- Gámaþjónusta Norðurlands hf.: Leigir út mslagáma Nýtt fyrirtæki, Gámaþjónusta Norðurlands hf., hefur tekið til starfa á Akureyri. Fyrirtækið, sem er hið fyrsta á sínu sviði norðanlands, leigir út gáma sem ætlaðir eru undir sorp og annað rusl. Nú þegar hafa nokkur fyrirtæki á Akureyri notfært sér þjónustuna. Jörundur H. Þorgeirsson, aðal- eigandi og stjórnandi fyrirtækis- ins, sagði að sú þjónusta sem fyrirtækið býður upp á einfaldi og spari mjög sorplosunarmál þeirra fyrirtækja sem þurfa að losa sig reglulega við rusl, t.d. einu sinni í viku. í stað þess að safna ruslinu saman og flytja það á haugana væri mun hentugra að koma því fyrir í ruslagámum sem losaðir eru reglulega. Gámarnir eru danskir og mjög þægilegir í meðförum. Þeir eru líka skemmtilegir útlits og eru því ekki til óprýði. Frá sjónar- miði eldvarna er slíkur búnaður mikið öryggisatriði því oft er eld- hætta af lausu rusli á lóðum eða í húsakynnum fyrirtækja. ístess, Aðalgeir Finnsson og Jörundur Þorgeirsson og Stefán Jónsson, bifreiðarstjóri, glaðbeittir á svip við einn af gámunum en gámarnir eru fluttir á vörubíl til losunar. Eimskipafélag íslands eru dæmi um fyrirtæki sem hafa tekið ruslagáma á leigu. Akureyrarbæ voru boðnir nokkrir gámar og er það mál í athugun. Ef af leigu verður er hugmyndin að láta ruslagáma standa í hverfum bæjarins. Það myndi spara almenningi öskuhaugaferðir en samkv. bókun umhverfismála- nefndar frá 8. des. er mælt með því að slíkum gámum verði kom- ið fyrir. Þá yrðu öskuhaugarnir Iokaðir nema á ákveðnum tímum, en losun rusls um helgar skapar oft hættu á því að ruslið fjúki langar leiðir ef hvasst er í veðri. EHB nefndar úm lóðina Múlasíðu 30- 38 eða aðra lóð til byggingar á slíku húsi. Þessari lóð mun hafa verið úthlutað til annars verktaka og í bókun byggingarnefndar seg- ir að nefndin geti að svo stöddu ekki orðið við umsókninni þar sem engar lóðir séu á lausu til að byggja á einnar hæðar raðhús. Sveini er hins vegar gefinn kostur á lóðinni Múlasíðu 14-16-18, þar sem byggja skal hæð og ris. „Eftirspurnin hjá mér er aðal- lega eftir íbúðum á einni hæð og því hef ég lagt áherslu á að að fá lóðir fyrir slík hús. Það er auðvit- að eins slæmt og hægt er að hugsa sér þegar svona staða kemur upp. Mér hefur hins vegar skilist að hjá bænum séu ákveðnir aðilar sem standa gegn byggingu svona húsa og segi okkur bara vera vit- lausa að fara fram á þetta,“ sagði Sveinn Jónsson í samtali við Dag. í bókun byggingarnefndar er því beint til skipulagsnefndar að af fyrrgreindum ástæðum fari fram endurskoðun á húsgerðum raðhúsalóða við Vestursíðu en á skipulagi er þar gert ráð fyrir hús- um á meira en einni hæð. „Ég hef heyrt þessar fullyrð- ingar byggingarmeistara um eftir- spurnina áður og ég tek þær nú ekki alveg sem löggiltar stað- reyndir. Þessar fullyrðingar eru að mínu mati litaðar af hagsmun- um byggingarmeistaranna. Frá skipulagslegu sjónarmiði er óheppilegt að hafa ekkert ann- að en einnar hæðar hús auk þess hve yfirbragð byggðarinnar verð- ur flatneskjulegt,“ sagði Finnur Birgisson skipulagsstjóri í samtali við Dag. ET

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.